Æskan - 01.01.1987, Blaðsíða 5
SIGURVEGARINN í SMÁ SAGNASAMKEPPNINNl
Heillaóskum rígndi!
Við slógum á þráðinn norður í land til
Rakelar til að forvitnast lítillega um
hana sjálfa og verðlaunasögu hennar.
„Ég sá auglýsingu í Æskunni og
langaði til að vera með,“ sagði hún um
aðdraganda þess að hún tók þátt í
keppninni. „Ég skrifaði söguna helg-
ina áður en skilafresturinn rann út. Ég
var ekkert sérstaklega ánægð með
hana eftir að hafa skrifað hana tvisvar
sinnum en mömmu leist vel á og hvatti
mig til að senda hana. Þannig byrjaði
þetta allt saman.“
- Gerðirðu þér miklar vonir um að
vinna?
„Nei, satt að segja gerði ég mér
engar vonir.“
- Hefur ekki heillaóskum rignt yfir
Þig?
„Jú, það virðast ótrúlega margir
hafa heyrt þetta í útvarpinu. Ég giska
á að 20-30 manns hafi hringt í mig á
Þorláksmessudag. “
- Þú hefur verið alveg í skýjunum
um jólin?
„Ég get ekki neitað því. Maður
Viðtal við
Rakel Heiðmarsdóttur
komst ekki hjá því að hugsa um þetta
stöku sinnum.“
— Hefurðu áður komið til Stokk-
hólms?
„Nei, aldrei. Ég hef aðeins einu
sinni farið til útlanda, til Danmerkur í
hitteðfyrra. Ég hlakka mikið til að
koma til Svíþjóðar."
„Er Slysið sönn saga?
„Nei, ekki get ég sagt það. Hins
vegar fékk ég hugmynd að söguþræð-
inum þegar sams konar atburður gerð-
ist í skólanum mínum. Við getum sagt
að hún sé að sumu leyti sönn.“
— Hefurðu skrifað margar sögur?
„Nei, aðeins nokkrar smásögur sem
fáir hafa fengið að sjá eða heyra. Ég
hef aðallega skrifað þær handa sjálfri
mér.“
Rakel er í Varmahlíðarskóla, í 9.
bekk. Hún hefur enn ekki ákveðið
hvort hún heldur áfram námi næsta
vetur, ætlar bara að sjá hverju fram
vindur. Helstu áhugamál hennar eru
frjálsar íþróttir og knattspyrna. Hún á
fjóra bræður en enga systur.
Að síðustu spurðum við Rakel
hvernig henni hefði liðið um jólin.
„Mjög vel!“ svaraði hún. „Ég borð-
aði mikið af góðum mat og las bækur.
Lét mér líða vel í alla staði.“
Og svo mikið er víst að ekki hafa
verðlaunin, sem hún fékk á Þor-
láksmessudag, spillt jólagleðinni.
HASAR 2 OG FLUGLEIÐA:
verðlaun. Hún heitir Karen og er eftir
Helga Snæ Sigurðsson. Við ætlum að
halda áfram að birta sögur, sem fengu
aukaverðlaun, í næstu blöðum.
Rannveig Oddsdóttir, 13 ára,
Dagverðareyri, 601 Akureyri.
Særún Harðardóttir, 14 ára,
Hvítárbakka, 801 Selfoss.
Matthildur Sigurðardóttir, 14 ára,
Ægissíðu 129, 107 Reykjavík.
Unnur Gyða Magnúsdóttir, 10 ára,
Melbæ 41, 110 Reykjavík.
Aukaverðlaun:
Eftirtaldir höfundar hlutu aukaverð-
laun fyrir sögur sínar:
Sigrún Elsa Smáradóttir, 14 ára,
Vestmannabraut 52, 900 Vestmanna-
eyjum.
Hafdís Hanna Ægisdóttir, 10 ára,
Miðvangi 77, 220 Hafnarfirði.
Sigurbjörg Þrastardóttir, 13 ára,
Esjubraut 5, 300 Akranesi.
Anna Pétursdóttir, 13 ára,
Ásabyggð 12, 600 Akureyri.
Anna Sigríður Gunnarsdóttir, 11 ára,
Yrsufelli 38, 111 Reykjavík.
Kristjana Nanna Jónsdóttir, 12 ára,
Rauðumýri 8, 600 Akureyri.
Guðbjörg Magnúsdóttir, 13 ára,
Vogatungu 28, 200 Kópavogi.
Erla Sigurðardóttir 10 ára,
Breiðvangi 3, 220 Hafnarfirði.
Fríða Oddsdóttir, 14 ára,
Dagverðareyri, 601 Akureyri.
Bjarni Gaukur Sigurðsson, 11 ára,
Árbraut 10, 540 Blönduósi.
Sigrún Erlingsdóttir, 15 ára,
Háholti 6, 210 Garðabæ.
Erna Magnúsdóttir, 12 ára,
Skjöldólfsstöðum, 701 Egilsstaðir.
Helgi Snær Sigurðsson, 12 ára,
Hjallavegi 54, 104 Reykjavík.
5