Æskan - 01.01.1987, Page 27
Leikarakynning
rATHLEEN
TEENEE
I síðasta blaði skrifaði ég um leikarann
Edda Murphy en núna ætla ég að segja
frá leikkonunni Kathleen Turner sem
hefur hlotið skjótan frama í banda-
nska kvikmyndaheiminum. Áður en
hún lék í myndinni Ævintýrasteinninn
(Romanching The Stone) þekktu hana
fáir. En þegar hún hafði þrammað um
skóga Suður-Ameríku, rennt sér niður
hlíðar í aurskriðu og ferðast fram og
aftur með snarbrjáluðum leiðsögu-
manni (Michael Douglas) varð hún
heimsfræg.
Efnisþráður Ævintýrasteinsins er að
öðru leyti þessi: Rithöfundurinn Jóna,
sem Turner leikur, er nýlega búin að
senda frá sér nýjustu.ástarsögu sína í
hókarformi þegar hún kemst að því að
systur hennar er haldið í gíslingu hjá
mönnum sem vilja að Jóna fari til
Suður-Ameríku til að ná í gimstein. Á
leiðinni villist hún og fer í ranga rútu.
Þar kynnist hún leiðsögumanninum
Jakobi (Michael Douglas) sem langar
til að verða hænsnabóndi. Eftir að
hafa ferðast dálítið saman verða þau
astfangin og þau lenda í ýmsum ævin-
týrum í Suður-Ameríku. Þetta er
sóguþráður myndarinnar í megin-
dráttum.
Ljóshærða fegurðardísin Kathleen
Turner fæddist 19. júní 1956 og er því
þrítug. Hún fæddist í Springfield í
Missúrí í Bandaríkjunum. Síðar flutt-
*st hún með fjölskyldu sinni til Kan-
ada, Kúbu og Venesúelu. 14 ára
heillaðist hún svo af leiklistinni að hún
Vlldi ekki verða annað en leikari. Fyrsta
hvikmyndin, sem hún lék í, hét í
hita nætur (Body Heat). Þar lék hún
glæpakvendi. Mótleikari hennar var
fnginn annar en Óskarsverðlaunahaf-
inn William Hurt. Næsta mynd hennar
hét Maðurinn með heilana tvo (The
Man With Two Brains). Hún hlaut
ekki eins góðar viðtökur og síðari
myndin.
Árið 1984 leit Turner inn á skrif-
stofu Mikkjáls Douglasar og tilkynnti
aö hún talaði spænsku reiprennandi
ÞVl að hún vissi að næsta mynd hans,
Ævintýrasteinninn, yrði tekin á Spáni.
^ouglas heillaðist af útliti hennar og
hún var ráðin. Síðar sama ár lék Turn-
er í annarri mynd (A Breed Apart) en
hún heppnaðist ekki eins vel. Næsta
mynd hennar var framleidd af Ken
Russel og hét Ástríðuglæpur (Crimes
of Passion). Þar lék hún Bláu Sínu sem
er klæðskeri á daginn en gleðikona um
nætur. Á eftir henni kom svo Heiður
Prizzanna (Prizzi‘s Honour) en sú
mynd var tilnefnd besta mynd ársins
1985 og Jack Nicholson, sem fór líka
með aðalhlutverk, var tilnefndur besti
leikari sama árs. Ekki komu þó
Óskarsverðlaunin í hlut myndarinnar
en það var engu að síður heiður að
hún var tilnefnd.
í heiðri Prizzanna leikur Turner
leigumorðingja, Irene Walker, sem
lendir í því að leigumorðingi hjá ann-
arri mafíu verður ástfanginn af henni
(Jack Nicholson). Nýjasta mynd Turn-
er er svo Nílargimsteinninn. Einn
kvikmyndagagnrýnandi sagði um
hana:
„Leikstjórinn, Lewis Teague, hefur
litla stjórn á myndinni. En gaman var
að sjá Kathleen Turner verða að einni
bestu leikkonunni vestra. Svo má
Michael Douglas, aðalleikari og fram-
leiðandi myndarinnar, halda áfram að
framleiða myndir. Hann hefur þegar
gert ágætar myndir eins og
Gaukshreiðrið, Ævintýrasteininn,
Heiður Prizzanna og í hita nætur. Það
eru allt þriggja stjörnu myndir eða
meira.“
Við látum þetta nægja að sinni um
bandarísku leikkonuna Kathleen
Turner.
I rnsjón: Gísli Magnússon 12 ára
27