Æskan

Árgangur

Æskan - 01.02.1989, Blaðsíða 30

Æskan - 01.02.1989, Blaðsíða 30
Þegar kóngurinn kom í heimsókn Framhaldsþættir eftir Báru Þórarinsdóttur Maggi mörgæs stóð næstum á haus, það var svo mikið að gera. Kóngin- um hafði verið boðið í heimsókn. Aldrei hafði svona merkileg persóna komið að heimsækja íbúa héraðsins. Allir voru önnum kafnir við að und- irbúa komuna. Svo var þetta líka op- inber heimsókn. Hann Silli selur var lengi búinn að velta vöngum yfir því af hverju þetta héti opinber heimsókn. Áttu kannski allir að vera að opna eitthvað? Nei, það gat ekki verið. Hann bar þetta samt undir sæljónið, vin sinn. - Bull, sagði Svarri sæljón, - það verður ekkert opnað nema nýja dag- heimilið. Selamömmurnar koma litlu kópunum hvergi orðið fyrir. Það er bara ekkert pláss. En Svarri mátti ekkert vera að því að ræða þetta frekar. Hann átti að fara að hreinsa nýju flugbrautina. Það hafði snjóað mikið um nóttina og kóngurinn átti að koma daginn eftir. En nú kom Maggi mörgæs auga á Silla litla. - Einmitt sá sem mig vantaði, sagði Maggi mörgæs. - Geturðu ekki gæskurinn, hnoðað nokkrar þang- kúlur til þess að nota í veisluna. Við þurfum svona þúsund. Og Maggi mörgæs vaggaði svolítið á ská um leið og hann sagði þetta. Hann notaði hvert tækifæri til þess að sýna hvað hann var fær í skávaggi. Hann var nefnilega Suðurpóls-meist- ari í þeirri list og átti að halda sýn- ingu fyrir kónginn. Svo var hann líka búinn að bjóða öllum mörgæsunum í nágrenninu í veisluna og þangkúlur voru það besta sem mörgæsirnar vissu. En þarna kom þá aðalumsjónar- maðurinn, hann ísak ísbjörn. Það var nú karl í krapinu. Hann gat allt eða næstum því og öllum fannst hann afar merkilegur. - Heyrið þið strákar, kallaði ísak ísbjörn. - Getið þið ekki farið að raða skrautþanginu á borðin? Það fer að liggja á þessu. Silli selur bauðst til að ná í sela- stelpurnar, þær gætu þetta alveg, þeir hefðu svo mikið að gera. - Jæja, sagði ísak ísbjörn, - þið hafíð þetta eins og þið viljið en farið þið að drífa í þessu, strákar. Það fer að koma kvöld og allir eiga að fara snemma í háttinn. Sjálfur ætlaði ísak ísbjörn að finna rauða dregilinn sem átti að nota. Svo kom kóngurinn daginn eftir. Auðvitað var hann húfulaus. Þetta var nefnilega rostungakóngur. En hann var með kórónu á höfðinu, alla úr ískristöllum. Hann var í rauðri flauelskápu með hvítum jaðri úr safalaskinnum. En þegar hann sá rauða dregilinn, sem hann átti að ganga á, harðneitaði hann. - Ég geng ekki á rauðum dregl- um, þrumaði hann. - Þeir verða að vera grænir svo að ég geti notað þá. Enginn skildi neitt í neinu. Kóng- urinn hlaut að vera eitthvað skrítinn. En nú datt ísaki ísbirni nokkuð í hug. Rostungaamma, sem átti heima uppi í hlíðinni, var alltaf að vefa- Kannski ætti hún grænan dregil- Hann ætlaði að athuga það. Rost- ungakóngurinn yrði bara að bíða. Og mikið rétt. í vefstólnum hjá rost- ungaömmu var einmitt grænn dreg- ill. - Heyrðu hérna, sagði ísak ís- björn við rostungaömmu, - má ég ekki fá hann lánaðan, þennan hérna? - Þennan hérna hvað? hváði rost- ungaamma. Hún var farin að heyra hálfílla. - Nú, dregilinn manneskja, sagði ísak ísbjörn, um leið og hann benti a græna dregilinn í vefstólnum. - Ertu að fara að búa, ísak minn? spurði rostungaamma. - Hverskonar þvæla er þetta? hvæsti ísak ísbjörn. - Þetta er fyrir rostungakónginn, hann er hér í opinberri heimsókn. - Jahá, sagði rostungaamma, - hann kominn, blessaður? Þetta er nú hann frændi minn ef ég er þá ekki illa svikin. Svo dæsti hún af ánægju. - Ég kem með þér, sagði hún- - Fyrst ég óf dregilinn sem þarf að nota þá rúlla ég honum út sjálf. Aumingja ísak ísbjörn. Nú var hann kominn í vanda. Hvað átti hann að gera? Honum datt gott ráð i hug. 30 ÆSKAN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.