Æskan

Árgangur

Æskan - 01.04.1990, Síða 42

Æskan - 01.04.1990, Síða 42
Aðdáendum svarað „Akureyri er fallegasti staðurinn" Guðrún H. Kristjánsdóttir skíðakona svarar aðdáendum BbHH Hvar varstu fædd og alin upp? Ég var fædd á Akureyri 25. nóvem- ber 1967 og ólst þar upp. Áttu systkini? Hve gömul? Hvaö heita þau? Ég á einn bróður. Hann er 23 ára og heitir Rúnar Ingi. Hefur hann stundaö íþróttir? Hverj- ar? Hann hefur æft skíðaíþróttir þar til í vetur. Pá hætti hann æfingum sjálfur en hefur þjálfað 10 ára krakka á Akureyri á skíðum. En foreldrar þínir? Pabbi æfði ólympískar lyftingar um skamma hríð fyrir löngu. Að öðru leyti hafa foreldrar mínir ekki komið nálægt íþróttum. Pað var ekki fyrr en í fyrravet- ur að þeir fóru á skíði í góðu veðri. Hvenær steigstu fyrst á skíöi? Pegar ég var níu ára (1977). Hve gömul varstu þegar þú hófst keppni í skíöaíþróttum? í hverju kepptir þú þá? Hverjar eru keppnis- greinar þínar nú? Ég var ellefu ára þegar ég keppti fyrst á skíðum. Pað var í svigi og stórsvigi og það eru enn þá keppnisgreinar mínar - en auk þess keppi ég tvisvar á ári í samhliðasvigi. Ég er einnig nýbyrjuð að æfa risastórsvig og keppti á einu slíku móti í Austurríki í fyrra. Hvenær vannstu fyrsta íslands- meistaratitil þinn? Hve marga hefur þú unniö? Ég var í sveit Akureyringa sem varð Islandsmeistari í flokkasvigi (þrír í sveit) 1983. Ég varð fyrst íslandsmeistari í einstökum greinum 1985, þá fjórfaldur meistari, en titlarnir eru samtals orðnir 9. Hvaöa skíöamann dáir þú mest? Paul Fromelt - því að hann er enn að keppa og er í fremstu röð þó að hann sé kominn vel á fertugsaldur. Er góö aöstaöa hérlendis til aö æfa sig á skíöum meö keppni í huga? Helsti gallinn við að æfa á Islandi er að ekki er hægt að stunda æfingar nema 3-4 mánuði á ári. Erlendis er víð- ast hvar hægt að æfa að heita má allt árið. Hér er ekki heldur hægt að æfa brun og naumast risastórsvig því að brekkurnar eru ekki nógu langar og færi ekki nógu hart. Hefur þú æft erlendis? Hvar? Já, á flestum stöðum í Mið-Evrópu, aðallega í Austurríki, og í Aspen í Colorado í tvær vikur í fyrra. Hefur þú tekiö þátt í keppni erlend- is? Ég hef tekið þátt í mörgum alþjóðleg- um mótum (FlS-mótum) - í Austurríki, Sviss, Pýskalandi, Frakklandi, Italíu, Júgóslavíu, Noregi og Svíþjóð. Ég tók þátt í Olympíuleikunum í Calgary í Kanada 1988 og heimsmeistaramótinu í Vail í Colorado-fylki í Bandaríkjunum 1989. Hefur þú æft aörar íþróttagreinar? Ég hef ekki æft neinar aðrar íþróttir að ráði. Pegar ég var 12-13 ára ætlaði ég að æfa fimleika en fór bara á eina æfingu. Ég mætti líka á nokkrum æf- ingum í frjálsum íþróttum en síðan ekki söguna meir. Pegar ég var 16-17 ára fór ég að æfa knattspyrnu með KA en ent- ist ekki nema í sex vikur. Mér fannst það skemmtileg íþrótt en hætti af því að ég vann mjög mikið það sumar og þurfti auk þess að æfa þol, snerpu, kraft og annað er tengdist skíðaíþrótt- inni. Við skíðafólk æfum þrek og lík- amsþjálfun til undirbúnings meðan við getum ekki verið á skíðum. Tvö síðastliðin sumur hef ég stunda líkamsrækt. í hvaöa skóla ertu - og hefur verib? Fyrst var ég í Lundaskóla, síðan 1 Gagnfræðaskóla Akureyrar, þá í Verk menntaskólanum á Akureyri. Ég laU stúdentsprófi þaðan vorið 1987, af aPP, eldisbraut. Pá tók ég mér tveggja ára fn frá námi, stundaði vinnu og skíðasefinð ar. í haust hóf ég nám í hjúkrunarfrseð'1 Háskólanum á Akureyri. Hefur þú ákveöiö starf í huga? Ég hef ekki ákveðið framtíðarstarf e_n hef mikinn áhuga á sjúkraþjálfun eða 1 þróttafræði. Hjúkrunarstarfið kemur ve til greina. Ég er að kynna mér þa Ertu hneigö til lestrar? , Ég les ekki mikið. Ef ég sest me góða bók get ég þó ekki slitið mig fra henni fyrr en ég hef lokið henni. Hefur þú gaman af tónlist? HverS konar? Ég nýt þess að hlusta á tónlist og helst alltaf vera að hlusta á eitthva > hvort sem ég er að læra, vinna e hlaupa. Ég hef gaman af músík af flestu tagi. Hefur þú lært á hljóöfæri? | Nei. Pegar ég var lítil langaði mið að læra á píanó en lét mér nægja a glamra eftir eyranu. Á hvaöa tónlistarmanni (mönnuh1 hljómsveit) hefur þú mest dálæti? Par eru margir jafnir en ég get ne John Lennon, Susanne Vega, Marley og hljómsveitirnar Pixies' Woodentops - og Nýja danska, af Þeirn íslensku. En leikurum? Mér finnst Dustin Hoffman besti lel 46 Æskan

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.