Æskan

Volume

Æskan - 01.10.1962, Page 6

Æskan - 01.10.1962, Page 6
ÆSKAN Hægt og hátíðlega héldum við upp stigann. sýni henni, hvað ég á að hafa, og síðan fer ég að segja frá. Andartak gengur allt vel, en svo staldra ég við orð, sem ég man ekki í svipinn, Murdstone lítur á mig með illi- legu augnaráði eins og hans er von og vísa, og ungfrú Murdstone hristir höfuðið. Við það ruglast ég alveg og get ómögulega byrjað aftur. Móður mína langar að koma mér á lagið, en hún þorir það ekki. Ég streitist við að byrja aftur, en get það með engu móti. „Hvað er þetta, Davíð minn?“ segir móðir mín blíðlega. „Klara, vertu ákveðin við drenginn. Vertu ákveðinl" segir Murdstone. „Hvað þýðir að vera að segja: Davíð minn, Davíð minn. Það er bjánalegt. Annaðhvort kann hann lexíuna sína eða hann kann hana ekki!“ „Hann kann hana ekki,“ segir ungfrú Murdstone. „Hann verður að læra hana betur.“ Og ég er látinn læra hana upp aftur, bæði þessa lexíu og hinar iexíurnar. Ég verð að sitja við lestur og reikn- ing allan liðlangan daginn. Enginn segir hlýtt eða vin- gjarnlegt orð við mig, og leiki eða gleðskap er alls ekki um að ræða. Ég varð silalegur og latur og jafnvel dálítið baldinn af þessari meðferð, og mér leið fjarskalega illa. Ef litla bókasafnið hans föður míns hefði ekki verið uppi í herberginu mínu, veit ég ekki, hvernig ég hefði afborið þetta. En þegar ég átti að læra lexíurnar mínar, iagði ég hina leiðinlegu lærdómsbók oft frá mér og fór 198 að blaða í Róbínson Krúsoe, Þúsund og einni nótt eða einhverri af þessum gömlu og skemmtilegu bókum, og Jjá var tíminn nú ekki lengi að líða. Einn morgun, þegar ég kom eins og vant var með bæk- urnar mínar og ætlaði inn í dagstofuna, heyrði ég, að Murdstone sagði: „Það er sem ég segi, Klara. Ég hef oft verið hýddur sjálfur." „Já, ég held nú það. Ætli það ekkil“ greip ungfrú Murdstone fram í. „Já, en góða Jane,“ anzaði móðir mín blíð og angur- vær, „finnst þér, að Eðvarð hafi haft gott af því?“ „Ja, hvernig finnst þér Eðvarð vera núna?“ spurði Murdstone alvarlega. Þegar ég sá, að Murdstone sat með spanskreyr í hend- inni, datt mér undir eins í liug, að samtalið væri sprottið út af mér. Murdstone hafði oft þrifið í mig og gefið mér utan undir með bókinni, en með spanskreyr hafði hann aldrei lamið mig til þessa. Nú var ég smeykur við, að hann mundi gera það. Þegar ég var setztur við borðið og hafði rétt móður minni bókina, svo að hún gæti hlýtt mér yfir, gekk Murdstone að mér, og um leið og hann sveiflaði spansk- reyrnum fyrir framan mig, sagði hann með harkalegn rödd: „Heyrðu Davíð, í dag verðurðu að hafa hugann við Jiað, sem þú ert að gera. Þetta dugar ekki lengur!“ Að svo mæltu lagði hann spanskreyrinn á borðið fyrir frani- an mig. Ég varð afskaplega skelkaður, og þennan dag gekk mér auðvitað miklu verr en endranær. Ég gat hvorki haft augun né hugann við annað en spanskreyrinn, og naér var ómögulegt að muna neitt af lexíunum mínum- Að lokum fór móðir mín að gráta. „Klara,“ sagði ungfrú Murdstone í aðvörunarrómi- „Já fyrirgefið þið. Ég er ekki vel frísk í dag,“ svaraði móðir mín. „Nei, Klara er ekki heilbrigð,“ sagði Murdstone og þreif spanskeyrinn. „Annars hefur henni farið mikið fram upp á síðkastið, og hún er orðin langtum ákveðnari, en það væri til of mikils mælzt, að hún gæti afborið þ^ raun, sem Davíð hefur bakað henni í dagl ... Komdu liérna Davíð. Nú förum við báðir upp á loft!“ Og svo þreif hann í öxlina á mér og teymdi mig ut úr stofunni. Ég sá, að móðir mín spratt á fætur, einS og hún ætlaði að hlaupa á eftir okkur, en ungfrú Muid- stone aftraði henni. Hægt og hátíðlega héldum við upp stigann, og undir eins og við vorum komnir inn í herbergið mitt, stakk hann höfðinu á mér undir vinstri handlegginn á sér. „Æ, herra Murdstone, sláið þér mig ekkil" kallaði ég

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.