Æskan - 01.10.1990, Page 50
Kynþroskinn
og „hitt"
Kæra Nanna Kolbrún
Ég á í meiri háttar vanda. Ég
er nokkuö lagleg og ágætlega
vaxin. En ég hef nánast engin I
brjóst og ég er ekki komin á I
það stig að fara á túr. Er hægt \
að gera eitthvað við því? Annað
er þó enn þá verra. Ég er með
strák sem heitir Z og er að
verða 1 7 ára. Ég varð 1 3 ára
um daginn. Hann hefur sofið
hjá nokkrum stelpum undanfar-
in tvö ár. Hann vill að við för-
um að gera það og ég er hrædd
um að hann segi mér upp ef ég
neita. Á ég að segja já því að
mig langar dálítið og nota
smokk eða segja nei og segja
honum upp ef hann fer að ybba i
sig-
Ef ég reyni að tala um þetta I
við mömmu og pabba læsa þau I
mig inni. Og ef hann hringir
skella þau á og ég get bara hitt
hann úti. Vinkona mín er jafn-
vel verri. Hún segir að ég sé
leiðinleg og segir mér að þegja
þegar ég reyni að tala um þetta.
Hún er nefnilega Iíka hrifin af
honum eins og allar stelpurnar.
Á ég bara að hætta þessu og
byrja að vera með strák í mín-
um bekk sem er hrifinn af mér.
Ég er fremur vinsæl og get valið
mér stráka en samt ...
Þið verðið að birta þetta bréf y
því að ég græt mig í svefn á (
kvöldin. \
Es.: Hvað lestu úr skriftinni?
Samantha Fox.
Svar:
Kynþroskaskeiðið er þróunar-
ferill þar sem allt tekur sinn
tíma. Það eru fyrst og fremst
hormónarnir sem stjórna þessum
breytingum. Nudd og önnur
húsráð koma ekki þar við sögu.
Miðað við aldur þinn er kyn-
þroskinn alveg eðlilegur og þú
mátt búast við frekari breyting-
um á næstu mánuðum og árum.
í bréfi þínu kemur fram þó
nokkur óþolinmæði. Það er engu
líkara en þú ætlir þér að komast
á undan sjálfri þér. Slíkt er aldrei
mögulegt til lengdar og betra að
sætta sig við sinn eigin takt og
hraða.
Þetta á við bæði um afstöðu
þína til kynþroskans og vanga-
veltnanna um það að sofa hjá
stráknum sem þú ert með. Þú ert
engan veginn tilbúin hvorki lík-
amlega eða andlega til þess að
sofa hjá. Að lifa kynlífi með ein-
hverjum er ekki það sama og að
fara í sturtubað eða fá sér sund-
sprett, sérstaklegi ekki í fyrsta
skiptið. Þú átt að hugsa þetta frá
eigin forsendum en ekki óttan-
um eða hótuninni um að hann
segi þér upp ef þú lætur ekki að
vilja hans.
Unglingsárin eru á vissan hátt
reynslutími eða æfingatímabil
fyrir fullorðinsárin. I vináttu og
ástarsamböndum kynnast ung-
lingar eigin tilfinningum og lík-
amlegum þörfum. Einnig lærist
að taka tillit til annarra og þarfa
þeirra. Þetta getur allt tekið sinn
tíma og um að gera að stilla sig
inn á að yfirleitt gefast önnur
tækifæri þó að hlutirnir gerist
ekki strax í dag.
Fyrsta kynlífsreynslan er oft
ansi lífseig í minningunni. Gullna
reglan þar er að bera virðingu
fyrir sjálfum sér og hefja ekki
kynlíf fyrr en andlegur og líkam-
legur þroski er nægur. Kynlíf er
sett saman af mörgum flóknum
þáttum eins og ást, hrifningu,
kynhvöt og djúpu tilfinningalegu
sambandi við gagnaðilann. Fátt
af þessu er um að ræða í þvl
samhandi sem þú ert nú í.
Reyndu að njóta þess að þu
ert vinsæl og getur valið úr ung-
um piltum til þess að kynnast.
Þegar aðstæður eru þannig er
það enn frekari hvatning en ella
til þess að láta ekki þvinga sig til
neins.
Skriftin er mjög læsileg en
gæti borið vott um dálitla fljót-
færni.
54 ÆSKAN