Æskan - 01.05.1960, Qupperneq 20
ÆSKAN
»*♦ *’♦ **■*♦*' *1<'*1* N'**!'* *** *»■* **• **■* * »* *1* *1"* ’ 4* *»* *** *1'*»**1*****1**** *1* * »*
Hér er gömul mynd af leikendum í
Alfkonan í Selhamri, er barnastúkan Jóla-
gjöf sýndi fyrir nokkrum árum hér í
Reykjavík.
Myndin er af álfkonunni, bóndadóttur-
inni og yngispiltinum, sem eru aðalpersón-
ur Ieiksins. — Sendið fleiri myndir af
leikskap o. fl. starfsemi stúknanna.
♦*♦ *l**l**l*\* *4* •*• ♦*♦ ♦$• *■*■* ♦«♦ ♦*♦ ♦*♦ *J* *** *4* ♦*♦ ♦** ♦** 4*♦ ♦$♦ *J«
Ur bréfum frá gæzlumönnum.
1. Sigurður Gunnarsson, skólastj., gæzlu-
maður barnastúkunnar Pólstjaruan á Húsa-
vik, skrifar um áramótin:
„Ég held, að í rauninni sé ekkert sér-
stak't að segja frá starfi st. Pólstjarnan nr.
126. Hún starfar að sjálfsögðu á mjög lík-
an liátt og allar hinar barnastúkurnar okk-
ar með það megintakmark í huga: 1) að
temja hörnunum allt það, sem einkennir
góðan dreng, í þess orðs gömlu og fögru
merkingu, og 2) að þjálfa þau í margs kon-
ar félagslegri framkomu.
Ef stúkan Pólstjarnan kynni að bufa cin-
hverja sérstöðu í fjölskylduhópnum, þá er
hún aðeins í því fólgin, að hún starfar i
nánum tengslum við barnaskólann og hef-
ur olitaf gert frá upphafi 1944. Má því í
rauninni segja, að hún sé skólafélag barna-
skólans, þar sem hin félagslega og siðlega
starfsemi hans fer fram. Þetta er tvimæla-
laust mikill styrkur fyrir stúkustarfið, bæði
vegna þess, að allir kennarar skólans hafa
mörg þessi ár verið félagar stúkunnar, og
þá ekki síður hins, að hin félagslega starf-
semi stúkunnar fer að verulegu leyti fram
á vegnm skólans, þar sem ákveðin deild i
skólanum undirbýr fund hverju sinni. Við
108
höfum þvi nú langa reynslu fyrir þvi hér,
að það fer vel á, i smærri skólum, að
tengja þetta göfuga siðbótastarf við skóla-
haldið. Svo að segja hvert einasta barn,
scm aldur liefur, fær leyfi foreldra sinna
til þess að vera með í þessu frjálsa félags
starfi skólans, og mæting á fundum er yfir-
leitt aldrei neðan við 95 prósent. Það er
því alveg augljóst, að börnin telja sig hafa
eittlivað að sækja á fundina, enda reynir
hver bekkur að sjálfsögðu að vanda sem
bezt til sins fundar.
Auk hinna venjulegu félagsstarfa má svo
helzt nefna þetta:
1) Foreldrar vita, að þeir eru alltaf vel-
komnir á fundi stúkunnar og koma oft
allmargir. En á degi Unglingareglunnar, i
febrúar, eru þeir alveg sérstaklega boðnir
og fjölmenna þá jafnan.
2) Stúkan gefur út blað, sem nefnist
GEISLINN, og er eingöngu í það ritað af
börnunum sjálfum. Er ætíð lesið upp úr
því á fundum.
3) Á hverju hausti fer stúkan í skemmti-
ferð, sem er mjög eftirsótt og vinsæl.
4) Loks vil ég nefna það, að mörg sið-
ustu árin hefur stúkan beitt sér fyrir dans-
kennslu í nokkrar vikur á vetri hverjum.
Er það gert vegna þess, að gæzlumenn telja
nauðsynlegt, að börnin læri þessa fögru
íþrótt, sem segja má hiklaust að sé algeng-
asta skemmtiatriði ungs fólks nú á dögum.
Þessi starfsemi stúkunnar er líka mjög
vinsæl, bæði af börnum og aðstandendum
þeirra.
Nú langar okkur til að minnast 15 ára
afmælis stúkunnar á myndarlegan hátt, áð-
ur en langt liður, og verður það eitt af
verkefnum næsta árs.“
2. Þórir H. Einarsson, skólastjóri, gæzlu-
maður barnastúkunnar Geisli nr. 104,
Tálknafirði, skrifar nýlega:
„Við liéldum nýlega fund í barnastúk-
unni hérna. Fundurinn var mjög vel sóttur
og gengu 7 nýliðar í stúkuna. Einnig hélt
stúkan nýlega skemmtun með hlutaveltu,
kaffisölu og dansi. Við þénuðum 3300,00
krónur ...“
Síðan minnist gæzlumaður á framtiðar-
starfið. Stúkuna vantar ýmislegt, sem fé-
lagar hafa mikinn liug á að eignast, t. d.
ýmislegt til leiksýninga, kvikmyndasýn-
ingavél o. fl. — Þeim tekst vafalaust að
eignast þessa hluti, ef þeir starfa jafn
ötullega eftirleiðis og þeir hafa gert við
undirbúning samkomunnar, sem færði þeim
svona miklar tekjur.
3. Eiríkur Sigurðsson, skólastjóri, gæzlu-
maður barnastúkunnar Samúð nr. 102, Ak-
ureyri, skrifar 1. febrúar s.l.:
„Ég fór í dag út á Dalvík með Guðmundi
Karli Péturssyni yfirlækni og töluðum við
þar um bindindismál fyrir unglingaskólann
og eldri deild barnaskólans. Pétur Björns-
son var þar líka og sýndi kvikmyndir. Þetta
var ágæt samkoma. Þarna voru mættir all-
ir kennarar skólans og skólanefnd ....,
; “ ■
ÍSLENDINGA SÖGUR XI.
Knattleiktur.
„Nú leika þeir ok hefir Þor-
grítnr ekki við, feldi Gisli hann
ok bar út knöttinn. Þá vill
Gisli taka knöttinn, en Þor-
grimr lieldur honum ok lcetr
hann ekki þvi ná. Þá fellir
Gísli svá hart Þorgrim, at hann
hafði ekki við, ok af gekk
skinnit af knúnum, en blóð
stökk ór nösunum, af gekk ok
kjötit af knjánum."
Gísla saga Súrssonar.
iSWsbKBKBKHKHKBKBKBKBKBKBKBíH*
Barnastúkan þar starfar ágætlega. Hun
hafði fund í gær og voru um 70 á fundi.
Nú er ég byrjaður með tvo hópa i „Vog-
un vinnur — vogun tapar“ i minni stúku.
Viðfangsefnin eru: Unglingareglan °S
fuglalíf á íslandi. Báðir flokkarnir hafu
komið upp í fyrri umferð, en eiga eftir Þ“
síðari.“
f öðru bréfi dagsettu 23. janúar s.l., seg-
ir Eirxkur:
„Um 50 manns er hér á námskeiðum hjá
Sigrúnu og Önnu (sjá fréttir i janúarblaði)
og liafa þær mikið að gera ... Mikið lif er
i starfi Æskulýðsheimilisins. Tvö föndur-
námskeið fyrir börn eru einnig starfandi
og frímerkjaklúbbur. Síðar verða ljóS"
myndanámskeið og skáknámskeið. — Viö
héldum hér veglega ársliátíð I.O.G.T. uy*
lega og ætlum að halda almennan út-
breiðslufund um miðjan febrúar.