Æskan - 01.08.1988, Blaðsíða 25
Líður illa------------
Elsku Æskupóst ur!
Mér skilst að það megi tala um
Vandamál við þig. Ég er 15 ára stelpa
°8 á við tvö vandamál að stríða. Ann-
a” þeirra tengist mataræði mínu. Ég
°rða allan daginn hvort sem ég er
sv°ng eða ekki - en samt fitna ég
v°rki né stækka neitt að ráði (ég er
mJög lágvaxin). Er þetta eðlilegt?
Hitt vandamálið er það að ég held
a° ég sé haldin þunglyndi. Köstin
standa ekki nema í nokkrar mínútur,
stUndum klukkutíma. Þau koma yfir-
eitt þegar mér gengur eitthvað í
°“ag- Það hefur jafnvel gengið svo
®ngt að ég hef reynt að drekkja mér í
sðkarinu. Á ég að leita til læknis eða
gengur þetta yfir?
^eð von um svar,
Kleópatra.
Kcera Kleópatra!
Það er ekki alltaf tekið út með
%*}dinni að vera unglingur eins og
Pu hefur þegar fengið að reyna.
Mörg vandamál skjóta upp kollin-
Urn ~ og það er ósköp eðlilegt því að
a þessu aldursskeiði þroskast ung-
’J'enni mikið. Við erum að kveðja
ernskuárin og verða fullorðin.
áttúran œtlar okkur þetta hvort
Sefn okkur líkar betur eða verr.
t-LIR unglingar verða varir við
Salrcenar breytingar á þessu skeiði
margar spumingar, sem þeir
nnna fá svör við, koma upp. Þú
Setur verið viss um að nœr allir
Unglingar glíma við svipuð „vanda-
mal“ 0g þú; hafa áhyggjur af útliti
S]nu og vaxtarlagi - og finna til
tfsleiða sem ef til vill á fyrst og
fremst rcetur í líffrceðilegum og sál-
rcenum breytingum.
Ht'á höldum að þú þurfir alls ekki
aö hafa áhyggjur af fyrra atriðinu
Sem þú nefnir. Atorkusamir ungl-
'ngar þurfa mikla orku og eru því
Slfellt að borða án þess að nokkuð
Se}jist á þá. Hvort þú ert óeðlilega
aSvaxin eða ekki getum við ekki
á&mt um því að við höfum ekki séð
Pig. Hceð fólks rceðst oft af erfðum;
v°rt afar og ömmur eða foreldrar
Seu lágvaxin eða hávaxin. En samt
geta systkini verið misjafnlega há;
Pe«a er SV(J flókið samspil erfða-
Pátta. Ekki er ólíklegt að nokkuð
eiS1 eftir að togna úr þér enn; það er
misjafnt hvencer ungmenni
®íta að vaxa. Mörg halda áfram
a° stcekka fram yfir tvítugt.
^u gefur okkur mjög takmarkað-
ar uPplýsingar um þunglyndi þitt og
er erfitt að segja nokkuð til um
það. Annars grunar okkur vegna
orðalagsins „þegar mér er eitthvað í
óhag“ að þú, eins og svo margir
unglingar og fullorðnir, gerir of
miklar kröfur til þín; þess vegna
verðir þú döpur þegar á móti blces.
Reyndu að sigrast á þessum óþcegi-
legu tilfinningum, til dcemis með
því að reyna að gera það besta úr
því sem þér finnst hafa mistekist
hjá þér og reyna að horfa á jákvceð-
ar hliðar. Gamalt orðtak segir að
margur maðurinn vaxi af vanda
sínum, þ.e.a.s. efhann lcerir að tak-
ast á við hann. Öllum verða á mis-
tök í lífinu, stór og smá; það er bara
mannlegt. Gleymdu þvi ekki! Við
erum langt frá því að vera fullkom-
in.
Ef hugarangur þitt truflar daglegt
líf þitt verulega og þú átt ekki gott
með að rceða það við aðra, t.d. for-
eldra eða vini, cettirðu að leita til
sálfrceðingsins í skólanum þínum.
Ef enginn starfar þar gœturðu t.d
leitað til Unglingaráðgjafarinnar
(sjá símaskrá). Hún tceki þér vel.
Rithönd þín er falleg og ákveðin
- og bendir til þess að þú sért bceði
greind og hafir góða sköpunargáfu.
Gangi þér allt í haginn!
Félagslífið á
Vopnafirði
Kæra Æska!
Félagslífið hér á Vopnafirði er
sæmilegt. Þó fmnst mér að það
mættu vera fleiri böll fyrir 13 ára og
upp úr eða fyrir 13-30 ára.
í lokin bið ég um veggmynd með
Billy Idol.
Ein á Vopnó.
Veggmynd af Billy Idol fylgdi
einu tölublaða Æskunnar fyrir þrem
árum.
-------Tvær kveðjur-----------
Hæ, hæ, kæra Æska!
Ég á heima í Danmörku og langar
til að senda bestu vinkonum mínum í
Hafnarfirði kveðju. Þær heita Þórey
Edda, Karlotta, Eva og Hrönn. Einn-
ig sendi ég bekknum mínum, 4.-K,
og kennaranum mínum kærar kveðj-
ur. Að lokum fær vinkona mín, Sif á
Kirkjubæjarklaustri, bestu kveðjur.
Gunna.
Kæra Æska!
Mig langar til að senda nemendum
4.-S.S í Varmárskóla bestu kveðjur
og ekki síst Siggu, Þóru og Rebekku.
Mig langar einnig til að senda sundfé-
lagi U.M.F.A í Mosfellsbæ, bæði
ungum og stálpuðum keppendum og
kennaranum, Halldóri Ragnarssyni,
kærar kveðjur.
Vonandi verður þetta birt.
Vilhelmína Eva Vilhjálmsdóttir.
-Appelsínugulgrænt-
hár. .!
Elsku, kæra Æska!
Við erum hér tvær níur frá Norð-
urlandi. Okkur langar til að lýsa
draumaprinsinum okkar en hann er
mesti töffarinn á Suðurlandi. Hann
er með appelsínugulgrænt hár og 305
sm á hæð með köflótt augu. Hann er
ofsalegt krútt með Gosanef og gengur
í notuðum fötum af Billy Idol og Lísu
Bonet. Hann stundar hnupl og annað
þaðan af verra. Hann ekur alltaf um í
kassabíl og heitir Dósóþeus.
íris og Bogga.
----------Bra nda ri--------------
Maður kom heim úr vinnunni og
fann konu sína háskælandi inni í stof-
unni.
„Hvað er að, elskan mín?“
„Hún mamma þín móðgaði mig al-
veg stórkostlega.“
„Hvernig má það vera? Hún á
heima fyrir norðan.“
„Ég veit það vel en það kom bréf
til þín frá henni í dag. Ég opnaði það
og las.“
„Og hvernig móðgaði hún þig?“
„Hún skrifaði neðst í hornið: „P.s.
Alla mín. Gleymdu nú ekki að láta
Lúlla fá bréfið!“ “
Frá Austfirðingi