Æskan

Årgang

Æskan - 01.10.1962, Side 5

Æskan - 01.10.1962, Side 5
ÆSKAN Síðan sneri hún sér að mér og sagði: „Og þetta er sonur þinn, býst ég við?“ Móðir mín kynnti okkur. „Jæja, mér þykir yfirleitt ekki gaman að drengjum. En það er nú sama. Hvernig líður þér, drengur minn?“ Ég sagði, að mér liði vel og kvaðst vona, að henni liði líka vel. Hún virti mig dálítið fyrir sér. Síðan sneri hún sér að hinu fólkinu og sagði: „Hann er ekki nógu vel upp alinn.“ Þegar móðir mín ætlaði að fara að hella tei í bollana við morgunverðinn, potaði ungfrú Murdstone í kinnina á henni og mælti: „Nei, heyrðu mig nú, Klara mín góð. Þú ert allt of falleg og hugsunarlaus til þess að vera að annast hús- móðurstörf. Þau skal ég sjá um! ... Þú getur afhent mér lyklana þína, svo skal ég sjá um allt saman." Og frá þeirri stundu var ungfrú Murdstone húsmóð- irin á heimilinu, en móðir mín réð þar engu framar. Ég veit, að móður minni mislíkaði þetta, Jrví að eitt kvöld, Jregar Murdstone og systir hans voru að gera áætlanir um búskapinn, fór hún að gráta og sagði: „Þið gætuð nú lofað mér að vera líka með í ráðum!“ „Klara,“ anzaði Murdstone, „hvað gengur nú að þér?“ „Jú, Eðvarð, mér finnst það nú satt að segja nokkuð hart, að ég skuli ekki fá að ráða neinu á mínu eigin heimili." „Þínu eigin heimili, Klara?“ „Já, á heimilinu okkar,. . . á þínu heimili," sagði móð- ir mín, óttaslegin við augnaráð Murdstones. „Þú veizt vel, hvað ég meina! Áður fyrr hef ég þó sjálf getað stjórn- að heimilinu. Þið getið bara spurt hana Peggotty.“ „Nei, Eðvarð, þetta nær nú engri átt. Ég fer bara héðan á morgun," sagði ungfrú Murdstone. „Nei, nei, ég krefst þess ekki að neinn fari héðan,“ svaraði móðir mín. „Mér fellur mjög illa, ef þú ferð. En ég vildi gjarnan, að þið hefðuð mig í ráðum! Ég er mjög þakklát fyrir þá hjálp og tilsögn, sem ég fæ, en mér fellur svo illa, ef ég fæ alls engu að ráða!“ „Nú er nóg komið! Þetta er meira en nóg af því góða! • •. Ég fer á morgun!" „Þegiðu, Jane!“ kallaði Murdstone. „Ég vil ekki heyra meira af þessu bulli!“ Ungfrú Murdstone Jragnaði og byrgði andlitið í vasa- klútnum sínum. „En þú þarna, Klara,“ hélt Murdstone áfram. „Ég er hissa á þér, alveg steinhissa! Jane, systir mín, kemur hing- að og tekur að sér ráðskonustörf á heimilinu, og svo er lienni bara þakkað með skætingi." „Ó, Eðvarð, Eðvarð! Þú mátt ekki ásaka mig fyrir, að ég sé vanþakklát, því það er ég ekki!“ „Það veit ég svei mér ekki! ... Þegar Jjú kannt ekki einu sinni að meta það, að systir mín vinnur allt þetta Jún vegna!“ „Nei, nei, góði Eðvarð, ... þú mátt ekki reiðast mér; það þoli ég ekki! Nú skulurn við vera vinir . . . Ó, nú skulum við vera vinir! ... Ég veit vel, að ég er ósann- gjörn, og að ég lref á röngu að standa, En |)ú mátt ekki vera reiður við mig, Eðvarð. Ég skal vera bæði góð og auðsveip!" „Jæja, við skulum sjá til! Þá verðum við að láta eins og ekkert hafi í skorizt og reyna að gleyma þessu. En svona lagað má ekki koma fyrir oftar!“ Morguninn eftir, þegar ég ætlaði inn í borðstofuna, heyrði ég, áður en ég opnaði dyrnar, að móðir mín var að biðja ungfrú Murdstone auðmjúklega fyrirgefningar, og ])ar með skildi ég, að hún mundi aldrei framar fá að ráða neinu á heimilinu. Það var Murdstone og systir hans, sem upp frá þessu réðu þar öllu, og Jrau voru bæði miskunnarlaus og harð- brjósta. Yfir heimilinu grúfði myrkur ömurleika frá morgni til kvölds, og það var eins og ég væri í fangelsi. Það hafði verið minnzt á að senda mig í heimavistar- skóla, en úr því varð þó ekkert. Fyrst um sinn átti móðir mín að kenna mér heima. Ég man enn glöggt eftir þessum kennslustundum, og það fer hrollur um mig, þegar ég hugsa til Jreirra. Eftir morgunverð kom ég með bækurnar mínar og spjaldið mitt niður í dagstofuna, og þar fór móðir mín að hlýða mér yfir lexíurnar mínar. Ef við hefðum verið ein, hugsa ég, að ég liefði kunnað þær, en bæði Murd- stone og systir hans voru alltaf viðstödd, og þau höfðu svo ill áhrif á mig, að mér var ómögulegt að festa hugann við það, sem ég var að gera. Nú skal ég skýra frá því, hvernig þessar kennslustund- ir fóru venjulega fram. Ég rétti móður minni bók og —------- - — - ■ ■ 1 -r— CHARLES DICKF.NS • ■° ' < .’■■ ■■■: * .' ... ■ ■ ‘ DAVÍÐ COPPERFIELD 197

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.