Valsblaðið - 01.05.1984, Page 9

Valsblaðið - 01.05.1984, Page 9
VALSBLAÐIÐ 7 Framtíðarmaður: Hinn efnilegi Bergsveinn Sampstcd tekur við sigurlaunum í bikarkeppni 2. flukks af lngva Guðmundssyni form. mótanefndar KSÍ. lands h.f., samstarfssamning við Adi- das auk sölu á auglýsingaskiltum að Hlíðarenda. En það verður að segjast, að viðbrögð margra eldri Valsmanna ullu vonbrigðum og þá sérstaklega hversu erfitt er að fá fólk til starfa að tilteknum verkefnum. Það er nú von mín að allir Valsmenn taki höndum saman og bregðist vel við þegar til þeirra verður leitað á komandi tímum. Ég er viss um að með sameiginlegu átaki á okkur að takast að komast út úr fjárhagsþrengingum og með þá trú að við komum til með að eiga góðu gengi að fagna á knattspyrnuvöllunum í sumar og að okkur takist að efla sam- stöðu og félagslíf Valsmanna vona ég að árið 1985 verði gott ár fyrir Knatt- spyrnudeild Vals. Grétar Haraldsson formaður Knattspyrnudeildar Vals Tveir af bezlu knullspvrnii- mönnum Vals, Grímur Sæ- mundsen fyrirliði og Hilmar Sighvatsson. VALUR Reykjavíkur- meistari 1984 Ársins 1984 verður kannski í sögu Vals minnst sem ársins þegar Valur varð Reykjavíkur- meistari. Öll meistaraflokkslið félagsins nema í kvennahand- bolta urðu Reykjavíkurmeistarar á árinu. Karia- og kvennalið knattspyrnunnar, körfuknatt- leiksliðið og karlalið handbolt- ans unnu sigur í Reykjavíkur- mótinu, og að sjálfsögðu einnig nokkrir af yngri flokkum félags- ins s.s. 2. og 5. flokkur karla í handknattleik, 4. flokkur í knattspyrnu og e.t.v. fleiri. Þetta er kannski ekki merki- iegur árangur, en ef allir meist- araflokkar félagsins yrðu ís- landsmeistarar sama árið, t.d. 1986 á 75 ára afmælinu, yrði ýmsum brugðið. Hví ekki að stefna að því? HH Anthony Karl Gregory lék sina fyrstu m.fl. leiki 1984 og slóð sig vel. Framtiðar- maður.

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.