Æskan

Árgangur

Æskan - 01.02.1989, Blaðsíða 46

Æskan - 01.02.1989, Blaðsíða 46
U2 voru nokkuð lcngi að ná verulcgum vinsældum cf miðað er við nýrokksveitir þessara ára, Clash, Sex Pistols o.þ.h. T.a.m. komu aðeins 9 manns á hljómleika U2 í London fyrir rúmum 9 árum. Fyrsta plata þeirra, „U23“, seldist í svo fáum eintökum að strax var hætt að dreifa henni. Síðar tókst umboðsaðilum þcirra að fá þessa plötu afmáða af plötulista U2 á þeirri forsendu að einvörðungu hefði verið um kynningarplötu (demó) að ræða. Þó var staðið að útgáfu plötunnar á nákvæm- lega sama hátt og um alvöruplötu væri að ræða. Auk þess hefur aldrei tíðkast að fá- tækar hljómsveitir gefi út kynningarplötur á þennan hátt. Vaninn er að gefa út kynn- ingarsnældur merktar „demo“í bak og fyrir. Og þær cru ekki settar á almennan markað heldur dreift ókeypis til útvarps- stöðva, hljómlcikahaldara o.s.frv. Að öðru lcyti svipar risaskrefum U2 upp vinsældalista til sigurgöngu Sykur- molanna. Bresku poppblöðin kölluðu U2 „framtíð rokksins" þegar fyrsta opinbera alvöruplata þeirra kom út, „Boy“ 1980. Skallapoppvinsældalistarnir sniðgengu U2 framan af en þeir urðu fljótt fyrirferðar- miklir í bresku poppblöðunum og stóðu sig vel í vinsældakönnunum. (Það táknar að kvertettinn hefur notið ómældrar virð- ingar umfram vinsældir.) Útvarpsstöðvar um allan hinn vestræna heim voru röskar að spila lög eins og „Gloría" með U2 upp úr 1981. Þriðja alvöruplata U2, „War“, náði 1. sæti breska vinsældalistans. Um svipað leyti voru lög þeirra að verða fyrirferðar- mikil í bandarískum háskólaútvarpsstöðv- um. Tveimur árum síðar urðu þeir óum- deilanlega sigurvegarar á „Hljómleikum aldarinnar", „Live Aid“, sem var sjón- varpað til tugmilljóna manna um víða ver- öld. Dagskráin var fólgin í poppmúsík fluttri af Bob Dylan, Paul McCartney, Joan Baez, David Bowie, Phil Collins og fjölda annarra vinsælustu poppara heims auk sigurvegaranna, U2. 1987 náðu þeir stöðunni „vinsælasta rokksveit heims" þegar þeir sendu frá sér plötuna „Joshua Tree“. Af henni náðu tvö lög, „With Or Without You“ og „I Still Havn‘t Found“, 1. sæti bandaríska vin- sældalistans. Nokkur önnur lög af plöt- unni náðu einnig hátt á vinsældalista. Með kvikmyndinni „Rattle & Hum“ og samnefndri plötutvennu virðist U2-kar- tettinn ætla að halda stöðu sinni sem vin- sælasta rokksveitin áfram. Plötulisti U2 lítur þannig út: Boy, 1980 October, 1981 War, 1983 Under A Blood Red Sky, 1983 The Unforgettable Fire, 1984 Joshua Tree, 1987 Rattle & Hum, 1988 Til viðbótar hafa einstakir liðsmenn U2 komið fram á nokkrum plötum án félaga sinna í U2. Þar ber hæst þátttaka Bonos í plötunni „Sun City“. Þar syngur hann citt lag við undirleik Rolling Stones og annað lag syngur hann með Brúsa Springsteen, Gil Scott-Heron, Dylan o.fl. Einnig komu U2 skemmtilega á óvart í haust er leið er þeir fluttu lagið „Jesus Christ" eftir Woody heitinn Guthrie á sérstakri minn- ingarplötu sem Brúsi Springsteen, Pete Seeger o.fl. gerðu um Woody. Póstáritun U2 er: U2 WORLD SERVICE/PROPA- GANDA, P.O. Box 61, Liverpool L69 8 BB, Eng- land. Póstáritun DD er: DURAN DURAN P.O. Box 600, London SW 18 1 EN, England. Róbert Smith, söngvari Cure Plötulisti Cure er þannig: 3 Imaginary Boys, 1979 Faith, 1980 17 Seconds, 1980 Japanesc Whispers, 1980 Pornography, 1982 Boys Don‘t Cry, 1983 Live, 1984 The Top, 1984 The Hanging Garden, 1985 Standing On A Beach, 1986 Kiss Me Kiss Me Kiss Mc, 1987 Þegar þetta er skrifað hafa borist fréttir af nýrri Cure-plötu. Hún á að koma á markað um svipað leyti og þetta blað Æskunnar. Sú plata er sögð vera hrárri og einfaldari en síðustu plötur Cure. Af S/H draumi er fátt að segja. Þetta ágæta tríó úr Kópavogi er hætt. Þeir Gunnar Hjálmarsson, söngvari og bassa- leikari, og Baldur Birgisson trymbill hafa stofnað hljómsveitina Bless. Þar spilar Gunnar á gítar en Ari Eldon (bróðir Þórs gítarleikara Sykurmolanna) úr hljómsveit- inni Sogblettum spilar á bassann. Eftir S/H draum liggja þessar plötur: Bensínskrímslið skríður, 1986 Goð, 1988 Bless, 1988 Hvað varðar fyrirspurnina, Tinna, um að við birtum dægurlagatexta þá kemur vel til grcina að birta erlcnda texta á frum- málinu og þýðingu á honum með. íslensk- ir dægurlagtextar eru aftur á móti nánast undantekningarlaust svo óljóðrænir og illa ortir að það er engum greiði gerður mcð því að skilja þá frá undirleik og laglínu og birta þá eina sér á prenti. MiKKjáli Jackson Kæra Popphólf! Getur þú sagt frá Mikkjáli Jackson kannski birt myndir eða veggmynd a honum. Ein aö austan Kæra Popphólf! Mig langar að fá eitthvað birt ult) Mikkjál Jackson. Hvað lestu úr skriftin111- Hvað heldur þú að ég sé gömul? Ég oft sent ykkur bréf en ef þetta birtist ekk1 þá gefst ég upp. Karen Rut Konráösdóttir, Sunnuvegi 10, 680 Þórshöfn. Svar: Við höfum oft áður gert Mikkjáli JaC*) son skil, bæði í myndum og máli. En 11 rL eins og ykkar berast alltaf öðru úver|u' Þess vegna birtum við nú væna grein unl þennan vinsæla dreng. Ef við göngum ut frá því að þú sért nálægt fermingaraUrl’ Karen, þá segir skrift þín þetta: Fu ert skrautgjörn og listhneigð (það kemur fm*? í því hvernig þú endar sum orð mcð þvl a, stílfæra síðasta stafinn og svo teiknar Þa upphrópunarmerkin og fyllir þau m þverstrikum og setur krúsindúllur unU , aukasetningar). Þú ert þrá en þó ert Þu bæði óþolinmóð og tvístígandi (þú hcl oft skrifað okkur áður, bréfin cru löng við styttum þctta mikið - og full af rökultl fyrir þínu máli. Þó er þetta bréf greinile?3 skrifað í flýti og skriftin er misjöfn m1 hna. Hún hallast m.a. ýmist til hægfi c vinstri). Þú ert metnaðargjörn og gct verið ákveðin (undirskriftin er falleg 0i skrifuð af þjálfaðri röggsemi). 46 ÆSKAU
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.