Æskan - 01.02.1972, Síða 58
KLOKINDI MANNAPA
Vísindamenn hafa margsinnis reynt
að komast til botns í og finna mæli-
kvarða á það, hve mannlegir mannapar
geti verið. í rannsóknarstofu Yalehá-
skóla voru gerðar nokkrar tilraunir i
þessa átt og leiddu þær m. a. i Ijós, að
simpansar voru færir um að starfa með
nokkurs konar ,,táknum“, sem í þessu
tilfelli voru mismunandi litar plastskíf-
Skiðamót eru mjög vinsæl um
þessar mundir eins og endranær.
Hér sjáið þið skíðamann stökkva,
og þið getið gert tilraun til að
teikna hann. Af myndinni má sjá,
hvernig létt er að gera fallega
mynd af þessum skíðakappa.
ur (..peningar") og ef þær voru settar
rétt i sjálfsala, sem hafði verið komið
fyrir i rannsóknarstofunni, fengu þær
til þess að starfa. Simpansarnir voru
ekki lengi að finna það út, að ef þeir
settu hvíta ,,mynt“ í sjálfsalann, þá
fengu þeir grapealdin út, en ef þeir
settu bláa mynt, fengu þeir tvö grape-
aldin og ef þeir settu rauða mynt, fengu
þeir vatnsglas. Vísindamennirnir gerðu
einnig tilraun með það að láta sjálf-
salann gefa öpunum þrjár „rnyntir" i
stað hverrar einnar, sem þeir settu í
sjálfsalann, og þeir voru fljótir að skilja
það, að þá gætu þeir keypt fleiri aldin
og meira vatn. Það sýndi sig, að þegar
svona var komið, voru aparnir nákvæm-
lega jafnólikir og mennirnir eru, því að
sumir héldu áfram að draga ,,peninga“
út úr sjálfsalanum, þegar aðrir hættu
strax og þeir höfðu fengið fyrir ,,dag-
legu brauði".
JOHN LENNON, f. 9. okt.
1940 í Liverpool.
GEORGE HARRISON, f. 25.
febrúar 1943 í Liverpool.
DIANA RIGG, f. 20. júlí
1938 í Donbaster, Englandi.
CLIFF RICHARD, ,f. 14. okt.
1940 í Lucknow, USA.
56