Æskan - 01.02.1972, Qupperneq 47
NR. 82
TF-ISD
DOUGLAS C-47-DL
SkráS hér 12. júní 1954 sem TF-ISD, eign Flugfélags islands
hf. Flugvélin var keypt í Bandaríkjunum (skrás. N 110073, rað-
númer í hernum hafði verið 41-7828). Hér hlaut hún nafnið Snæ-
faxi.
Hún var smíðuð 26. april 1942 hjá Douglas Aircraft Company,
Santa Monica, Kaliforníu. Framleiðslunr. var 4327.
25. júní 1957 Var flugvélin afskráð hér, en hún hafði verið seld
Sraathens S.A.F.E. i Noregi. Þar var hún skráð LN-SUK. (Hún
var s:ðar seld Wideroes, LN-RTA, sem leigði hana Loadair í
Sv'Þjóð 1963).
^OUGLAS C-47-DL: Hreyflar: Tveir 1200 ha. Pratt & Whitney
"1830-92 Twin Wasp. Vænghaf: 28.96 m. Lengd: 19.43 m. Hæð:
•16 m. Vængflötur: 91.70 m’. Farþegafjöldi: 29—28. Áhöfn: 2—3.
ómaþyngd: 8.056—8.380 kg. Hámarksflugtaksþyngd: 11.890 —
2-500 kg. Arðfarmur: 1.340—1.600 kg. Farflughraði: 270 km/t.
úhiarkshraði: 360 km/t. Flugdrægi: 2.400 km. Flughæð: 6.800
m- 1- flug: 1935.
NR. 83
TF-FSD, RAN
CATALINA
Skráð hér 17. september 1954 sem TF-FSD, eign Flugmála-
stjörnarinnar. Flugbát þennan keypti Flugmálastjórnin af varnar-
l' 'nu a Keflavíkurflugvelli (U.S. Navy 46651), en botn hans hafði
skazt upp við landsteina rétt hjá Þórshöfn á Langanesi í mai
Viðgerð var ekki talin borga sig, en islendingum gefinn
.. Ur a að kaupa flugvélina í því ástandi, sem hún var. Á henni
st bráðabirgðaviðgerð og var henni flogið til Reykjavíkur, en
snleg viðgerð fór fram hjá SAS í Kaupmannahöfn, og var flug-
e ln ágætlega flughæf á eftir.
. 10’ ðesember 1955 keypti Landhelgisgæzlan flugbátinn til
g randg®zlu-, leitar- og björgunarstarfa (skr. 9. 2. 56), og 18.
n 1956 var einkennisstöfum hans breytt í TF-RAN.
Lofthæfisskírteini flugvélarinnar rann út 12. janúar 1963 og var
ekki endurnýjað. Hún var seld til niðurrifs 1966, en hún var þá
ónýt talin, enda hafði hún fokið á bakið i stórviðri.
Hún var smíðuð 1945 hjá Consolidated Vultee Aircraft Corp.,
San Diego, Kaliforníu. Raðnúmer: 46651.
Áður en islendingar keyptu flugvélina, bar hún skrásetninguna
USN 46651.
CONSOLIDATED PBY-6A CATALINA: Hreyflar: Tveir 1200 ha.
Pratt & Whitney R-1830-92A Twin Wasp. Vænghaf: 31.70 m. Lengd:
19.12 m. Hæð: 6.43 m. Vængflötur: 130 m’. Farþegafjöldi: 5—9.
Áhöfn: 3. Tómaþyngd: 9.500—10.578 kg. Hámarksflugtaksþyngd:
13.835—14.900 kg. Farflughraði: 225 km/t. Hámarkshraði: 320
km/t. Flugdrægi: 5.000 km. Flughæð: 7.315 m. 1. flug: 1940.
ÓVÆNT SVAR
Kennarinn: Hvaða efni er í skónum þín-
um?
Pétur: Það er skinn.
Kennarinn: Af hvaða dýri er það?
Pétur: Nauti.
Kennarinn: Og hvaða skepnu er það þá
að þakka, að þú hefur fengið skóna?
Pétur: Honum pabba mínum.
ÓSKILJANLEGT
Jón: Mamma! Éta ekki stóru fiskarnir i
sjónum litlu fiskana, eins og þá, sem eru
í niðursuðudósunum?
Móðirin: Jú, það gera þeir sjálfsagt.
Jón (eftir litla þögn): Mamma! Hvernig
fara stóru fiskarnir að því að opna dós-
irnar?
45