Valsblaðið - 01.05.1984, Síða 10
r
Alll er nú reynl í Evrópuleikjum! Jakob Sigurðsson landsliðshornamaðurinn Geir Sveinsson, línu- og framlíðarmaður skorar í Evrópuleik.
slórel'nilegi reynir skol fyrir ulan.
Handknattleikur
Úrdráttur úr skýrslu stjórnar
handknattleiksdeildar 1982-
1983
Sú stjórn sem kjörin var á aðalfundi
deildarinnar í febrúar 1983 var þannig
skipuð:
Formaður (kosinn sérstaklega á aðal-
fundi): Guðmundur Frímannsson.
Gjaldkeri: Kjartan Gunnarsson. Með-
stjórnendur: Brynjar Harðarson og
Erna Lúðvíksdóttir.
Fulltrúi í HKRR var Þorberg Ólafs-
son, til vara Ágúst Ögmundsson og
Guðmundur Frímannsson.
Þjálfarar veturinn 1982-1983 voru:
M.fl. karla:
2. 0. ”
3. H. ”
4. tt. ”
5. n. ”
M.n. kvenna:
3. n. ”
Boris Akbashev og
Stefán Gunnarsson
Boris Akbashev og
Þorbjörn Jensson
Boris Akbashev og
Þorbjörn Jensson
Brynjar Harðarson
Magnús Blöndal og
Egill Sigurðsson
Jón Pétur Jónsson
Sigrún Guðmundsd.
Aimennt um starfið
Æfingar fóru aðallega fram í Vals-
heimilinu, Laugardalshöll og Hlíðar-
skóla, en einnig nokkrar æfingar í KR-
húsinu. Það eru handknattleiksfólki
vonbrigði að ekkert hafi verið aðhafst í
nýja íþróttahúsinu um langa hríð, en
jafnframt einlæg von að myndarlega
verði tekið á málinu sem fyrst svo sjá
megi fyrir endann á því.
Formaður deildarinnar varð að láta
af störfum eftir stutta viðdvöl. Það var
mjög bagalegt, því ljúka þurfti vetrar-
starfinu auk þess sem þjálfararáðning-
ar stóðu yfir. Bar þar hæst viðræður
við Hilmar Björnsson landsliðsþjálf-
ara. Samningar tókust á síðustu
stundu og Hilmar var ráðinn þjálfari
m.fl. karla, en vegna manneklu og for-
mannsleysis var frekari þjálfararáðn-
ingum slegið á frest.
í júníbyrjun barst freistandi tilboð
frá Þýzkalandi og var ákveðið að leik-
menn færu í æfinga- og keppnisferð-
ina á eigin kostnað. Þeir öfluðu fjár til
fararinnar á margvíslegan hátt og ferð-
in tóks síðan í alla staði mjög vel og
varð liðinu góður undirbúningur fyrir
veturinn.
Majjnca ,,Sysla“ Kriðriksdóllir lyrirliói Valslirts-
ins og primusinólor mcð Islandsbikarinn 1983.
Fjármál
Áfram tók að halla undan fæti hjá
deildinni fjárhagslega og stefndi í al-
gjört óefni í þeim málum. Ljóst var um
mitt sumar að meiri háttar kraftaverk
þyrfti til að koma ef takast átti að
standa í skilum við þjálfara meistara-
flokks, hvað þá ráða aðra þjálfara og
greiða þeim einhver laun. Vísað er til
næstu ársskýrslu varðandi það sem
næst gerðist í fjármálum deildarinnar.
Árangur í mótum
Þrjú mót unnust eins og leikárið á
undan og árangurinn er um 60%.
Hæst ber stórglæsilegan sigur meist-
araflokks kvenna í 1. deild.
Félagsstarfið
Enn einn veturinn leið án þess að um
markvisst félagsstarf væri að ræða.
Sem fyrr var félagsstarf yngri flokk-
anna háð því hvort þjálfarar þeirra
hefðu einhvern tíma aflögu til að sinna
því upp á eigin spýtur. Það skal ítrekað
að hér er mikið verk að vinna og nauð-
synlegt að hrinda því í framkvæmd hið
fyrsta.
Viðurkenningar
Á árshátíð félagsins voru eftirtaldir
félagar heiðraðir fyrir leikjafjölda með
m.fl.
Jón Pétur Jónsson 300 leikir
Þorbjörn Jensson 300 ”
Steindór Gunnarsson 300 ”
Gunnar Lúðvíksson 100 ”
Brynjar Harðarson 100 ”
Erna Lúðvíksdótir 100 ”
Sigrún Bergmundsdótti r 100 ”
Lokaorð
Þessi úrdráttur er unninn upp úr
skýrslu sem starfsstjórn er tók við
stjórn deildarinnar í umboði aðal-
stjórnar tók saman. Myndun bak-
varðasveitar og afreka hennar er getið
á öðrum stað.