Æskan - 01.04.1993, Blaðsíða 19
PUMST AÐ!
RNDUM NÁTTÚRUNA!
- segja börn og unglingar um allan heim - og ýmsir vinsælir tónlistarmenn.
Þið vitið að mengun ógnar víða
fólki, dýrum og gróðri. Undan-
farna áratugi hefur komið sí-
fellt skýrar í Ijós að menn hafa ekki
gætt nógu vel að sér í umgengni við
náttúruna. Fólk er nú farið að skilja
að varlega þarf að fara og mörgu
þarf að breyta.
í 3. tbl. Æskunnar birtum við bréf
frá Berglindi Halldórsdóttur í Kópa-
vogi (bls. 57). Hún sagði þar frá um-
hverfisverndarklúbbi í Bandaríkjun-
um (hann heitir Krakkar sem vilja
hreina jörð) og spurði hvort íslenskir
krakkar vildu verða félagar í slíkum
klúbbi.
Margir hafa skrifað henni og lýst á-
huga sínum. Það er gaman að vita.
Æskan styður þetta framtak. Ef til vill
getur það tengst þætti um náttúru-
vernd sem hefur göngu sína í næsta
tölublaði.
MARGAR
DÆGURSTJÖRNUR
á sviði tónlistar og kvikmynda og
afreksfólk í íþróttum hafa lýst yfir
stuðningi við umhverfisvernd. Þær
hvetja aðdáendur sína til að nota þau
efni, sem valda engum eða sem
minnstum skaða, og til að láta í sér
heyra um þessi mál. Ýmsar þeirra
hafa lagt fram fé til styrktar barátt-
unni.
Leikkonan Kim Wilde styður ensku
samtökin Vini jarðarinnar - bæði
með vinnu og peningagjöfum. Sam-
tökin vinna gegn mengun á láði, í legi
og andrúmslofti og að björgun dýra-
tegunda sem eru í útrýmingarhættu.
(Hún leggur reyndar líka sitt af mörk-
um í verkefninu Einu litlu skrefi - til
hjálpar börnum sem þjást af vöðva-
rýrnun).
Söngvarinn Sting barðist hat-
rammri baráttu gegn eyðingu regn-
skóga - söngkonurnar Sandra,
Madonna og Belinda Carlisle hafa ó-
Sandra berst gegn
tilraunum á dýrum.
trauðar stutt dýravernd og gagnrýnt
tilraunir á dýrum í vísindaskyni -
tennisleikarinn John McEnroe og
söngkonurnar Chryssie Hynde og
Wendy styðja notkun á vistvænu
þvottadufti - leikararnir Tom Cruise,
Richard Gere og Olivia Newton-John
(sérlegur sendiherra á vegum Barna-
hjálpar Sameinuðu þjóðanna) eru fé-
lagar í bandarísku verndarsamtökun-
um ECO - strákarnir í hljómsveitun-
um Bros og Big Fun styrkja ensku
dýraverndarsamtökin Lynx.
Þeir sem þekktir eru og vinsælir
geta haft mikil áhrif til góðs. Vonandi
láta sem flestir þeirra þannig í sér
heyra. En nauðsynlegt er að allir
leggist á eitt til að áfram verði lífvæn-
legt á jörðinni. Verum með!
- einnig Richard Cere
- Tom Cruise
- og Bros.
Kim styður umhverfisverndarsamtök
Æ S K A N 19