Heima er bezt - 01.06.1996, Page 25
Guðjón Baldvinsson:
Komdu nú
að kveðast á
43. þáttur
Við hcfjum þáttinn á vísum frá Braga Björnssyni,
Fellabæ, en hann segir í formála að þeim:
„Ég er að hugleiða hvort sléttubönd séu á undanhaldi í
vísnagerð nú um stundir, sendi þarna fáein í von um að
fleiri komi á eftir:“
Vélsláttur
Ljárinn sneiðir grösin græn
grönnu deyðir stráin.
Skárinn breiður, verka væn
vélin, eyðist háin.
Stormasamt og kalt
Gustar vindur hroka hár,
hamlar yndi lýða.
Dustar tinda fimbul fár,
frjósa lindir hlíða.
Afturábak:
Háin eyðist, vélin vœn
verka, breiður skárinn.
Stráin deyðir grönnu, græn
grösin sneiðir Ijárinn.
Og afturábak:
Hlíða lindir frjósa, fár
fimbul tinda dustar.
Lýða yndi hamlar, hár
hroka vindur gustar.
Krafið bóta vegna Ioginna ávirðinga
Þögnin ríkir, dagur dvín,
döggin vætir móa.
Sögnin ýkir mistök mín,
miskabætur fróa.
Við ströndina
Sorgar tárum þeytir þrátt,
þyrlar gárum lægis.
Orgar Kári harla hátt,
hamast bárur Ægis.
Afturábak:
Fróa bætur miska, mín
mistökýkir sögnin.
Móa vætir döggin, dvín
dagur, ríkir þögnin.
Afturábak:
Ægis bárur hamast, hátt
harla Kári orgar.
Lœgis gárum þyrlar, þrátt
þeytir tárum sorgar.
Sléttuböndin eru þeim eiginleika gædd að lesa má þau
jafnt afturábak sem áfram, eins og flestir vita. Til gamans
birtum við því sléttuböndin jafnan i báðum myndum.
Næst skulum við gefa Gissuri O. Erlingssyni orðið en
hann yrkir eftirfarandi:
Líður á ævi
Krefur gríma hefnda höld,
hœttan glímu býður.
Gefur vímu óræð öld,
œvitíminn líður.
Vetrarsólhvörf
Kaldur vetur vefur jörð,
voðum hvítum sveiparfiörð,
veður geisa grimm og hörð,
gnauðar hríð um tinda og skörð.
Afurábak:
Líður ævitíminn, öld
óræð vímu gefur.
Býður glímu hættan, höld
hefnda gríma krefur.
Nepjuþrútið norðanbál
nístir merg og kremur sál,
flest er daprað mannamál,
í myrkri drukkin görótt skál.
ÍHeima er bezt 221