Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.08.1988, Qupperneq 39

Æskan - 01.08.1988, Qupperneq 39
Krístín Steinsdóttir endursagði Sláturtíð í gamla daga var sláturtíð með allt öðrum hætti en hún er nú. Núna er algengt að krakkar tali um nýjan blóðmör sem svart slát- Ur og lifrarpylsu sem brúnt slátur °§ vilji hvorugt borða. Svið eru á borðum flestra a.m.k. einu sinni á ^austi og sömuleiðis hjörtu og nÝru. Kjötmeti er unnið, sett í ^ystikistur og borðað nýtt nema t>að sem reykt er úr hangikjöt. Lítið er um að menn borði súran mat nú orðið nema þá helst roskið fólk. Á þorra sést þó súrmatur á borðum margra til hátíðabrigða. Sláturtíðin var mikill annatími í 8amla daga. Þá var verið að útbúa mat til alls vetrarins, jafnvel árs- ms. Ef lítið var um salt var mest af kjötinu reykt. Það var líka ^engt upp og látið þorna en þurrkaða kjötið vildi úldna. Best bótti að salta kjötið en oftast var *iög erfitt að útvega salt, sérstak- ^ega fyrir þá sem bjuggu langt frá ^aupstað. Konur gerðu slátur úr innmat kindanna og nýttu sér allt sem þær gátu. Oft var erfitt að útvega mjöl til að setja út í blóðið og þá notuðu þær fjallagrös í staðinn. Til gamans eru hér nokkrar teg- undir matar sem þóttu herra- mannsmatur í þá daga: Lifrin var soðin og etin ný en lungun voru soðin og sett í súr. Garnirnar voru hreinsaðar, fléttaðar saman og súrsaðar. Sviðin voru látin bíða. Oft voru þau farin að úldna þegar farið var að vinna við þau en það þótti mörgum bara betra. Þau voru borðuð köld í þá daga eins og oft er gert núna. Heilinn var soðinn, stappaður með salti og þótti herramannsmatur. Á sum- um bæjum voru svið líka súrsuð. Lappir voru alltaf sviðnar og lagð- ar í súrt. Þið sjáið að ýmislegt má nýta og matbúa á annan hátt en gert er núna. Og nú fer sláturtíðin í hönd. Hvernig væri að taka þátt í henni og koma með uppástungur um vinnsluaðferðir?

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.