Æskan

Árgangur

Æskan - 01.01.1987, Blaðsíða 10

Æskan - 01.01.1987, Blaðsíða 10
Kristján Sigmundsson í opnuvidtali Málin rædd á vinnustað. „Það er fyrst og fremst farið eftir því hvernig þeir hafa staðið sig í íslands- mótinu og svo skiptir leikreynslan miklu máli. Það er oft sagt að markmaður sé fimmtíu prósent af liðinu. Hann skiptir mjög miklu máli eins og fólk, sem eitthvað þekkir til handknattleiks, getur getið sér til um. Hann er síðasta hálmstráið þegar allar aðrar varnir bregðast.“ — Er það tilviljun þegar markvörð- um tekst að verja? „Nei, síður en svo. Því fylgja miklar vangaveltur að standa á marklínunni. Ég tek vel eftir hvernig leikmenn leika. Sumir halda að það sé einhver „grís“ að standa sig vel í marki en það er misskilningur. Stundum sjáum við ekki boltann og þá getum við verið heppnir að ná að verja en þá njótum við kannski góðs af því að þekkja leik- manninn og vita hvernig hann skýtur og eins hvaða horn hann velur oftast." í framhaldi af þessu fræðir Kristján okkur um það hvernig austurblokkin (lið frá austantjaldsþjóðum) skipu- leggur leiki sína. Hún vinnur þannig að markvörður tekur annað hornið en varnarmenn hitt. Þetta er auðvitað ekki hægt nema markvörðurinn geti treyst vörninni mjög vel. „Við markmennirnir höfum stund- um í flimtingum að það væri munur ef 10 við þyrftum bara að hafa áhyggjur af öðru horninu," bætir Kristján við og hlær. - Eru strákarnir í landsliðinu gam- ansamir? „Já, og eins er alltaf létt yfir þessum ferðalögum okkar. Nýliðarnir fá oft að vita af okkur. Það er nánast regla að hrekkja þá ofurlítið. Þeir hafa allir orðið fyrir því að hella úr fullum salt- stauk yfir steikina sína vegna að búið var að losa lokið. Þegar þeir hafa skafið mesta saltið af steikinni hafa þeir fengið sér pipar og nákvæmlega það sama gerst við mikinn hlátur við- staddra. Það hafa fleiri strákapör verið not- uð. í stórborgum er mikið af stórum, vígalegum hundum. Oft höfum við læðst aftan að nýliðunum, klipið þá fast í hælana og gelt illilega. Það verð- ur ekki neitt lítið fum á þeim þegar þeir átta sig á því að einn hundanna er að ráðast á þá. Viðbrögðin verða sprenghlægileg eins og við er að búast.“ — Geturðu nefnt okkur einhverja minnisstæða landsleiki af þessum 134 sem þú hefur leikið? Kristján veltir vöngum litla stund en segir svo: „Ég held að það fari ekkert á milli mála. Það eru leikirnir á móti Rúmen- um og Tékkum á HM í Sviss í fyrra- sumar. Ég var varamarkmaður í þess- um leikjum og lék lítið sem ekkert en það var æðisleg tilfinning að fylgjast með þeim og finna stemmninguna í húsinu.“ Við höldum áfram að tala um heimsmeistarakeppnina og það kemur fram hjá Kristjáni að andrúmsloftið í búðum landsliðsins hafi verið mjög rafmagnað næstu tvo sólarhringa eftir fyrsta leikinn í mótinu gegn Suður- Kóreumönnum. Strákarnir voru mið- ur sín eftir tapið því að flestir töldu að einu möguleikar liðsins til að komast í milliriðil fælust í því að sigra Suður- Kóreumenn. Bogdan þjálfari beitti leikmennina heraga í refsingarskyni og þeir fengu ekki einu sinni að grípa í spil sér til dægrastyttingar. Þeir not- uðu því tímann til að stappa stálinu hver í annan. Sú uppörvun skilaði góð- um árangri því að næstu tveir leikir á móti Rúmenum og Tékkum unnust og þeir skiptu sköpum fyrir okkur eins og alþjóð man. „Já, það er stutt á milli gleði og sorgar í handknattleiknum,“ segir Kristján í framhaldi af þessu spjalli okkar. „Þú veist í raun ekki hvernig leikur endar fyrr en dómari flautar til leiksloka. Við höfum mörg dæmi þess hvernig úrslit hafa umsnúist á síðustu sekúndunum. Af þessum sökum leika handboltamenn undir miklu álagi. Sér- hver mistök á lokamínútum geta verið afdrifarík.“ Félagsskapur og fcrðalög „Handboltinn gefur mér ótrúlega mikið. Ég fæ gífurlega útrás við að stunda hann. Svo fær maður mörg tækifæri til að ferðast. Ég hef komið til flestra Evrópulanda, meðal annars til nokkurra landa í Austur-Evrópu. Það Með opinn faðm mót þrumuskoti. (Ljósm.: Mbl/Einar Falur)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.