Æskan - 01.02.1989, Qupperneq 3
Forsíðumyndina tók Hcimir óskarsson — af Elísabct Estcr, Elsý, Gísla, Nolla, Sigríði Þórdísi og Ægi Þór.
Frá
ritstjórum
Kœru lesendur!
Ósjaldan birtast í Æskunni viðtöl viðfólk sem eitt-
hvað hefur afrekað - sigrað í íþróttakeppni eða
hlotið verðlaun í samkeppni.
í þessu tölublaði er rætt við tvær stúlkur. Önnur
þeirra, Kristín Loftsdóttir, hlaut íslensku bama-
bókaverðlaunin 1988, hin, Lilja María Snorradóttir,
vann til gullverðlauna og tveggja bronsverðlauna á
Ólympíuleikumfatlaðra í Kóreu ífyrrahaust.
Að baki þessum árangrí liggja ríkir hæfileikar og
mikil vinna, þrotlausar sundæfingar Lilju Maríu og
stílæfingar Kristínarfrá barnsaldri.
Afrek eru ólík og af ýmsum toga. Það krefst mikils
að æfa gang með gervifæti, að vinna bug á óttatil-
fmningu og þunglyndi, að standa keikur þrátt fyrir
ertni, stríðni, einelti. Það krefst einnig mikils affólki
að velja þá leið sem það telur réttasta, að fylgja
sannfæríngu sinni óháð því sem aðrír gera. Afrek er
að standa með þeim sem veist er að fyrír enga sök,
gegn hópnum, og hnikast hvergi. Afrek er að standa
gegn öllu sem valdið getur öðrum sáríndum, óham-
ingju og þjáningum.
Allt þetta má kalla afrek þó að hvert þeirra sé með
sínum hætti, sum meirí en önnur. Með því að benda
á þetta er ekki gert lítið úr afrekum sem komast í há-
mæli, aðeins lögð áhersla á að oft eru afrek unnin í
kyrrþey. Við getum öll unnið eitthvert afrek - veríð
hjálpfús, heiðarleg og sönn. Að sjálfsögðu viljum við
kosta kapps um það.
Með kærrí kveðju,
Kalli.
Viðtöl og greinar
4 „Þú kemur með pening heim!“
rætt við Lilju Maríu Snorradóttur,
gullverðlaunahafa á Ólympíuleikum fatlaðra
12 Verum viðbúin!
Fjallað um verkefni skáta
og Kívanis-hreyfingarinnar
32 „Gamall bernskudraumur var að rætast,"
segir Kristín Loftsdóttir, 19 ára verðlaunahöfundur.
Sögur
8 Tíu tröllabörn í skógi
16 Galdrabrögð og geimverur
22 Minning um kött
30 Kóngurinn kemur í heimsókn
33 Fugl í búri
36 Maðurinn sem alltaf var að flýta sér
48 Samviskusafnarinn
Þættir
10 Æskupósturinn
21 Okkar á milli
24 Æskuvandi
29 Úr ríki náttúrunnar
38 Vísindaþáttur
40 Aðdáendum svarað: Jóhann G. Jóhannsson
44 Poppþáttur
Ýmislegt
15 Lestu Æskuna? - Ný getraun
26 Spurningaleikur
43/50 Pennavinir
53 Kátur og Kútur
18/19/51 Þrautir - 35 Við safnarar - 54 Verðlaunahafar
Skrifstofa er að Eiríksgötu 5, 3. hæð.
Sími ritstjóra er 10248; á afgreiðslu
blaðsins 17336; á skrifstofu 17594.
Áskriftargjald jan.-júní ’89: 1690 kr. (5 blöð)
(Hækkun samkvæmt leyfi Verðlagsstofnunar)
Gjalddagi er 1. mars. Áskriftartímabil
miðast við hálft ár. Verð í lausasölu er 375 kr.
Póstáritun: Æskan, pósthólf 523, 121 Reykjavík.
3. tbl. 1989 kemur út 5. apríl.
Lilja María Snorradóttir - bls.-4
Aðdácndum svarað - bls. 40
Poppþáttur - bls. 44
Ritstjórar:
Karl Helgason (ábm.), heimas. 76717
Eðvarð Ingólfsson, heimas. 641738
Teikningar: Guðni Björnsson
Útlit, umbrot og filmuvinnsla: Offsetþjónustan hf.
Litgreiningar: Prentmyndstofan hf.
Prentun og bókband: Prentsmiðjan Oddi hf.
Útgefandi er Stórstúka íslands I.O.G.T.
Æskan kom fyrst út 5. október 1897.
ÆSKAU 3