Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.04.1993, Qupperneq 40

Æskan - 01.04.1993, Qupperneq 40
RED HOT CHILI PEPPERS Halló, halló Popphólf! Getið þið birt veggmynd og upplýsingar um Red Hot Chili Peppers? Æskan hefur verið keypt heima hjá mér samfleytt frá 1950. Þórdís Edda Guöjónsdóttir, Valdasteinsstöðum, Hrútafiröi. Svar: Það er gaman að heyra að fjölskyldan heldur enn tryggð við Æskuna! Red Hot Chili Peppers var sett á laggir 1982 i Hollywood í Bandarikjum Norður-Ameriku. Hún átti að vera fyrsta hljóm- sveitin til að sameina i eitt helstu músiktilbrigði blökkufólks (rabb-söng og fönk-dansmúsik) og harðneskjulega rokkmúsík hörundshvitra (pönk og þung- arokk). Michael Flea Balzary var einn eftirsóttasti bassagítarleikari heims þegar hann stofnaði hljómsveitina. Meðal þeirra sem gengu á eftir honum með gras- ið i skónum voru rabb-sveitin Public Enemy og enski pönk- rokkfrumkvöðullinn, Johnny Lydon (Rotten). Johnny vildi fá hann í hljómsveit sina Public Image, Ltd. Hægri hönd Mikjáls er söngv- arinn Anthony Kiedis. Nokkur uppstokkun hefur verið á mann- skapnum i hljómsveitinni, m.a. féll gítarleikarinn Hillel Slovek frá 1988. Dauðsfall hans var rak- ið til vimuefnaneyslu. í fyrra átti RHCP lag i efstu sætum flestra vestrænna vin- sældalista. Það heitir „Under The Bridge". Áður hafði hljóm- sveitin músikskreytt vinsælar kvikmyndir, „Say Nothing" (‘89) og „Pretty Woman“ (‘90). Þar áður spreytti Mikjáll Flea sig í kvikmyndaleik í myndinni „Suburbia“ (‘84). Áhrifa frá RHCP gætir víða i dægurlagaheiminum, allt frá Liv- ing Colour, Faith No More, Body Count og Rage Against Machine til Sálarinnar hans Jóns míns. Lag Sálarinnar, Krókurinn, er tekið hrátt úr smiðju RHCP. Umræddar hljómsveitir ganga ekki eins langt í grallaraskap og galsa og RHCP en sprell er eitt af aðaleinkennum Rauðu pipar- anna. Besta platan þeirra er „Abbey Road EP“ (‘88). MÖTLEY CRUE Kæra Popphólf! Getið þið birt fróðleiksmola um Mötley Crue? Mötley Criie-aödáandi. Svar: Mötley Crue var stofnuð i árs- byrjun 1981 í Los Angeles (Englaborg) i Kaliforníu í Banda- ríkjum Norður-Ameriku. Sama ár gáfu liðsmenn hennar sjálfir út plötuna „Too Fast For Love“. Þó að platan sé frekar léleg þá seldist hún mjög vel. Út á hana fékk MC-kvartettinn plötusamn- ing við Elektra-plöturisann. El- ektra gaf plötuna aftur út 1982 (þess vegna er útgáfuár plöt- unnar skrásett 1982 i plötulist- um). í upphafi var MC glysrokk- sveit. Liðsmenn hennar lögðu meiri áherslu á andlitsfarða og skrautbúninga en sjálfa músík- ina. Eftir hljómleikaferð með hljómsveitinni Kiss náði platan „Shout At The Devel“ inn á „20 efstu“ breiðskifuvinsældalistann í Bandaríkjunum. Á þessum tveimur fyrstu plöt- um MC mátti greina hæfileika þeirra pilta i söngvasmiðum. Einnig voru þeir fundvísir á að- laðandi gitar„riff“ (= siendurtek- in hljómaröð, hömruð hratt með hávaða og látum. „Riff“ eru ein- kenni gítarleiks Keiths Richards i Rolling Stones). Með þriðju plötunni, „Girls, Girls, Girls“ (‘87), náðu MC- drengirnir að samræma al- mennilega „riffin" og lagasmíð- arnar. Með þeirri plötu losuðu þeir sig jafnframt við slöpp upp- fyllingarlög sem háðu fyrri plöt- unum. Á árunum 1984-’88 varhljóm- sveitin stöðugt i vandræðum vegna áfengisdrykkju og neyslu annarra eiturefna. T.a.m. lenti söngvarinn, Vince Neil, i fang- elsi eftir ölvunarakstur sem leiddi til dauða farþega hans, Razzles, trymbils finnsku þunga- rokkssveitarinnar Hanoi Rocks. Þá fékk umboðsmaður MC fangelsisdóm fyrir vímuefna- smygl. Til viðbótar hékk tif Vince Neils á bláþræði 1987 eftir langvarandi vímuefnaneyslu. Honum var ekki hugað líf á tímabili. Þetta og fleira varð til þess að liðsmenn MC sameinuðust í á- taki við að úthýsa vímuefnum úr umhverfi sinu. Þeir fóru allir samtímis i áfengismeðferð og hafa siðan verið virkir i baráttu gegn vímuefnum. Þeir tóku þátt í gerð plötunnar „Stairway To Heaven, Highway To Hell“ sem er tileinkuð fórnarlömbum vimu- efnaneyslu (Jimi Hendrix, Elvis Presley, Janis Joplin, Jim Morri- son o.fl.). 1989 sendu MC frá sér plötuna „Dr. Feelgood". í titil- laginu er hörð ádeila á vimu- efnasala. „Dr. Feelgood“ og „Decade Of Decadence" (91) eru lang- bestu plötur MC. Þær plötur sýna enn einu sinni að allsgáð- ir ráða rokkararnir betur við músíkframleiðsluna en undir áhrifum vímuefna. í fyrra var Vince rekinn úr MC. í hans stað kom John Corabi. NKOTB, GN’R, METALL- ICA, NIRVANA OG REM Kæra Popphólf! Það mætti fækka eða sleppa umfjöllun um NKOTB og fjalla í staðinn um GN’R, Metallicu og Nirvana. Þið teljið texta GN’R vera fulla af fordómum. Reynið að komast yfir texta hljómsveitarinnar og athug- ið hvers þið verðið vísari. Tveir hressir á Stokkseyri. Kæra Popphólf! Ég er sammála Þorsteini í Stykkishólmi um að þið gerið of mikið úr NKOTB. Ég veit ekki um neinn á Höfn sem heldur upp á þá. Það væri nær að hafa vegg- mynd og umfjöllun um Metallicu og Deicide. „Rokkari" Hæ, Popphólf! Okkur langar að biðja þig að birta eitthvað um R.E.M., GN’R og Blue Swede. Eitthvað hefur verið birt um GN’R en ekki nóg. R.E.M. og Blue Swede hafa ekki fengið neina umfjöllun. Almaþebb Svar: Fyrst þetta um NKOTB: Þar er sannanlega ein allra vin- sælasta söngsveit síðustu ára til umræðu. Vinsældaval Æsk- unnar staðfestir það. Gaman væri að heyra frá fleiri Stokks- eyringum, Hólmurum og Hafn- arbúum um þetta mál. Hafa engir þar um slóðir gaman af NKOTB? Helsti kosturinn við NKOTB er sá jákvæði lifsstill sem þeir drengir boða, lifsstill ungmenna sem nota ekki áfengi eða önnur vimuefni - og hafa engan áhuga á slikri vitleysu. Þessi lifsstill birtist líka íjákvæðum viðhorfum til annars fólks, m.a. til fólks af öðrum kynþætti. Um GN’R hefur margt verið skrifað i Æskuna. Sú hljómsveit er að nokkru leyti andstæða við NKOTB, t.a.m. hvað varðarþað sem hér var nefnt um NKOTB. Að gefnu tilefni skal tekið fram að allar plötur GN’R eru til á heimili þess sem þetta ritar. Á þær plötur hefur verið hlustað vel og rækilega, svo rækilega að margir söngtextar hafa ómeð- vitað lærst utanbókar. Þess má geta að siðustu plötur GN’R eru lausar við fordómana sem settu Ijótan blett á þær fyrstu. Um Metallicu og Nirvana hef- ur töluvert verið fjallað í Æsk- unni. Líklega skuldum við helst greinarkorn um R.E.M. Nokkuð er liðið frá þvi sú hljómsveit var kynnt að ráði. Siðan hafa vin- sældir hennar aukist jafnt og þétt. í næsta þlaði getum við væntanlega haft væna grein um hana. iAk 4 4 Æ S K A N

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.