Heima er bezt - 01.06.1996, Side 32
Umsjón: Ingvar Björnsson
Annar ársSjórðungur 1996
Landshluti: Vesturland
Verðlaunaáskrifandi
annars ársfjórðungs
1996, er Anna Pálína
Magnúsdóttir, Aðal-
stræti 126, Patreksfirði.
Verðlaun: Aldnir hafa orðið,
14.-18. bindi.
Anna Pálína Magnúsdóttir.
Hjörtur Óli Halldórsson,
eiginmaður Önnu
r við náðum sambandi við
/ ~ Önnu Pálínu Magnúsdóttur,
við hana að segja
okkur sitt af hverju um ævi sína og
störf og fer frásögn hennar hér á eftir.
„Ég er fædd 14. maí 1930, að
Kinnarstöðum í Reykhólahreppi í A-
Barðastrandarsýslu.
Foreldrar mínir voru Magnús Sig-
urðsson yngri, fæddur 21. maí 1907,
að Múlakoti (heitir nú Múli) í
Þorskafirði, og eiginkona hans, Ingi-
björg Pálsdóttir, fædd 23. ágúst 1907
að Hlíð í Kollafirði. Hún andaðist 5.
mars 1973.
Þeim varð 8 barna auðið, það elsta
fæddist 1929 en hið yngsta 1939 og
er ég önnur í röðinni.
Eg átti heima á nokkrum stöðum i
Reykhólasveitinni, var eitt ár á
Reykhólum, 5 ár í Skógum og að
Hólum frá 1937, þar til ég flutti
1952 hingað til Patreksljarðar og hér
hef ég átt heima síðan.
Eiginmaður minn er Hjörtur Óli
Halldórsson, fæddur 5. nóvember
1929, á Patreksfirði og ólst þar upp.
Foreldrar hans voru Margrét Sigríð-
ur Hjartardóttir, fædd 8. nóvember
1890 að Valdasteinsstöðum í Hrúta-
firði, dáin 1976, og Halldór Jóhann-
esson, fæddur 21. júlí 1891 á Húsa-
vík, dáinn 1970.
Við hjónin eigum 8 börn, 22
barnaböm og 5 barnabarnabörn.
A
228 Heima er bezt