Æskan

Árgangur

Æskan - 01.08.1988, Blaðsíða 42

Æskan - 01.08.1988, Blaðsíða 42
Kvennapopp sækir á 1 (hélt hljómleika hérlendis í fyrra rfJl áður en hún náði almennum vinsæl um) og nú síðast Tracy Chapman. I’ær semja músík sína sjálfar og flytja hana látlausan og persónulegan hátt. JaW' ; framt eru söngtextar þeirra mjög ú0 rænir og draga upp skarpa mynd a skynjun þeirra og umhverfi. Frumherjinn Jóhanna Baez Á miðjum sjöunda áratugnum þóttu það veruleg tíðindi að mexíkönsk- bandarísk stúlka, Jóhanna Baez, söng frumsamda söngva við eigin gítarundir- leik. Fram til þess tíma voru konur at- kvæðalitlar í söng og sungu lög samin, útsett og spiluð af körlum. í upphafi var Jóhanna að vísu ein í hópi læri- sveina þjóðlagapopparans Woodys Gut- hries (Kingston Trio, Tom Paxton, Phil Ochs, Peter-Paul & Mary, Dave Van Ronk o.fl.). Þá flutti hún lög eftir Woody, Pete Seeger og þáverandi sam- býlismann sinn, Bob Dylan, auk gam- alla þjóðsöngva. Þannig komst hún inn á vinsældalistana. Þegar þeim áfanga var náð hóf hún að semja eigin söngva og útsetja fyrir rokkhljómsveitir. Þá lenti hún í hópi þeirra sem leiddu hippabylgjuna, s.s. Jimi Hendrix, Sant- ana, Doors, Zappa, Arlo Guthrie og Jefferson Airplane/Starship. Sem einn af leiðtogunum var Jóhanna eitt aðal- númer Woodstock-hátíðarinnar 1969, fjölmennustu og merkustu popphljóm- leika heims fram til 1985 er Bob Geldof stóð fyrir Hjálpum þeim/Live Aid tón- leikunum. í kjölfar vinsælda Jóhönnu Baez fylgdi bylgja söngkvenna sem fluttu eigin lög og útsetningar (Janis Ian, Joni Mitchell o.fl.). Ragnhildur og Björk Þessi bylgja sjálfstæðra músíkkvenna náði ekki inn í bárujárns- og diskó- sveiflur áttunda áratugarins heldur virt- ist ætla að fjara út. Þá kom pönkið og nýbylgjan til sögunnar 1976-1977. Gam- alt gildismat var endurskoðað og í leit að nýjum áherslum beindist athyglin að sjálfstæðum nýrokk-konum, s.s. Nínu Hagen, Siuxsie í The Banshees, Chriss- ie Hynde í Pretenders, Patti Smith, Ragnhildi Gísladóttur og Björk Guð- mundsdóttur. Ragnhildur og kvenna- hljómsveit hennar, Grýlurnar, er líka dæmi um að í nýrokkinu urðu konur gjaldgengar sem hljóðfæraleikarar. Hljómsveitir eins og P.I.L., Talking Zeena Parkins, hljómbordsleikari Skeleton Heads, Gang of Four, Skeleton Crew og Etron Fou Leloublan hafa skartað kvenhljóðfæraleikurum (tvær síðast- nefndu sveitirnar héldu tónleika hér- lendis 1985) og þrír af fjórum liðsmönn- um News from Babel eru kvenmenn. Nýjasti liðsmaður Sykurmolanna, hljómborðsleikarinn sem leysti Einar Melax af, heitir Margrét Örnólfsdóttir og spilaði áður með Risaeðlunum. Þannig að nú eru tveir af sex liðsmönn- um Sykurmolanna kvenkyns. Þeir semja músík sína allir í sameiningu. 5uzanna Vega og Tracy Chapman Nýlega styrktu konur stöðu sína á poppvettvangnum enn. Þá komu fram á sjónarsviðið með stuttu millibili þrjár hæflleikaríkar bandarískar músíkkon- ur, Suzanna Vega, Michelle Shocked ill Suzanna Vega Suzanna Vega varð fyrst þeirra þriggja til að ná heimsathygli. Það var reyndar að hluta sem gestasöngvarl fyrri plötu hljómsveitarinnar Smither eens (sem hefur komið fram á tvennum hljómleikum hérlendis). En einkapk’1111 Suzönnu stóðu vel fyrir sínu þegar ‘° fór að hlýða á þær. Michelle Shocked Michelle Shocked naut góðs af vl^ sældum Suzönnu. Þeim var óspart 1 saman, bæði af gagnrýnendum og le mönnum. Vinsældir Michellu voru s tryggðar um síðustu jól þegar bresk3 poppblaðið NME valdi hana í hóp V1 sælla poppara til að syngja og spíla 0 Bítlanna inn á plötu til fjárstuðnnm Barnahjálp. Lög af plötunni (..Wfl Little Help From My Friend nie Wet, Wet, Wet og „She’s Leavuiíj Home“ með Billy Bragg) sátu saman í efsta sæti breska vinsælda lS ans. Platan seldist óhemju vel og 'a væn auglýsing fyrir Michellu. fÆSKAH
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.