Æskan - 01.04.1993, Page 17
vísi en pabbi.
Hann er líka með rosalega
sítt hár og skegg alveg niður
á maga. Það er vegna þess
að honum finnst gott að
hafa hlýtt hár að aftan og
hlýtt skegg að framan. Hann
er svo stór að sumt fólk held-
ur að hann sé risi. Kannski
er hann risi. Hann sagði mér
einu sinni að hann hefði
fæðst í helli og að mamma
hans og pabbi væru tröll. En
ég held nú samt að hann
hafi verið að gabba mig. Ég
hef aldrei séð mömmu hans
og pabba því að þau búa
einhvers staðar langt í
burtu. Pabbi segir að þau
búi í Risalandi en mamma
segir að landið þeirra heiti
Rússland. Ég trúi mömmu
betur því að pabbi er alltaf
að grínast.
í dag, þegar ég var í óða
önn að þurrka upp bleytuna
sem eftir var á gólfinu,
heyrði ég allt í einu voðaleg
læti. Dyrnar á vinnustofunni
hans pabba opnuðust og
Mjása kom á fleygiferð fram
með Jakobínu mús í kjaftin-
um en Snata og pabba á
hælunum og yfir þeim
flögraði Tommi og krunkaði.
„Slepptu músinni, skömm-
in þín!" öskraði pabbi.
En Mjása vildi ekki sleppa.
Hún hljóp út með tístandi
músina. Tommi sveif yfir
henni og tókst að ná
músinni.
„Já, duglegur strákur,"
hrópaði pabbi því að hann
hélt að Tommi myndi láta
sig fá músina.
En, nei, Tommi ætlaði að
eiga Jakobínu sjálfur. Hann
flaug með hana hátt í loft
upp og sleppti henni þar.
Jakobína hefur náttúrlega
enga vængi og getur þess
vegna ekki flogið. Hún hrap-
aði bara beint niður og ég
hélt fyrir augun af skelfingu.
En pabbivar snöggur og
hljóp af stað. Hann náði að
grípa Jakobínu áður en hún
skall á jörðina en um leið
rann hann til í bleytunni og
datt kylliflatur í poll. Andlit-
ið á honum var allt út atað í
drullu og vatnið lak úr
skegginu. En hann hló bara,
stóð upp og kyssti Jakobínu
sem sat skjálfandi í lófa
hans og var næstum dáin úr
hræðslu.
„Hún Jakobína er ekkert
leikfang," sagði pabbi og
horfði reiðilega á Mjásu og
Tomma. „Hún er göfugt og
vel gefið dýr. Þið verðið að
skilja það."
Mjása og Tommi horfðu
blíðlega á pabba eins og
þau vildu segja honum að
þau skildu vel það sem
hann segði og þau myndu
aldrei aftur láta sér detta
annað í hug en að Jakobína
væri göfugt og vel gefið dýr
en hvorki matur né leikfang.
Svona er lífið hérna uppi á
Esjunni, fuilt af skemmtileg-
um atvikum.
Ég bið að heilsa öllum
krökkum sem lesa Æskuna.
Bless,
þín Rósin Jónas.
Framhald
Æ S K A N 7 7