Æskan

Árgangur

Æskan - 01.01.1987, Blaðsíða 42

Æskan - 01.01.1987, Blaðsíða 42
Eyvi litli, sem þessi saga er um, er nú orðinn gamall maður. Hann fæddist á síðustu öld. Það var um haust — í sláturtíðinni eins og sagt er í sveitinni. Mamma hans og pabbi voru ung og þetta var fyrsta barnið þeirra. Fæðingin gekk illa. Og þegar þessi litli strákur fæddist loks var eins og hann vissi ekki hvort hann ætti að lifa eða deyja. Ljósmóðurinni leist ekki á blikuna. Eins og allir vissu í þá daga var stundum gripið til þess ráðs að hella brennivíni ofan í lömb sem voru að deyja úr kulda og volæði. Það hit- aði þeim. Og nú var farið eins að við strákinn. Sjálfsagt hefur mömmu hans fundist stundin löng þangað til hún heyrði barnið sitt orga í fyrsta sinn og kannski hefur það verið vegna þess sem Eyvi var alltaf strákurinn hennar - svolítið meira en hin börnin. Eftir þvf sem árin liðu stækkaði krakkahópurinn heima hjá Eyva. Strákar og stelpur fæddust, lærðu að skríða og svo að ganga. Þegar þau voru komin á annað ár bar mamma þeirra kaffirót á brjóstin á sér og lék þannig á krílin. Brjóstamjólk og kaffi- rót er ekki sérlega gott saman og krakkinn hætti að rella í mömmu sinni og fór að drekka kúamjólk og sauða- mjólk því að á þessum tíma voru ærnar mjólkaðar. Eyvi var ekki stór þegar hann ramb- aði með mömmu sinni á kvíarnar, litla rétt þar sem ærnar voru mjólkaðar. Kvíarnar stóðu undir fallegri brekku með hallandi klettum efst. Pabbi Eyva tók sig einu sinni til og sprengdi heil- mikið grjót úr klettunum með járnkarli. Síðan var hlaðin lítil girðing úr grjótinu þar sem kindurnar voru hafðar á nóttunni svo að ekki þyrfti að leita að þeim þegar átti að fara að mjólka þær á morgnana. Svona girð- ingar hétu nátthagar og voru til á öll- um bæjum. En eftir allt þetta grjótnám komu alls konar stallar og syllur og stigar í klettana og þar var gaman að leika sér. Þar uxu burknar í agnarlitlum skútum og stórir brúskar af ljónslappa sem stundum var hafður í seyði og það drukkið við lasleika. Og þegar rigndi varð krökkt af stórum fallegum snigl- um. Þeir röðuðu sér á steinfletina eins og mektarbokkar og sperrtu augun út í loftið. Eyvi og Jesús í gamla daga var lítið til af leikföng- um og bókum. í staðinn voru krökk- unum sagðar sögur um huldufólk og vættir, drauga og útilegumenn - og um Guð og Jesúm og góðu englana sem voru vísir til að hlaupa undir bagga með góðum og hlýðnunr krökkum. Eyvi litli var ekkert hissa á öllum þessum sögum. Hann sá oft sjálfur ljós í stórum klettum sem voru nokkuð langt frá bænum og vissi að þá var huldufólkið búið að kveikja hjá sér. - eftir Steinunni Eyjólfsdóttur, Stykkishólmi 42
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.