Æskan - 01.04.1993, Side 18
FRÍMEBKJ
ÞÁTTURI
Umsjón: Sigurður H. Þorsteinsson skólastjóri.
NYTT FRIMERKJALAND
Þegar talað er um ný frímerkjalönd
er átt við að land hafi fengið sjálf-
stæði í póstmálum og fái að ráða
sjálft frímerkjaútgáfu sinni og póstmálum í
heild. Landið hefir ef til vill gefið út sérstök
frímerki árum saman. Þau frímerki hafa
hins vegar verið gefin út samkvæmt
ákvörðunum móðurlandsins og einnig
seld þar, auk þess sem merki þess lands
hafa gilt á hlutaðeigandi landsvæði.
Einmitt í nágrenni okkar, hér á Smá-
löndum norðursins eða á Nord-Kalotten
eins og það er líka nefnt, höfum við mörg
dæmi þessa: ísland, Grænland, Færeyjar
og svo núna síðast eru það Álandseyjar.
Þær fengu póstsjálfstæði sitt einmitt á
þessu ári, nánar tiltekið um áramótin. Þá
voru gefnir út frímerkingarmiðar með
áletruninni Áland og teknir í notkun 4. jan-
úar. Voru það fyrstu viðbrögðin. Þann 1.
mars kom svo út frímerkjablokk með fjór-
um frímerkjum og svo eitt stakt frímerki.
Nú hafa Álandseyjar aðeins fengið það
sem kalla má heimastjórn en eru ekki
sjálfstætt ríki enn þá. Sem landsvæði til-
heyra þær enn Finnlandi. En pósturinn
þar hefir fengið algjört sjálfstæði og Þor-
steinn Wikstrand, sem hefur verið fram-
kvæmdastjóri póstmála á Álandi frá 1978,
er nú orðinn aðalforstjóri Pósts og síma á
Álandseyjum.
Þorsteinn Wikstrand, póstmálastjóri
Álandseyja.
yúK/Mo
ÁLAND
Stimplar afnýju gerðinni.
POSTEN :
Aland 1,90:
••••••••••••••
ÖVERTAGANDE
AV POSTVSSENDET
1.1.1993 PRIS 7,6(|
____ Nr 60-199;
Það var árið 1984, þann 1. mars, sem
fyrstu frímerkin sem bera nafn landsins,
komu út á Álandseyjum. Hins vegar voru
áður notuð þar finnsk frímerki og jafn-
framt með þeirra eigin frímerkjum allt
fram á 4. janúar 1993. Allt þetta hefur ver-
ið vandlega undirbúið á síðustu árum.
Pósthúsum hefur verið fækkað og nýir
stimplar gerðir fyrir þau. Er í þeim stimpl-
um að finna hið nýja merki póstsins sem
einnig er notað sem bakprent á frímerk-
ingarmiðunum, aðalmyndefni fyrsta dags
stimpla og á einu frfmerkjanna sem út
komu 1. mars 1993. Þetta frímerki er í frí-
merkjablokkinni. Auk þess er mynd af
áritunum á gömlu bréfi og svo myndir af
pósthúsinu í Mariehamn og einu skip-
anna sem flytur póst frá Svíþjóð og Finn-
MARIEHAMN
14.2.1993 1-3-1993
landi og til þeirra landa. Myndefni staka
frímerkisins er skjaldarmerki Álandseyja
og áritun um heimastjóm þann 1.1.1993.
Þá skulum við ekki gleyma því að einn
af félögum klúbbsins okkar á heima á
Álandi og er í mjög svo líflegum skiptum á
frímerkjum við að minnsta kosti þrjá fé-
laga hér heima.
SigurðurH. Þorsteinsson,
Laugarhóli, 510 Hólmavík.
Frímerkjablokkin sem gefin var út 1. mars.
Frímerkingarmiði.
18 Æ S K A N