Æskan - 01.04.1993, Síða 52
í ÚTILEGU Á GRÍMS-
STAÐANESI
í Björgvin í Noregi eru starfandi
skátar sem kalla sig Riddara
(Væpnare). Þeir starfa innan Góð-
tempiarareglunnar. Riddararnir
voru stofnaðir um 1930. Þér leikur
eflaust forvitni á að vita hvernig
þessir skátar starfa. Já, þeir starfa
alveg eins og við heima á íslandi,
halda fundi þar sem þeir leysa
verkefni, syngja, skipuleggja ferðir
o.s.frv. og þar sem þeir starfa inn-
an Góðtemplarareglunnar, sem er
bindindishreyfing, eru þeir að sjálf-
sögðu ótvíræðir bindindismenn.
Nú hafði mér verið boðið í úti-
legu með Haukum, sem er félag
innan Riddaranna. Þeir ætluðu í
útilegu ásamt barnastúkunni Fram-
tíðardug (Fremad Fremtid) í Björg-
vin en á milli þeirra er mikil sam-
vinna.
Það var því föstudag einn í nóv-
ember að ég stóð ferðbúin og var
að fara í skátaútilegu í Noregi. Ég
hlakkaði mikið til að hitta norsku
skátana og kynnast starfi þeirra. Ég
hafði grafið upp skátabúninginn
minn sem legið hafði samanbrot-
inn í ferðatöskunni frá því ég kom
til Noregs. Eins og flestir vita er
ekkert eins gaman og að fara í úti-
legu því að skátalíf er útilíf.
Ég beið ásamt 70 öðrum eftir-
væntingarfullum skátum úr Hauk-
um og félögum úr Framtíðardug í
biðskýli í Björgvin eftir bílnum sem
átti að flytja okkur. Þetta var hópur
af lífsglöðu ungu fólki, sumir að
fara í fyrstu útilegu sína en aðrir
voru örlítið lífsreyndari. Sumirvoru
orðnir nokkuð óþreyjufullir að bíða
og fannst rútan lengi á leiðinni. En
loksins kom hún og færðist þá enn
meira fjör í mannskapinn. Nú var
gengið rösklega til verks. Þeir elstu
tóku að sér að koma farangrinum
fyrir en hinir áttu að koma sér fyrir
í rútunni og gekk það fljótt og
greiðlega.
Þá var lagt af stað og ekið í u.þ.b.
klukkustund að skálanum í Gríms-
staðanesi. Þegar allir höfðu komið
sér fyrir og kynnt sér staðhætti var
sest að snæðingi enda flestir orðn-
ir svangir. Eftir matinn var útilegan
sett og haldin stutt kvöldvaka þar
sem fólk fékk nasasjón af því sem
koma skyldi.
Laugardaginn tóku menn
snemma og ekki var vandamál að
fá fólk til að vakna. Þó höfðu þeir
hörðustu aðeins sofið í 4 tíma.
Morgunverður var framreiddur
klukkan 8 og sáu röskir og dug-
miklir krakkar um það.
Allir fengu síðan verkefni miðað
við aldur og það hve lengi hver og
einn hafði verið með í starfinu.
Eins og stundum gerist var skál-
inn ekki alveg í fullkomnu lagi.
Vantsdælan var biluð og þurfti að
sækja allt vatn niður í kjallara. Þá
var þar ekkert af þeim eldhúsáhöld-
um sem áttu að vera á staðnum en
það sakaði ekki því að einhverjir
höfðu verið svo forsjálir að taka
með sér það nauðsynlegasta.
í útilegunni var margt gert og
lært. Dagskráin varfjórþætt:
1. Að kynna sér starf „FORUT“
sem er þróunarhjálp Góðtemplara
og hófst á Sri Lanka 1968. Nú er
verið að hjálpa götubörnum í Ríó
de Janeiró í Brasilíu.
2. Að kynna sér skaðsemi áfeng-
is og annarra fíkniefna.
3. Að læra að hlaða bálköst.
4. Að læra hvernig nota á öxi.
Hópnum var skipt í fernt og voru
tveir hóparnir úti en hinir inni. Þeir
sem voru inni fyrir hádegi voru úti
5 6 Æ S K A N