Æskan

Árgangur

Æskan - 01.01.1987, Blaðsíða 11

Æskan - 01.01.1987, Blaðsíða 11
er alltaf farið í lítils háttar skoðunar- ferðir í tengslum við þessa leiki ytra. Svo hefur þessi góði andi og félags- skapur í handknattleiknum mikið að Segja fyrir mann.“ - Eins og fram hefur komið f spjallinu fara allar tómstundir þínar í að æfa eða keppa í handknattleik. Hvað um fjölskylduna? „Ég hef verið heppinn með það hvað konan mín hefur sýnt þessu mikinn skilning. Mér hefur gengið vel t>æði hjá Víkingi og landsliðinu og það réttlætir kannski helst allan þann tíma sem hefur farið í þetta. Á meðan gæf- an er manni hliðholl er erfitt að stökkva í burtu.“ Kona Kristjáns heitir Guðrún Her- dís Guðlaugsdóttir. Þau eiga einn son, Sigmund 3ja ára. Hann er byrjaður að tara á völlinn með mömmu sinni til að sjá pabba. Hann hefur meira að segja °rðið fyrir því að meiða sig á æfingu hjá honum. f>á var hann að leik með bolta úti í horni og tognaði í fingri svo aö það varð að setja á hann spelku. fabbi hans hefur líka meitt sig einu sinni en þó hefur hann langtum fleiri leiki að baki. Hann meiddist á ökkla í B-keppninni í Hollandi 1982 og átti í þeim meiðslum í nokkra mánuði. Við spyrjum Kristján næst að því hvort hann og fleiri handknattleiks- menn dreymi um að leika með liðum erlendis. „Ég held að þessi draumur blundi innst inni í öllum handknattleiks- mönnum. Þetta er líka aðaláhugamál okkar og því ekki óeðlilegt að okkur dreymi um að geta lifað af íþróttinni. Hvað mig varðar þá held ég að ég sé kominn yfir þetta. Ég hef meira að segja fengið atvinnutilboð frá spænsku félagi en hafnað því. Það var þegar Víkingur tók þátt í Evrópukeppni á Spáni. Ástæðan var einkum sú að ég var hálfnaður í námi og svo hefði kon- an mín ekki getað hlaupið auðveldlega í vinnu þarna ytra.“ — Verðurðu aldrei leiður á þessum þrotlausu æfingum og keppni? „Jú, það koma slík tímabil hjá öllum handboltamönnum, einkum seinni hluta vetrar. En við komumst yfir þetta; þetta líður hjá og eftir gott sum- arleyfi er mann farið að kitla í fingur- gómana aftur.“ — Hvernig gengur þér að sofna á kvöldin eftir erfiða leiki? „Ekki nógu vel. Streitan er lengi að fara úr mér og ég á bágt með að slíta hugsunina frá leiknum. Ég skoða hann aftur og aftur í huganum. Stundum sofna ég ekki fyrr en um tvöleytið en vakna svo sprækur morguninn eftir.“ - Hvað tekur við þegar þú hættir í handknattleiknum? „Ætli ég bæti ekki fjölskyldunni upp þann tíma sem ég hef verið fjarvistum frá henni. Væntanlega eigum við eftir að eignast fleiri börn og það verður nóg að gera við að hlúa að þeim í uppeldinu. Ég býst jafnvel við að snúa mér að innanhússfótbolta til að halda mér í einhverri æfingu.“ — Kvíðir þú því að hætta? „Nei, alls ekki. Ég set markið hátt þangað til og hætti svo ánægður." - Finnst þér hlúð nægilega vel að yngstu flokkunum? „Ég held að forystumenn íþróttafé- laga séu að gera sér æ meiri grein fyrir mikilvægi þess að byggja upp sterka yngri flokka. Það skilar sér í betri ár- angri en ella hjá meistaraflokki. Nú í seinni tíð eru gerðar meiri kröfur um góða þjálfara fyrir yngri flokkana en ekki bara að fá einhvern til að þjálfa þá, jafnvel kauplaust.“ Við Kristján höfðum setið að spjalli á skrifstofu hans í tvær klukkustundir og það var mál að linnti. Að síðustu spurðum við hann hvort hann vildi gefa ungum handknattleiksunnendum einhver ráð. „Já, ég vil hvetja þá til að leggja góða rækt við íþrótt sína. Reglusemi hefur mjög mikið að segja ef árangur á að nást. Félagsþroski barna eykst mik- ið við að stunda íþróttir af einhverju tagi og það er vissulega af hinu góða. Foreldrar eru líka ánægðir ef þeir vita af börnum sínum í heilbrigðu tóm- stundastarfi,“ sagði Kristján Sig- mundsson, einn af máttarstólpum landsliðsins, að síðustu. Viðtal: Eðvarð Ingólfsson Myndir: Heimir Óskarsson 11
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.