Æskan

Árgangur

Æskan - 01.10.1990, Blaðsíða 16

Æskan - 01.10.1990, Blaðsíða 16
 Um knattspyrnu Kæra Æska! Gætuð þig birt þátt um knattspyrnu og haft myndir af innlendum og erlendum knattspyrnumönnum? Benpdikt II. Hermannsson, Reykjavík. Hæ, kæra Æska! Mér finnst mjög gaman að blaðinu og að vera áskrifandi. hið mættuð birta meira um knattspyrnu, t.d. segja frá landsliðinu. Ilaukur Olafsson. Svar: Þetta er tekið til athugunar. Raunar er farió mörgum orðum um knattspyrnu í íþróttadálkum dagblaðanna og erfitt er fyrir okkur að bæta um betur því að geró tímarita tekur langan tíma og allar fréttir eru orónar nokkuð gamlar þegar þær birtast. Við höfum hins vegar tekið viðtöl við ýmsa af ágætum knattspyrnumönnum og stundum hafa veggmyndir af þeim fylgt blaóinu. Svo veróur áfram. Kanínur Halló, Æskupóstur! Eg á tólf kanínur, fjögur karl- dýr, sex kvendýr og tvo unga. Mér finnst þeir mjög sætir. Eg er mjög hrifin af þættinum, Dýrin okkar. hess vegna spyr ég ykkur hvort þið viljið birta eitt- hvað um kanínur, að minnsta kosti veggmynd? Að lokum langar mig til að spyrja hvar þið fáið skrýtlurnar. Linda (10 ára) og kanínurnar. Svar: Vió munum fjalla um kanínur - sennilega í vetur. Skrýtlurnar þýóum vió oftast úr norsku en sumar finn- um vió í gömlum Æskublöðum. Viltu færa þig ... Kæra Æska! Ég sendi þér skrýtlur: Stína: Mamma! Krakkarnir segja að þú sért eins og tófa í framan. Mamma: Láttu það ekki á þig fá, yrðlingurinn minn! - Hvað sagði Maggi maur þegar Júmbó fíll settist á hann? - Viltu færa þig yfir á hitt lærið! - Hvað sagði grísinn við innstunguna? - Hafa þeir múrað þig inn í vegginn, veslingur! Ein úr Breiðlwltinu. Fimleikar og fleira Kæra Æska! Hvernig væri að hafa vegg- myndir af dýrum eða fimleika- fólki og öðru íþróttafólki en ekki alltaf af rokkstjörnum eða leikurum? Ég hef mikinn áhuga á fim- leikum. Er hægt að gerast á- skrifandi að fimleikablaði? Nóra. Svar: 6. tbl. Æskunnar fylgdi veggmynd af Atla Eðvaldssyni. Ymsir íþrótta- menn hafa verió á veggmyndum undanfarin ár. Þegar þú skrifaðir bréfið höfðum vió ákveðið aó birta myndir af dýrum í tengslum vió þáttinn, Dýrin okkar. Vió höfum tekið fimleikafólk tali og gerum þaó eflaust aftur áður en langt um líður. Ef til vill fylgir þá veggmynd af viðmælanda okkar. Hér á landi er ekki gefió út fim- leikablað. Af ýmsu tagi Kæra Æska! Ég er með nokkrar spurning- ar: 1. Er hægt að fá sögu birta undir dulnefni ef maður vinnur smásagnakeppnina? 2. Viljið þið fjalla um Al- annah Myles? Hvert er heimil- isfang aðdáendaklúbbs hennar? 3. Mig langar til að eignast pennavini frá Afríku- og Asíu- löndum. Getið þið hjálpað mér? Ég á um 50 pennavini í Evrópu og Egyptalandi. 4. Getið þið ekki fjallað ein- hvern tímann um sauðkindina fyrst þið eruð byrjuð með dýra- þátt? Eða er þetta bara gælu- dýraþáttur? 5. Viljið þið segja frá leikur- unum C. Thomas Howell, Rod- ney Harvey og Elisabeth Shue? Mýsla. Svar: 1. Við hljótum aó geta um nafn sigurvegara í smásagnakeppninni. Hann fær að launum ferð til höfuð- borgar Bandarikjanna en frá veró- launaferðum hefur jafnan verið sagt í Æskunni og birtar myndir af feróa- löngunum. Hugsanlegt er aó nefna ekki nafn aukaverólaunahafa og birta sögu hans undir dulnefni. 2. Beiðni hefur verið komið á framfæri vió umsjónarmann Popp- þáttar. Heimilisfangið er: Alannah Myles Fanclub, 75 Rockefeller Plaza, NeW York, NY 10019, U.S.A. 3. Þú ættir að gerast félagi í ab þjóðlegum pennavinaklúbbi. Heim- ilisföng nokkurra þeirra hafa verið birt nýlega í Æskunni. Raunar höf- um við líka birt nöfn unglinga i þessum álfum. (Flettu nokkrum tölublöðum ...) Eflaust vilja einhverj- ir aðstoða þig. Þar sem þú kaust aó láta birta bréfió undir dulnefni en skýrðir okkur frá nafni og heimihs- fangi skulum vió vera milligöngu- menn. 4. Þetta er ekki einungis g®lu- dýraþáttur. Stefnt er aó því að fjalla einnig um húsdýr og jafnvel önnur dýr. 5. Ég hef áóur nefnt aó ekki er unnt að verða vió öllum beiðnum um frásagnir af þekktu fólki ... Myndir af þeim ungum Kæri Æskupóstur! Ég er með tillögu um efni blaðsins. Hvernig væri að birta myndir af frægum mönnum is- lenskum (og erlendum ef hægt er) þegar þeir voru „litlir"; til ad mynda eina mynd af þeim átta ára, aðra fjórtán ára, þriðju átján ára og loks eina nýja. Eg veit að marga fýsir að vita hvernig „hetjurnar" þeirra litu út á unga aldri. 16ÆSKAN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.