Æskan

Árgangur

Æskan - 01.02.1989, Blaðsíða 14

Æskan - 01.02.1989, Blaðsíða 14
Ég sé ekki betur en allir verði sár- svangir af að hlusta á þessa lýsingu. Krakkarnir fá mikinn áhuga á slíkri mat- argerð og spyrja hvort hægt sé að nota vöfflujárn í þessum tilgangi. Ægir telur víst að það skemmist. Jafnskjótt snýst umræðan öll um ann- ars konar vöfflujárn og telpurnar segja frá því hver í kapp við aðra þegar þær „vöffluðu“ einhvern við takmarkaða ánægju móður. . . til að mynda einhvern lítinn frænda sem auðvitað varð ofsalega sætur þannig. . . . Þannig getur allt farið úr skorðum ef reynt er að tala við stóran hóp af fjörug- um krökkum í einu. . .! Þess vegna hef ég dálítið hátt til að halda samtalinu í réttum farvegi - og verð að kalla til að heyrist í mér. . . - Hefur það vakið athygli að þið eruð tíðir gestir á sjónvarpsskjánum? (Kannski var ég ekki alveg svona há- tíðlegur. . .) Þau segja að það sé varla orð á gerandi en þó hafa þau orðið vör við viðbrögð, bæði jákvæð og neikvæð. Ýmsir hafí sagt „Iss, þetta er svo lélegt lag. . .“ og annað í þeim dúr en þau telja að það sé einung- is af því að sumir fínni til öfundar. Það séu langt frá allir. Ægir segir að krakk- arnir hafí klappað þegar hann kom í skólann eftir fyrsta þáttinn og Elísabet og Elsý nefna upphrópanir eins og „Sjá sjónvarpsstjörnurnar“. Það hafí oftast verið í gríni. . . í „aparólu" Þau taka öll þátt í skátastarfi, eru í skátaflokkum nema Gísli. Hann er ylf- ingur. Þeim kemur saman um að það sé afskaplega skemmtilegt og Ægir segist vilja hvetja alla krakka til að verða skátar því að það sé afar gaman og allir hafi mjög gott af því. Ég spyr hvað sé skemmtilegast og Sig- ríður segir að það séu kvöldvökur og að læra að hnýta hnúta, Nolli nefnir útileg- ur og diskótek, Elísabet útileiki, Elsý leðurvinnu, að búa til mokkasínur. Gísli segir að margt sé skemmtilegt en líklega beri dvöl að Úlfljótsvatni af. Hann hafi farið þangað með pabba sín- um sem er félagsforingi Hraunbúa í Hafnarfirði. Gaman sé að ganga þar upp á fjall og mikið fjör hafi verið í leik þegar bundið var fyrir augun á skátunum og þeir áttu að skríða og lesa sig eftir þræði. Það átti að vera ullarþráður og þeir í dimmum helli þar sem þeir sáu ekki neitt. Farið var meðfram læk og ef krakkarnir gættu sín ekki var eins víst að þeir enduðu í honum. Sjálfur sagðist hann hafa sloppið við bað. Ægir nefnir líka útilegur að Úlfjljóts- vatni og man einna best eftir vatnaferð (safarí) þegar krakkarnir áttu að sveifla sér í aparólu. í hana var bundinn spotti sem kippt var í þegar þeir voru yfir læk svo að þeir duttu í ískalt vatnið! „Og auðvitað diskótek,“ bætir hann við. - Eigið þið fleiri áhugamál en skáta- starf? Elísabet: „Skíðaferðir! Ég „elska skíði“! Það er líka gaman á skautum. Svo er ég í fimleikum.“ Elsý: „Skíða- og skautaferðir. Stundum fer ég niður að Tjörn. Stundum sprautar vinkona mín vatni á götuna á kvöldin. Þá frýs það um nóttina. Ég hef líka gam- an af knattspyrnu og borðtennis.“ Ægir: „Sömu og þær: Skauta- og skíða- ferðir og knattspyrna. Og ótal margt annað. Ég hef áhuga á mjög mörgu. . .“ Nolli: „Ég æfi júdó, hef gert það í tvö eða þrjú ár. Bróðir minn? Já, hann var í júdó en er hættur. Hann var alltaf að brjóta sig. . . - Ég leik mér hka í knatt- spyrnu.“ Gísli: „Ég hef mest gaman af skák - auk skátastarfsins. Ég tefli stundum við bróður minn, þann sem er sjö ára. . Sigríður: „Ég æfi dans hjá Dansnýjung Kollu. Við erum núna að æfa Mikkjáls- dansa. Svo finnst mér gaman á skautum - og að gæta barna ef þau eru stillt. . .“ (Ég verð að játa að ég skrifaði Mikkj- áls-dansa þó að Sigríður segði Michaels Jacksons-dans. Er ckki þægilegra að nefna dansinn (eða dansana) því nafni?) Við létum þetta gott heita og eftir að krakkarnir höfðu brosað í hálftíma saffl- fleytt framan í myndavéhna hans HeimlS - nema þá stund sem þau hlógu og mín- úturnar sem þau sungu og trölluðu - settum við undir okkur höfuðið og hlupum út í rokið og élið. Það var einn af þessum dögum, þið vitið, þegar veðrið er vitlaust og afskaplega skemmtilegt- Eða þannig. . . Raunar ætluðum við að taka myndit úti en það hefði allt fokið út í veður og vind og kannski farið í allt annað blað- - Nei, nú hef ég smitast af fjörinu 1 krökkunum eða misst tökin á pennanum í rokinu og verð að fara að setja upp al- vörusvipinn og halda fast um stílvopnið (það merkir penni) og enda þetta af ein- hverri skynsemi. Þá er best að líta í verk- efnabókina. . . mynd, hetja sem þau herma allt eftir. A. Gerðu lista yfir hluti sem þú gerir og vilt að þeir geri eins. B. Gerðu lista yfir hluti sem þú gerir en vilt ekki að þeir geri líka.“ Þetta er umhugsunarvert. í rauninm felst í því að þú reynir ávallt að koma vel fram við alla, vera hjálpsamur, hlýðinn og hæverskur. . . Sjálf(ur) getur þú talið ýmislegt fleira upp! Samstarfsverkefni skáta og Kiwanis- manna er þarft átak. Vonandi hafa börn og foreldrar brugðist vel við, rætt um það, unnið saman að því og leyst það. Þa má með sanni segja að börnin séu ávallt viðbúin. í augum yngri krakka ert þú fyrif' iyV Vr -•*' \/£ I „Það er gaman að láta farða sig! - Svo fengum við að sjá alls konar hárkollur, af Elsu, Þórði húsverði og mörgum öðrum. . . “ 14 ÆSKAU
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.