Æskan - 01.10.1990, Qupperneq 39
Kennaranum gramdist aö einn
nemendanna rak tunguna alltaf
út úr sér þegar hann vandaði sig.
- Nú hangir tungan enn einu
sinni út úr þér, Óli!
— Ég veit það. Ég hengdi hana
svona sjálfur!
- Þjónn! Það er kónguló í súpunni
minni!
- Þá kostar hún hundrað krónum
meira ...
Kennarinn sagði nemendum að
sum börn fæddust fyrir tímann en
önnur síðar en gert væri ráð fyrir.
Pétur litli rétti upp hönd og hrópaði:
..Heppinn var ég! Ég fæddist ná-
kvæmlega á afmælisdeginum mín-
um!“
Jón kom inn í gæludýraversl-
un og bað um fuglafræ. Af-
greiðslumaðurinn þekkti hann
og sagði:
„En þú átt ekki fugla ...“
„Nei. En ég ætla að sá þessu og
fá upp fugla ...“
- Ósköp ertu lasleg, góða mín!
Hvað er að?
Eg saup á flösku með uppþvottalegi.
- Af hverju i ósköpunum?
- Það stendur á merkimiðanum að
lögurinn fjarlægi fitu...
Þreyttur og leiður
kennari:
„Ef þið í öftustu
röðinni væruð jafn-
hljóð og þau sem
lesa teiknimyndasög-
ur í miðröðinni gætu
þeir sem sitja fremst
sofið í friði ..."
Maður nokkur,
einyrki úr afdal,
stóð við lyftudyr í
fyrsta sinn á æv-
inni. Hann sá
roskna konu fara I
lyftuna. Nokkru
síðar opnuðust dyrnar aftur og út
gekk ung stúlka.
— Stórkostlegt! sagöi hann. Ég
verð aó koma konunni minni í
þetta tæki!
Frést hefur af manni sem fór til
læknis. Hann hafði brennt sig á báð-
um eyrum.
- Hvernig gerðist þetta, spurði
læknirinn.
- Ég var að slétta skyrtu. Síminn
hringdi og ég brá straujárninu að
eyranu í stað þess að lyfta símtólinu.
- En þú ert brenndur á báðum
eyrum!
- Ég varð að hringja til þín og
spyrja hvort ég mætti koma strax ...
Kennarinn: Af hverju greiðir
þú hárið aldrei, Villi?
Villi: Ég á enga greiðu.
Kennarinn: Getur pabbi þinn
ekki lánaó þér?
Villi: Hann er sköllóttur.
- Hvernig komast fimm fílar í bíl?
- Ég veit það ekki.
- Tveir í framsætin og þrír aftur í!
En fimm gíraffar?
- Þeir hljóta að komast fyrir á
sama hátt.
- Nei! Fílarnir sitja þar!
— Er þetta hjá Jóhannesi?
- Nei, þetta er hjá Magnúsi.
— Til hvers varstu þá að svara í
símann?
Kennarinn heimsótti nemanda sem sagður hafði verið veikur.
- Ég hélt að þú værir að skrópa. Nú sé ég mér til mikillar
ánægju að þú ert fárveikur!
- Þetta var ánægjulegt! sagði
Brandur við konuna sína. En jafn-
framt ótrúlegt. Þú talaðir ekki nema
níu mínútur í símann. Hver hringdi?
- Æ, það var einhver sem hringdi
í vitlaust númer...
Faðir: Af hverju færðu alltaf
svona lélegar einkunnir í sögu?
Sonur: Það er ekki nema von.
Kennarinn spyr alltaf um það
sem gerðist löngu áður en ég
fæddist!
Mamma þríburanna var að baða
þá. Þegar hún sagði þeim að standa
upp og þurrka sér sátu þeir kyrrir og
skellihlógu.
- Af hverju eruð þið að hlæja?
- Þú þvoðir Fúsa þrisvar!
— Þetta er í fimmta sinn sem
þú ert látinn sitja eftir í þessari
viku. Hvaö segir þú um þaö?
— Gott aó það er kominn föstu-
dagur!
Kennarinn: Af hverju kaupum við
föt?
Nemandi: Af þvf að fáum þau
ekki ókeypis!
Mamma: Eftir hvern eru þessi
óhreinu fótspor?
Gutti: Ég veit það bara ekki.
Þau virðast hafa elt mig í allan
dag.
ÆSKAN 43