Valsblaðið - 01.05.1984, Qupperneq 8

Valsblaðið - 01.05.1984, Qupperneq 8
r 6 VALSBLAÐIÐ Grétar Haraldsson formaður knattspyrnu-deildar. Bikarmeistarar 2. flokks 1984 ásamt þjálfara, formanni knattspyrnudeildar o.fl. Úr skýrslu stjórnar knattspyrnu- deildar fyrir starfsárrð 1984. Á aðalfundi knattspyrnudeildar Vals sem haldinn var að Hlíðarenda 12. janúar 1984 urðu nokkrar breyt- ingar á stjórn deildarinnar og bar þar hæst að formaður deildarinnar og gjaldkeri létu af störfum, en á þeim hafði léleg fjárhagsstaða deildarinnar bitnað mest. Þegr nýir menn tóku við voru þeir ftrilir bjartsýni en gerðu sér jafnframt grein fyrir að verkefnin voru mörg og brýn. í upphafi beindust störfin að því að ráða þjálfara fyrir m.fl. en þjálfarar annarra flokka höfðu verið ráðnir. Var þetta verkefni komið í óefni vegna tíma en í mars var gerður samningur við Ian Ross, Skota sem áður hafði m.a. leikið með Aston Villa og Liver- pool og hafði einaig mikla reynslu sem þjálfari. Við vorum ánægðir með ráðninguna en gerðum okkur jafn- framt ljóst að ráðning erlendra þjálf- ara hefur oft verið áhættuspil. Það er hægt að segja að okkur hafi hlotnast stóri vinningurinn. Ian Ross hefur reynst frábærlega vel og hefur hann haft góð tök á starfi sínu, sem kom gleggst fram í árangri M.fl. Vals, en við höfnuðum í öðru sæti á íslands- mótinu og unnum okkur þar með rétt til þátttöku í Evrópukeppni félagsliða, UEFA-keppninni á næsta ári. Óhætt er að segja að menn horfi til næsta keppnistímabils með bjartsýni og tekið verði á auknum verkefnum af festu. Árangur annarra flokka var viðun- andi, en ekki unnust íslandsmeistara- titlar. Hins vegar varð Valur Bikar- meistari bæði í M.fl. kvenna og II. aldursfl. Þjálfari beggja flokkanna var Hafsteinn Tómasson. Einnig unnust Reykjavíkurmeistaratitlar í Meistara- flokki karla og kvenna svo og IV. flokki. Óhætt er að segja að þátttaka í mót- um og keppnum hafi gengið vel og ver- ið þeim sem að því stóðu til ánægju. Það verkefni sem tók mestan tíma og skilaði því miður ekki viðunandi ár- angri var fjármálin. S.l. tvö — fjögur ár hefur hallað all verulega undan fæti varðandi fjármál Kn.d. Vals. Varð það til þess að fráfar- andi stjórn var mjög aðhaldssöm í út- gjöldum. Er ný stjórn tók við setti hún sér það mark að framkvæma og gera það sem nauðsynlegt var í von um að rætast mundi úr fjármálum. Á ýmsum sviðum fjáröflunar tókst vel til og má þar nefna auglýsinga- samning við Sjóvátryggingarfélag ís-

x

Valsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.