Æskan

Årgang

Æskan - 01.10.1990, Side 51

Æskan - 01.10.1990, Side 51
Táknmál ástarinnar Kæra Æska!! Ég vona að ruslafatan sé full því að mig bráðvantar svör. Þannig er mál með vexti að ég er hrifin af strák sem er 14 ára (en ég er 1 3) og hef ég ver- ið hrifin af honum í eitt ár. I vetur hélt vinkona mín partí og bauð hún mér og öðrum krökkum, m.a. honum (köllum hann C). Þegar G og vinir hans komu labbaði hann strax að mér og sagði lágt: „Hæ;"eins og hann vildi ekki láta neinn heyra það. í samkvæminu var hann alltaf að horfa á mig en leit strax undan þegar ég leit á hann. Hann elti mig hvert sem ég fór og hann var alltaf að reyna að tala við mig. En ég er ein af þessum feimnu og fór alltaf. Þegar einhver stóð við ! hliðina á mér tróð hann sér við / hliðina á okkur. Eftir helgina starði hann á mig allan tímann í skólanum þegar hann var í augsýn. Við erum mjög feimin hvort við annað. Vinkonur mínar segja að hann sé alltaf að sýna mér hvað hann sé góður í fótbolta. Hann togar mig alltaf að sér og teynir að einangra mig. Ég veit að þetta er langt og t leiðinlegt bréf en ég verð að fá svör. Ég er búin að þola þetta nógu lengi. Hvað heldurðu að þetta merki? Madonna Es.: Heldurðu að hann beri sömu tilfinningu til mín? Hvað lestu úr skriftinni? Hvað er ég gömul? Svar: Það getur verið erfitt að ráða í allar þessar merkjasendingar á milli ykkar. Einhver gagnkvæm- ur áhugi virðist vera á ferðinni. j Eins og þú sjálf skrifar eruð þió bæði feimin og meira um óbeinar athafnir en oró ykkar á milli. Ég held að þetta skýrist með tfmanum. Það mikilvægasta fyrir þig er að gera þér skýra grein fyrir þínum eigin tilfinning- um. Hann verður að taka ábyrgð á sínum þætti. Þú skalt ekkert vera að reka á eftir því en halda þinu striki og sinna skólanum og ahugamálunum eins og áóur. Skriftin er skýr og skilmerkileg j en málfar dálítið hátíðlegt á köfl- \ um. Þú segist vera 13 ára. Ég tek það alveg trúanlegt. Viðkvæm en skotin Kæra Nanna Kolbrún Ég er búin að skrifa svo oft I áður að ég held að það saki ekki að prófa einu sinni enn. Ég vona að þetta bréf verði birt. Helsta vandamál mitt er það að ég fer yfirleitt að gráta ef eitt- hvað er sagt við mig. Þegar ver- ið er að banna mér eitthvað sárnar mér. Svo er annað! Ég er rosalega hrifin af strák. Þegar við hitt- umst í sundi fer hann alltaf að kafa niður á botn og tekur utan / um fæturna á mér en það er bara skemmtilegt. Hann horfir oft á mig. Það er eitt af því sem ég skil ekki því að mér finnst ég ógeðslega feit. Ég er 165 á hæð og 57-60 kg en það segja allir að ég sé mátuleg eða of mjó. Heldur þú að stráksi sé hrif- inn af mér? Aö lokum: Hvað lestu úr skriftinni og hvað held- uröu að ég sé gömul? Vandrœðagemlingur Svar: Eitt af markmióum þessa bréfaþáttar er að veita lesendum blaðsins tækifæri til þess að segja frá áhyggjum og öðru sem þjakar huga og sál. Mörg bréf- anna fjalla um það sama og það er gott. Þá geta þeir sem skrifa fengið staðfestingu á því að á- hyggjur og vangaveltur þeirra eru hliðstæðar og hjá öðrum börnum. Því miður er ekki hægt að birta nema fáein bréf af þeim sem berast þættinum. Það eru því mörg börn sem hafa verið og eru í þínum sporum, að hafa skrifaó en ekki fengió svar við bréfi sínu. En vonandi geta þeir sem ekki fá svar nýtt sér eitthvað úr svörum til hinna. Einnig er gott ráð að gera eins og þú og skrifa bara aftur. Margir samviskusamir krakkar glíma við grát og kökk í hálsin- um ef þeir eru skammaðir eða fá gagnrýni frá umhverfinu. Gagn- rýni frá öðrum á framkomu og verk er nauðsynleg fyrir alla til þess að læra af. En ekki á öll gagnrýni rétt á sér. Stundum er henni beint að einhverju sem hann getur ekki breytt og þá er eðlilegt að manni sárni eins og \ þú lýsir. En ef það gerist alltaf og við hvaða árekstur sem er þá eru viðbrögðin í ósamræmi við til- efnið. Þeir sem eru mjög samvisku- samir og reyna yfirleitt að gera sitt besta á öllum sviðum taka oft mjög nærri sér ef það besta reynist ekki nógu gott og gagn- rýnin kemur engu að síður. Þar af leiðandi getur verið gott 1 að staldra aðeins við þegar þú finnur fyrir þessum viðbrögðum og kanna hug þinn vel. Er hér um réttmæta gagnrýni að ræða sem hægt er að læra eitthvað af eða er einhver ósanngirni á ferð- inni? Þannig getur þér lærst smátt og smátt að tengja rétt viðbrögð réttum aðstæðum. Það bendir margt til þess að strákurinn hafi áhuga á þér. Það sakar ekkert aö fá skýrari vís- bendingar samt og fara hægt í sakirnar. Ég giska á aldurinn 11-13 ára. Skriftin er nokkuð fljótfærnisleg en ég gæti trúað að þú værir hreinskiptin og glaðleg í fram- komu. Meb kærri kveðju, Nanna Kolbrún. ÆSKAN 55

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.