Æskan

Volume

Æskan - 01.02.1972, Page 66

Æskan - 01.02.1972, Page 66
Texti: Johannes Farestveit. ÞÖKK FYRIR SÍÐAST Aðalsmaður einn, sem var á ferðalagi með þjóni sínum, fékk stígvélin sín einn morgun óhreinsuð og óburstuð, eins og þau höfðu verið kvöldið áður. Þegar hann fór að inna þjón- inn eftir þessu, svaraði hann að það kæmi í sama stað nið- ur, því að stígvélin yrðu óhrein aftur. Aðalsmaðurinn sagði ekk- ert, og svo var ferðinni haldið áfram. Þjónninn hafði orð á því, að hann hefði ekki fengið mat um morguninn, en þá svaraði aðalsmaðurinn: „Það kemur i sama stað niður, þú verður svangur aftur, þó að þú étir!“ JÖSSI BOLLA Teikn.: Solveig M. Sanden Komið cr bczta veður — og frí i skólanum. Snjónum hefur kyngt niður og Bjössi og Þrándur fara að reisa sér snjólms. Bjössa finnst húsið ekki nógu hátt og vill helzt liafa j>að háhýsi. „Hvernig ætlarðu að fara að þvi?“ spyr j>á Þrándur undr- andi. En Bjössi er ekki ráðalaus frekar en fyrri daginn. „Sérðu tréð jiarna? Við höfum j>að fyrir stoð.“ Þeir l>yrja að hlaða, og alltaf hækkar snjóitúsið. „Já, þú ert ekki eins vitlaus og þú lítur út fyrir að vera,“ segir Þrándur ertnislega. Þvottabjörninn þvær alltaf matinn sinn áður en hann étur hann. Hann er meira að segja svo þrifinn, að hann vill heldur svelta en að éta óþveginn mat, ef ekki er vatn nærri. En ef hann neyðist til að éta matinn óþveginn, strýkur hann af hon- um áður en hann lætur hann upp í sig. Húsið hækkar og hækkar, og ofan á hverja hæð leggja þeir nokkrar fjalir, sem mynda gólf á hverri hæð, og stiga hafa þeir líka við bygginguna. Bjössi er ekki ánægður fyrr en húsið er orðið þrjár hæðir. Þarna standa þeir ánægðir og hreyknir og horfa á snjóhöllina sína, þegar köttur kemur aðvifandi og klifrar fimlega upp stigann alla leið upp á þak. Bjössi og Þrándur koma sér vel fyrir i snjóhúsinu með kertaljós og myndablöð og ýmislegt góðgæti, sem þeir gæða sér á, en alltaf er kötturinn á ferðinni ýmist upp eða niður. Hvað skyldi hann sjá þarna uppi? Bjössi er forvitinn og lætur ekki )>ar við sitja, heldur klöngrast upp stigann. En hann er heldur þungur á sér, og þið sjáið afleiðingarnar. Þrándur steypist niður, en Bjössi nær taki á trjágrein og þar hangir hann i lausu lofti.

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.