Æskan - 01.05.1960, Page 14
ÆSKAN
AÐ voru eftirvæntingarfullir
krakkar, sem voru að sniglast
kring um nokkra menn, sem
voru að bjástra við að reisa
marglit hús og einkennileg tæki
suður í Vatnsmýri vorið 1946. Sagan
hafði bori/t um bæinn; þarna átti að
reisa TlVOLÍ.
Ef til vill hafa þau munað í sögur,
sem þeim hafa verið sagðar um ævin-
týraheim Tívolí Kaupmannahafnar.
Slíkir skemmtistaðir eru jafnt fyrir
unga sem aldna. Þar eru ótal skemmti-
tæki: hringekjur, bílabrautir, bátar,
spilakassar o. II. Og hinir skæru litir
gera allt ævintýralegra. Á slíkum
stöðum skemmta líka ýmsir: loftfim-
leikamenn línudansarar og trúðar.
Eru það menn, sem íerðast á milli
skemmtistaða land úr landi, og auk
þess að þeir framkvæma oft hina ótrú-
legustu hluti, bera þeir með sér ævin-
týrablæ, sem hefur aðdráttarafl á á-
horfendur. Brátt reis girðing mikil
kring um þennan stað í Vatnsmýrinni
og krakkarnir urðu að láta sér nægja
að horfa á undrið úr fjarlægð.
En 9. júlí rann upp sá dagur, að
'hlið þessarar undraveraldar voru opn-
uð, og þúsundir manna, ungir og
gamlir, þyrptust að til að reyna hin
nýju skemmtitæki. Aðaltækin voru:
Bilabraut, parísarhjól og átta arma
hringekja. Einnig var þá komið upp
sal með spilakössum.
Það var ljóst undir eins þetta fyrsta
sumar, að bílabrautin myndi verða
vinsælasta tækið fyrir yngri sem eldri.
Enda hefur þá ræzt draumur margra
um að fá að aka nýjum bíl, jafnvel
próflausir, og í það minnsta lausir
undan smásjá umferðalögreglu. í góð-
viðri hefur mörgum þótt gaman að
bregða sér í parísarhjólið, því að það-
an er gott útsýrii yfir ilugvöllinn og
bæinn. Seinna þetta sumar kom svo
hringekja handa yngri krökkunum, á
henni voru jeppar og mótorhjól.
Sumarið 1947 var garðurinn tilbú-
inn snemma vors. Þá bættist við hesta-
hringekja, mjög fallegt tæki, en var
keypt notáð, svo það entist ekki nema
í lá ár. Þá voru einnig opnaðir skot-
bakkar og veitingahús. Og það surnar
sýndi fyrsta loftfimleikaparið listir
sínar í garðinum.
Sumarið 1948 tók Tívolí til starfa
í nýjum búningi, þá hafði svæðið ver-
ið skipulagt að nýju, tjarnirnar búnar
til, áhorfendasvæðið hækkað og leik-
lasa'
sviðið byggt. Þá var einnig speg ‘
—; ~cmnnr
urinn opnaður. Það sumar
0
margir erlendir skemmtikraft^,^
sýndu margvíslegar listir. L° 0j
leika, hjólreiðar, jafnvægisæfin8a,r *
, £eri
jafnvel galdramenn voru þar a
Það ár náði aðsókn að garðin11111
marki, fór yfir 100 þúsund, eða ^
ar sinnum íbúatala Reykjavík111^, ^
En nú, þegar nýjabrumið er f‘lia j,
þessum skemmtitækjum, er aös
ekki nema um 40 þúsund yfir s
ið. Til samanburðar má geta þeS^ ,
í Tívolí í Kaupmannahöfn ^])S
opnunardaginn í fyrra 65 þús- ^
Bílabrautin er vinsælt tæki fyrir yngri sem eldri.
102
Tívolí, ikemmti^