Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.02.1972, Qupperneq 26

Æskan - 01.02.1972, Qupperneq 26
INGIBJÖRG ÞORBERGS: TAL OG TÓNAR — Æi! Nú á ég eftir aö laera kvæði fyrir morgundaginn. Þetta hef ég heyrt marga unga vini mína segja. Við höfum svo rætt, hvaða aðferð sé heppilegust til að læra kvæðið utanbókar, — helzt bæði fljótt og vel. Ekki eru allir á sama máli hvað það snertir. Einn segir: — Mér finnst bezt að lesa það vel, — horfa vel á það. Þá sé ég það allt fyrir mér, því að ég endurkalla það fram í huganum. Ég hef svo gott sjónminni. Annar segir: — Ég vil nú helzt láta lesa kvæðið fyrir mig, — eða lesa það inn á segulband og hlusta svo á það aftur og aftur, því ég man bezt það sem ég heyri. Sá þriðji segir: — Öruggasta aðferðin er að þylja það áður en ég fer að sofa. Þá kann ég það alveg þegar ég vakna. Ég held, að þetta séu allt Ijómandi góðar aðferðir. Flestir hafa þó sagt við mig: — Það er langbezt að læra þau kvæði eða Ijóð, sem maður kann lög við. — Ég er því líka alveg sammála. Þess vegna rifjaðist upp fyrir mér, þegar þetta barst í tal fyrir skömmu, að ég varð einu sinni við ósk nokkurra barna. Þau áttu að læra kvæði Davíðs Stefánssonar, „Sálin hans Jóns míns“, og fannst það nokkuð langt. Eftir að þau fengu lagið við það, sögðust þau hafa lært það ,,eins og skotl", og þeim, sem tilheyra þessum síðastnefnda flokki, sendi ég nú lagið við þetta fræga kvæði. Davíð Stefánsson fæddist í Fagraskógi við Eyjafjörð 1895 og andaðist á Akureyri 1964. Hann lauk stúdentsprófi frá Mennta- skólanum i Reykjavik 1919, og sama ár kom fyrsta Ijóðabók hans út, „Svartar fjaðrir", og var henni mjög vel tekið. í Kaupmannahöfn lauk Davíð kandídatsprófi i heimspeki. Að loknu námi kom hann heim og var bókavörður við Amtsbóka- safnið á Akureyri frá 1925. Helztu verk hans eru Ijóðabækur, skáldsagan „Sólon íslandus" og leikrit. „Gullna hliðið" er þeirra þekktast. „Sálin hans Jóns míns", hin skemmtilega þjóðsaga, lagði honum til efnið í kvæðið og síðar í leikritið. En nú skuluð þið strax byrja að læra „Sálina hans Jóns míns", og ég vona að þið gefizt ekki upp. — Það gerið þið heldur ekki, ef þið hugsið um kerlinguna í kvæðinu. Hún klifraði, kafaði og hrasaði, en — „Upp hún aftur stóð, hélt áfram, þreytt og móð. Alltaf komst hún hærra og hærr’a . ..“ og hún sigraði að lokum, og eftir allt hið mikla erfiði „fékk hún allan vilja sinn...“ Á þessu sjáum við, að næstum allt er hægt —■ ef við gefumst ekki upp! Kær kveðja! INGIBJÖRG. I. am Er gigtin íór að jafna um Jón, E7 am fannst Jóni komið nóg. 2. am Kerling gekk nú lengi, lengi E7 am og lagði á reginfjöll. 3. am Oft grípur einliver geigur þá, E7 am sem ganga í þoku og reyk. Þá nennti hann ekki að liía lengur, E7 am lagði sig — og dó. G7 En af því hann hafði ýmsum verið C til ama og jafnvel tjóns, dm var ekkjan, satt að segja, hrædd am E7 um sálina hans Jóns. am Hún átti fáa að. Hún varð bæði að klifra kletta, E7 am kafa leir og mjöll. G7 Allt var þetta upp í móti, — C sumt ógurlega bratt, dm þó hélt hún, að það hlyti að skána, am E7 en hrasaði og datt. am Upp hún aftur stóð, En kerlingin — hún var því vön E7 am og var því hvergi smeyk. G7 Þótt hún heyrði úr öllum áttum C einhvern stormaþyt, dm varð það alltaf fegra og fegra am E7 hið fölva stjörnuglit. am Loks gat hún vörður greint Því afréð kerling það dm am að troða henni í tóma skjóðu dm E7 am og tölta svo af stað. hélt áfram, þreytt og móð. dm am Alltaf komst hún hærra og hærra dm E7 am og himinkrapann óð. og gat nú farið beint. dm am Hvern fjandann var að fárast um, dm E7 am þó ferðin gengi seint. 24
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.