Æskan - 01.04.1993, Qupperneq 27
SVÖR VIÐ SPURNINGUM
1. Hvernig kemst maður fram hjá
stein-uglunni í „Shadow gate“
(Skuggahliði)? Hvernig opnar
maður steinhelluna - kemst fram
hjá brúar-skrímslinu í annað sinn -
og nær hlutnum sem liggur við
hliðina á konunni sem breytist í
úlf?
2. Hvernig kemst maðurfram hjá
arineldinum í „Fantazy World Dizzi“
(Undraheimi)?
3. Er einhvers staðar hægt að
panta leiki í Nintendo ef þeir eru
ekki komnirtil landsins?
4. Fer „Zelda lll“ ekki að koma
hingað?
ð.Hvernig kemst maður inn í
hella Bamonts skipstjóra í „Star-
tropex“ í Nintendo?
Sölvi Úlfsson.
Svör:
1. Kunningi minn sagði mér að
maður kæmist fram hjá brúar-
skrímslinu með því að kasta spjóti í
það. Ég hef ekki reynt leikinn sjálf-
ur. Ef einhver getur svarað öðrum
atriðum í spurningunni bið ég hann
að láta mig vita.
- Ég bið þá sem senda spurning-
ar um leiki að nefna úr hvaða tölv-
um þeireru.
2. Inni ídýflissunni máfinnaepli,
brauð og vatn. Eplið er notað til að
gefa verðinum. Hann þakkar fyrir
sig og segir að nota megi vatnið til
að slökkva eldinn. Þegar komið er
fram hjá svæðinu, þar sem eldur-
inn var, á að ná í steinvölu sem
liggur í næsta herbergi - fara síðan
upp og gefa rottunni brauð því að
þá fer hún í burtu og maður kemst
enn ofar.
Ef þú festist aftur skaltu skrifa
mér bréf og útskýra vel hvar og
hvernig þú ertfastur.
3. Já, það er hægt að kaupa
tölvublöð, svo sem Zone eða CVG.
í blöðunum er útskýrt hvernig á að
panta leiki. Þau fást í flestum bóka-
og tölvubúðum.
4. Ég hef ekki enn þá séð þann
leik í Nintendo en hluta hans í
Super Nintendo.
5. Ég get ekki svarað þessu. Ef
einhver lesandi veit svarið bið ég
hann að senda mér það svo að ég
geti fengið það birt í næsta tölu-
blaði Æskunnar.
GETRAUNIN
í 3. TÖLUBLAÐI
Svarið er IVIega Man.
Vinningshafar eru:
Unnur Anna
Sveinbjörnsdóttir,
Heiðarbæ 2,
Þingvallasveit, 801 Selfoss.
Halldór Örn Guðnason,
Giljalandi 28,108 Reykjavík.
BRÖGÐ
í mörgum leikjum í Nintendo,
PC, Atari, Lynx, Amiga og fleiri
tölvum er hægt að beita brögðum -
oftast til þess að verða „eilífur". Ég
mun í þáttunum lýsa ýmsum slík-
um brögðum sem ég kann og fæ
upplýsingar um.
Ásgeir Bjarni Ingvarsson lýsir
brögðum sem beita má í leiknum
Ævintýraeyjunni II („Adventure Is-
land II). Það er þannig: Hægri,
vinstri, hægri, vinstri, A, B, A, B. Þá
lifir leikmaðurinn allan leikinn.
í „Sonic" skal fara þannig að:
Upp, niður, vinstri, hægri - halda A
inni, ýta á „start“. Þá er hægt að
velja um borð.
Með kveðju,
Hafþór Kristjánsson,
Sjávargötu 5,
225 Bessastaðahreppi.
VINSÆLUSTU
LEIKIRNIR
HJÁ TÖLVULANDI í BORGARKRINGLUNNI:
(10.-17. apríl)
PC-tölvur:
Verð:
1. F-15 Strike Eagle III.................4.990
1. Challenge of the Five Realms......... 5.490
2. Rex Nebular...........................5.490
3. Sea Roge............................. 5.490
4. Knights of the Skies ................ 5.490
5. The incrediblp Machine ...............5.490
6. Civilization......................... 4.990
7. Space Quest V........................ 5.490
8. Railroad Tycoon ..................... 3.990
9. AV8B Harrier ........................ 5.990
10. Red Baron............................ 5.490
Sega Mega Drive
1. Krustys Super Fun House...............3.990
2. Alien III............................ 3.990
3. Fjórir leikir á einni................ 5.990
4. California Games..................... 2.990
5. Super Monaco GP...................... 3.990
6. LotusTurbo Challenge .................3.990
7. Sonic II............................. 3.990
8. Kid Chameleon ........................3.990
9. Simpsons............................. 3.990
10. Captain America.......................3.990
Nintendo og Nasa
1. Turtles III (sá nýjasti) .............3.490
2. Young Indiana Jones...................3.490
3. Darkman.............................. 2.990
4. 168 leikirá einni.................... 6.990
5. Killer Tomatos ...................... 3.490
6. The Blues Brothers................... 2.990
7. Felixthe Cat......................... 3.490
8. Skate or Die II...................... 1.990
9. Olympic Gold, Barcelona‘92........... 2.990
10. Frankenstein......................... 3.490
í Tölvulandi (s. 688819) fást margs konar stýrispinnar
og mikið úrval tölvuleikja. Verslunin sendir lista um allt
land (ókeypis).
Æ S K A N 2 7