Heima er bezt - 01.06.1996, Side 21
ísland, sem hann unni: Hið vínreifa,
vísnaglaða ísland, er hafði létt af sér
reiðingnum. Þetta ísland fylgdi hon-
um síðan hinn stutta ævispöl, sem
hann átti eftir ólifað, fylgdi honum
alla leið inn í helstríðið.
Saga Sigurðar Breiðíjörðs, þessa
síðustu mánuði, er nánast aðeins
saga drykkjumannsins, sem fær oft
erfið flogaveikiköst, og er nær alltaf
soltinn. Sjálfur er hann að mestu
þögull um hag sinn og hug. Alltaf á
hann þó lögg í glasi, sem hann
dreypir á öðru hverju.
Það er komið vor 1846. Með sum-
arskipinu til Islands koma mislingar,
farsótt, sem geisar um alla Reykja-
vík. Sigurður Breiðijörð, þessi sjúki
öreigi, fær mislingasóttina ofan á
sultinn. Sigurður skynjar nú eitt, að
dagar hans eru taldir. Kannski furðar
hann sig á, hve margir þeir urðu.
Öðru hverju vaknar vitund þessa hel-
sjúka skálds og rifjast þá upp sælustu
stundir í lífi hans við skáldskap, ástir
og söng. Og heimildir mínar herma,
að örstuttu fyrir andlátið hafi vitund
hans verið svo vakandi, að hann hafi
gert sér ljóst, að nú ætti hann aðeins
eina ósk eftir: Að yrkja dánaróðinn
til skáldsálar sinnar, bera vitni um
hennar eilífa líf.
Hann bendir konu sinni að koma
nær. Hún rís á fætur og gengur að
fleti bónda síns og lýtur yfir hann.
Svo fátækur varð Sigurður Breið-
fjörð aldrei, að ekki fyndist blað og
blek í vistarveru hans. Skjálfandi
hendi skrifar hann svanasöng sinn:
Sál mín, þú líkjast svani skalt þeim
hvíta,
er syngjandi að dauðans porti fer,
og hröð þér upp til himins Ijósa
flýta,
hvar þúsund fegri söngvar mœta
þér.
Að því búnu hallar hann sér aftur á
beðinn og veinar, kvartar um sting í
hjartanu. Að stundu liðinni er hann
örendur.
Hinn 27. júlí gekk kona hans,
Kristín Illugadóttir, á eftir kistu
manns síns og leiddi son þeirra við
hlið sér. Aðrir gengu ekki á eftir kist-
unni. Séra Ásmundur Jónsson, dóm-
kirkjuprestur, kastaði rekunum á
kistuna, en engin ræða var haldin,
hvorki í heimahúsi né kirkju.
Þannig var útför mesta og vin-
sælasta alþýðuskálds síns tíma, Sig-
urðar Breiðljörðs.
MYNDBROT
Átt þú í fóram þínum skemmtilega mynd. t.d. at' atburði, stað, húsum, dýram eða
fólki, sem gaman væri að birta í Myndbroti? Ef svo er, því ekki að senda okkur
hana til birtingar og ieyía lesendum HEB að njóta hennar líka?
Kolagil í
Víðidal
Ljósm.: Birgitta H. Halldórsdóttir,
Ytri-Löngumýri.