Æskan

Árgangur

Æskan - 01.10.1990, Síða 28

Æskan - 01.10.1990, Síða 28
essa Hverjir ráða?! í vor á að kjósa til þings. Finnst þér leiðinlegt að mega ekki kjósa? Ég gæti í- myndað mér það. Nú þætir Æskan úr því! Við þúum til nýja stjórn saman! Auðvit- að verður það ekki alvöru- stjórn - við látum fólk á kosningaaldri um það. Þetta verður gamanstjórn og glettilega góð stjórn! Kamratposten í Svíþjóð og Norsk Barneþlad í Nor- egi hafa raunar Ifka leyft lesendum sínum að velja þá sem þeir vildu að réðu. Frændsystkini þín á Norð- urlöndum brugðust fljótt og vel við. Þau höfðu að sjálf- sögðu aðrar skoðanir en fullorðna fólkið og völdu því margt fólk sem ekki hafði tekið þátt í stjórnmál- um. Engan þarf að undra að niðurstaðan varð bráð- skemmtileg. „Ráðherrarnir" okkar eiga að stjórna þannig að hér verði skemmtilegt, frið- samt, réttlátt og indælt þjóöfélag - sem tekur tillit til þarfa og óska barna. Þú 28 ÆSKAN Aðalrádherra: Barnaráðherra: Friðar-ráðherra: Lestrar-ráðherra: Skemmtiráðherra: Málverndar-ráðherra: íþróttaráðherra: Matar-ráðherra: Tónlistar-ráðherra: Náttúruverndar-ráðherra: Réttlætisráðherra: Vasapeningaráðherra: Annarra-peninga-ráherra: Umferðar-ráðherra: Heilbrigðis- og bindindisráðherra: Fjör- og frækniráðherra: Dýraverndarráðherra: Foreldramálaráðherra: Nafn og aldur Heimils- og póstfang Sendist Æskunni - Hverjir eiga að ráða - pósthóif 523, 121 Reykjavík. mátt velja hvern sem þú vilt, ekki endilega stjórn- málamenn. Það þarf reynd- ar ekki einu sinni að vera fólk - það geta verið per- sónur úr bókum, teikni- myndasögum og kvikmynd- um. Sem lestrar-ráðherra er tilvalið að velja rithöfund sem þú hefur dálæti á - eft- irlætisíþróttamaðurinn á skilið að verða íþróttaráð- herra! Aðalatriðið er aó þú treystir þeim sem þú velur til að stjórna á þann hátt sem þú sættir þig við! Við nefnum ráðherrana ekki alveg sömu nöfnum og í ríkisstjórn íslands. Þann sem stjórnar og kveður aðra til fundar köllum við aðal- ráðherra. Honum til að- stoðar eru til að mynda barnaráðherra, skemmtiráð- herra, matarráðherra, tón- listarráðherra og íþróttaráð- herra. Tíu þátttakendur fá að launum þrjár útgáfubækur Æskunnar hver, að eigin vali. Þú verður með, er það ekki? Þá skrifar þú lista eins og sýndur er hér til hliðar og sendir til Æskunnar, pósthólf 523, 121 Reykja- vík. Bréfið skal merkja: Hverjir eiga að ráða? Þu mátt gjarna skýra með nokkrum orðum af hverju þú velur þá sem skipa stjórnina þína. Þú mátt bæta ráðherrum við listann ef þér þykir ástæða til og sleppa þeim embættum sem þér finnst erfitt að velja fólk í. Skilafrestur er til 31. des- ember 1990. Úrslit „kosn- inganna" verða birt í 1- tbl. Æskunnar 1991. Við getum ekki bannað þér að klipp3 listann úr blaðinu og senda hann en mælum meö þvi að þú útbúir annan seðil.

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.