Valsblaðið - 01.05.1984, Page 11
VALSBLAÐIÐ
9
B-lið Vals lckur í velur þált í bikarkcppni HSÍ. Hcr scst Áj>úsl Ögmundssun í dauðafæri i sigurlcikuuin gcgn IA (29-24).
Skýrsla stjórnar HKD.
1983/1984
Segja má að stjórn sú sem nú skilar
af sér störfum hafi ekki verið „rétt
kjörin“ í merkingu þeirra orða, þ.e.
kosin lögmætri kosningu á aðalfundi
deildarinnar, svo sem lög félagsins
mæla fyrir um. Heldur varð hún til á
einu kaffihúsi borgarinnar er Gunn-
steinn Skúlason kallaði nokkra menn
saman til skrafs og ráðagerða í fram-
haldi af frábærum fundum „Bakvarða-
sveitarinnar“ til endurreisnar deildar-
innar fjárhagslega.
Allir þeir sem leitað var til þorðu að
sjálfsögðu ekki annað en að taka sæti í
stjórninni og var eftirfarandi verka-
skipting ákveðin í franrhaldi af þessu:
Formaður: Bjarni Jónsson. Gjaldkeri:
Geirarður Geirarðsson. Meðstjórn-
endur: Stefán Gunnarsson, Guðmund-
ur Frímannsson, Gunnsteinn Skúla-
son, Jón Kristjánsson og Þórarinn Ey-
þórsson. Aðalafulltrúi í HKRR: Þor-
berg Ólafsson.
1. Æfingar og keppni
Eins og mörg undanfarin ár voru
æfingastaðir deildarinnar dreifðir um
hin ýmsu íþróttahús borgarinnar þ.e.
Valsheinrili, Laugardalshöll, Selja-
skóla og Hlíðarskóla. Það skal enn
einu sinni þrástagast á því hve óheppi-
legt þetta er fyrir starfsemi deildarinn-
ar og ljóst að handknattleiksfólk horf-
ir vonaraugum til nýja íþróttahússins
að Hlíðarenda. Vonandi að þessu l’ólki
verði brátt að ósk sinni og húsið verði
tekið í notkun innan fárra ára.
Óhætt er að fullyrða að árangur ein-
stakra flokkar á keppnistímabilinu sé
nokkuð viðunandi þótt æði misjafnt
sé. Hæst ber þó árangur 2. flokks karla
sem varð Reykjavíkur- íslands- og
Bikarmeistari. Einnig ber að minnast á
árangur 5. flokks karla sem varð bæði
Reykjavíkur- og íslandsmeistari. Að
öðru leyti vísast til yfirlita um árangur
í mótum.
Eftirtaldir voru þjálfarar hjá deild-
inni síðastliðið keppnistímabil:
Mfl. kvenna:
Mfl. karla:
2. fl. karla:
3. fl. karla:
4. fl. karla:
5. fl. karla:
3. fl. kvenna:
Jón Pétur Jónsson
Hilrnar Björnsson
og liðsstjóri Pétur
Guðmundsson
Þorbjörn Jensson
Brynjar Harðarson
Ingvar Guðmunds-
son
Magnús BI. Sigur-
björnsson og Egill
Sigurðsson
Sigrún Guðntunds-
dóttir
1 i 1
: S ; ,• B
M jfl
m ,4/1
ISIl
Y r .l j i
Kinar iMrvarðarson niarkvörúur Vals og laiiilsliösiiis. Sá jal'nbczli í gcgiiuin líðina.