Æskan - 01.10.1990, Page 43
Verið heiðarleg og hafið trú á sjálfum ykkur. Segið NEI við fíkniefnumi'
Hlustar þú mikió á tónlist?
Já, ég get ekki sagt annað. Ég var
nú til skamms tíma með þætti í Ríkis-
útvarpinu þar sem ég lék aðallega fal-
lega, sígilda tónlist.
Hefur þú lært á hljóðfæri?
Nei, því miður.
Hvers konar tónlist líkar þér best?
Ætli ég verði ekki að viðurkenna að
ég er óperuaðdáandi.
A hvaða tónlistarmönnum hefur þú
mest dálæti?
Tvímælalaust Mozart, Verdi og
ekki síst Puccini - af þeim sem látnir
eru.
Ég hef dálæti á öllum góðum tenór-
söngvurum. Ég get ekki gert upp á
milli Pavarottis, Domingos og Kristjáns
Jóhannssonar. Peireru frábærir!
Attu gæludýr?
Já, fjölskyldan á kött sem er nýbú-
inn að eignast fjóra kettlinga. Við eig-
um líka hinn fræga páfagauk Pása sem
margir kannast við. Hann er stundum
með Afa á laugardagsmorgnum ...
Hvaða mann langar þig mest til að
hitta?
Eiginmann Margrétar Thatcher. Ég
held að honum leiðist svo mikið ...
Hvert langar þig til að ferðast?
Til Egyptalands.
Ertu kvæntur? Áttu börn?
Já. Kona mín heitir Guðrún Þórðar-
dóttir. Hún er lærð leikkona og sér nú
um barnaefni á Stöð 2. Við eigum
dóttur sem heitir Halla Björg.
Hver er eftirlætisleikari þinn?
Páfagaukurinn Pási.
Verður Spaugstofan með þátt í Sjón-
varpinu í vetur?
Já, líklega eftir áramót.
Verður leikritið, Örfá sæti laus, sýnt í
allan vetur?
Vonandi!
Hafið þið í Spaugstofunni eitthvað
annað á prjónunum?
Já, já. Ýmislegt.
Áttu einhver heilræði að gefa krökk-
um?
Verið heiðarleg og hafið trú á sjálf-
um ykkur. Og - í öllum bænum - forð-
ist fíkniefnin sem flæða hingað til
landsins með ógnar hraða og erfitt er
að ráða við. Segið NEI!
ÆSKAN 47