Æskan - 01.02.1972, Side 43
Að spá í spil
Þessi árstíð er tími spilamennskunn-
ar, og margir hafa líka gaman af að láta
spilin segja sér óorðna hluti. Að vísu
er allt slíkt kerlingabækur, en það er
ekki verra gaman en hvað annað.
Þeir, sem vilja spyrja spilin eftir
þessum reglum í einrúmi eða leggja þau
tyrir kunningja sína, eiga að draga átta
spil i senn þrisvar sinnum og tákna
raðirnar fortíð, nútíð og framtið, en
munið að stokka spilin vel á milli.
Hjartaspil eru ætið jákvæð; þau boða
ást og hamingju og önnur eftirsóknar-
verð gæði. Tígulspil eru einnig jákvæð,
en standa hjartanu þó að baki; þau
boða hina hve'rsdagslegu farsæld og
er bjart yfir ferli þess, er hlýtur, ásamt
hjartanu. Laufspil merkja ýmiss konar
óþægindi og vandræði, en þó ekki stór-
vægileg, og er ekki mjög að lasta, að
þau séu með; en spaðaspilin eru oftast
neikvæð; þau merkja óhamingju með
ýmsum hætti og ýmiss konar vandræði.
en „fátt er svo með öllu illt, að ekki boði
nokkuð gott", og „líkn með þraut".
Enginn skyldi því örvænta. — Athugið,
að í stað hrakspánna koma heilræði.
°N heilræðaspilin boða hættu, ef ekki
er rétt við brugðið.
HJARTA
AS: Boðar heita ást, hreinskilni.
TVISTUR; Gifting í vændum, farsælt
hjónaband.
ÞRISTUR: Sveinbarn mun fæðast inn-
an eins árs, óskirnar rætast.
PJARKI: Tvíburar í vændum; barnalán.
FIMM: Óvinveittur venzlamaður reynir
að vinna þér tjón.
SEX: Hamingja og gleði fellur þér i
skaut.
SJÖ: Góðar fréttir; sendibréf.
ÁTTA: Munt bráðlega fara á góða
skemmtun, hljóta af mikla ánægju.
NÍA: Ríkuleg gjöf í vændum.
TÍA: Bezta spilið í hjarta. Boðar auð-
legð, góða giftingu, mikla hamingju.
GOSI: Þú átt einlægan aðdáanda, og
Þess mun ekki langt að bíða að ósk-
ir ykkar rætist. Þetta spil táknar ann-
ars ástfanginn ungan mann.
DROTTNING: Heit og einlæg ást.
KÓNGUR: Maður í góðri stöðu er þér
velviljaður og vill rétta þér hjálpar-
hönd. Ekki óhugsandi, ef um ógift
fólk er að ræða, að virðulegt, auð-
s®lt hjónaband sé í vændum.
LAUF
ÁS: Þú munt missa einhvern vin eða
ættingja með einhverjum hætti, en
það verður þér til heilla.
TVISTUR: Gæt þín fyrir svartklæddum
manni, sem mælir við þig vingjarnlega
og vill fá þig með sér i félag; sinntu
honum ekki.
ÞRISTUR: Auðugur muntu verða, en
ekki auðsæll; mikils muntu njóta,
deyja i elli saddur lifdaga, en ánægð-
ur þó.
FJARKI: Reynt verður að spilla mann-
orði þínu með rógburði.
FIMM: Metorð og hamingja.
SEX: Boðar gjafir og ánægju.
SJÖ: Þú átt við illar ástriður og þér
ósamboðnar að etja. Gefist þú upp,
er allt glatað. Það er aldrei um sein-
an að snúa við, en það reynir því
meir á manndóm þinn, sem þú dreg-
ur það lengur.
ÁTTA: Um síðir muntu fá óskir þínar
uppfylltar, en lengi máttu bíða. Vertu
samt öruggur.
NÍA: Óvæntum peningum fylgir þras og
málaferli.
TÍA: Löng ferð, sem borgar sig.
GOSI: Merkir afbrýðisemi.
DROTTNING: Þú munt komast í kynni
við mikils háttar konu, ríka og dramb-
sama.
KÓNGUR: Valdsmaður, illræmdur, mun
bráðlega reyna að vinna þér mein.
TÍGULL
ÁS: Boðar ánægju, farsæld og um-
hyggjusemi nánustu ættingja.
TVISTUR: Þú munt verða fyrir miklum
' erfiðleikum, en sigrast á þeim að
lokum.
ÞRISTUR: Ekki eru framavonir þinar
tímabærar. Kunna skaltu hóf sjálfs-
áliti þínu; legg kapp á að meta hæfi-
leika þína rétt, en ekki um of. Þá
mun vel 'fara.
FJARKi: Næstu fjögur ár verða þér
góð og hamingja þín aldrei meiri en
þá.
FIMM: Fráfall nákominna ættingja eða
vina mun breyta áformum þinum, og
það mun reyna á hæfni þína.
SEX: Boðar ófarsæla giftingu, hjóna-
skilnað eða ósamlyndi milli vina.
SJÖ: Þú skalt bíða enn um stund eftir
þvi, sem þú girnist.
ÁTTAN: Þér mun farnast vel með öll
þín fyrirtæki.
NÍA: „Að hika er sama og tapa“, sé
þitt æðsta boðorð.
TÍA: Ferð til framandi lands og margs
konar hamingja mun falla þér þar
í skaut.
GOSI: Bjarthærð persóna vill þér vel
og ber til þín ástarhug.
DROTTNING: Ung og fögur kona hugs-
ar um þið löngum. Hún, eða einhver
henni nákominn, ber þér hamingju
i skaut. .
KÓNGUR: Boðar gleði og góða daga,
a. m. k. um stundarsakir. En gæt
þess, að fáum er hóglífið hent, og
flestir verða að kaupa hamingju sína
einhverju verði.
SPAÐI
ÁS: Boðar veikindi; jafnvel dauða.
TVISTUR: Þú ert á villigötum. Bættu
breytni þina, annars er ógæfan nærri.
ÞRISTUR: Ferð á sjó. Kynni af manni,
sem mun hafa góð áhrif á framtíð
þiná.
FJARKI: Þú ert elskaður. Ef þú stend-
ur ekki á móti því, verður þú ham-
ingjusamur.
FIMM: Þú munt mæta miklum erfið-
leikum á lifsleiðinni og mörgum. Allt
mun þó vel fara að lokum, og þú
verður mjög gamall.
SEX: Heimboð frá góðum kunningja.
Vertu vinur vina þinna.
SJÖ: Bréf, en nokkur vonbrigði.
ÁTTA: Ólánið eltir þig um stund, en
— „hver er sinnar gæfu smiður,"
mun sannast á þér.
NÍA: Ef þú ert trúr yfir litlu, verðurðu
settur yfir meira; annars verður einn-
ig hið litla frá þér tekið.
TÍA: Merkir sorg, mótlæti og lífsháska.
GOSI: Varastu þá, sem tala Illa um
aðra í eyru þín; þeir rægja þig við
vini þina og vinna þér tjón með
slægð og undirferli. Þeir, sem ætla
öðrum illt, eru jafnan breyzkir sjálfir.
DROTTNING: Þú munt elska einfeldn-
ing.
KÓNGUR: Þrasgjarn ertu og þvi muntu
lenda i málaferlum og margs konar
vandræðum. Legg kapp á að stilla
skap þitt. Vertu lágmæltur og not-
aðu ekki hástig lýsingarorða.