Valsblaðið - 01.05.1984, Page 13

Valsblaðið - 01.05.1984, Page 13
VALSBLAÐIÐ 11 Tvcir Tommar (roða. Tommi í Tommahamborgurum og Tómas Holton hakvörflur Vals. Körfuknattleikur Úrdráttur úr skýrslu stjórn- ar körfuknattleiksdeildar fyrir tímabilið 22. júní 1982 til 9. júní 1983. Stjórn körfuknattleiksdeildar starfsárið 1982-1983: Sig. Lárus Hólrn formaður, Guðmundur Hallgrímsson gjaldkeri, Hafsteinn Hafsteinsson rit- ari, Gunnar Svavarsson, Haraldur Haraldsson og Marinó Sveinsson með- stjórnendur. I varastjórn: Einar Matt- híasson og Hafsteinn Hafsteinsson. Þjálfarar: Tim Dwyer með alla flokka nema 5. flokk og minnibolta sem Torfi Magnússon þjálfaði. Aðstaðan Æfingar á vegum deildarinnar voru í Valsheimilinu, íþróttahúsi Hagaskóla og íþróttahúsi Hlíðaskóla, og er baga- legt að æfingar skuli vera svo dreifðar um borgina. Körfuknattleiksmenn sem og aðrir Valsmenn bíða með óþreyju þeirrar stundar er nýja íþróttahúsið að Hlíðarenda verði tekið í notkun. Eru þeir tilbúnir til að leggja sitt af mörkum til að svo megi verða sem fyrst. Hér er um stórt verkefni að ræða sem allir Valsmenn verða að leysa með samstilltu átaki. Árangur Hæst bar glæsilegan árangur meistaraflokks sem endurtók afrekið frá 79-80 og vann alla titla sem um er keppt í körfuknattleiknum, þ.e. ís- lands-, bikar- og Reykjavíkurmeistara- titil. Frábær árangur. 2. flokkur stóð sig mjög vel, einkum í ljósi þess að flestir leikmannanna voru á fyrra ári í flokknum. Sama má segja um 3. flokk, og eru miklar vonir bundnar við hann. í 4. flokki var mikil mannfæð sem háði mjög allri starfsseminni þar. Starfið í 5. flokki og minniboltanum var aftur á móti mjög gott, og strák- arnir i 5. flokki sérlega áhugasamir. Fjármálin Eins og oft áður fór mestur timi stjórnarmanna í að útvega deildinni rekstrarfé. Tekjur af heimaleikjum voru því miður litlar og að miklu leyti bundnar við þrjá síðustu leikiiia, bikarleikina við IBK og IR og úrslita- leik íslandsmótsins við ÍBK. Áhorf- endum að körfuknattleik hefur farið fækkandi síðustu tvö keppnistímabil, en árin þar á undan voru þau bestu í sögu íslensks körfuknattleiks. Ýmislegt var gert til að afla tekna. Samningar voru endurnýjaðir við Hitachi-umboðið og Veitingahúsið Hollywood um auglýsingar á búning- um meistaraflokks. Kunnum við Vil- berg og Þorsteini, Hitachi-umboðinu, og Olafi Laufdal veitingamanni bestu þakkir fyrir samstarfið svo og Sport- vöruverslun Ingólfs Óskarssonar sem útvegaði skó og búninga. Þá ber að þakka framlag Vélsmiðju Einars Guð- brandssonar sem gefið hefur búning a ejnhvern yngri flokk deildarinnar undanfarin tímabil. Körfuknattleiksdeildin stóð fyrir tveimur ferðahappdrættum með helg- arferðum frá Flugleiðum í vinning. Firmakepni var haldin og hraðmót fyr- ir 3. flokk. Sigurvegarar í firmakeppn- inni var lið frá IBM og pylsubarnum í Tryggvagötu. Nefndum aðilum svo og öðrum ónafngreindum velunnurum deildarinnar er þakkaður veittur og vel metinn stuðningur. Félagsstarfið í júlí dvaldi 15 manna hópur frá deildinni í skíðaskála Vals. Að keppnistímabilinu loknu var haldið lokahóf fyrir þá elstu í Hollywood, einu helsta stuðningsfyrirtæki okkar undanfarið. Sú nýbreytni var tekin upp að gefa út fréttabréf. Alls komu út fjögur fréttabréf og voru þau send öll- um félagsmönnum sem eru í félagatali deildarinnar. Það hversú mikill tími fer í að halda íþróttadeildum gangandi frá degi til dags dregur mjög úr allri félagsstarfs- semi í íþróttafélögunum, en það hlýtur þó að vera einn af hornsteinum þeirra. Vonandi eru betri tímar í nánd þar sem hægt er að sinna félagsmálunum betur. Stjórn körfuknattleiksdeildar þakk- ar öllum þeim er lagt hafa deildinni lið, aðalstjórn og deildastjórnum sam- starfið með ósk um að Valur megi efl- ast og dafna um ókomna tíð. Sig. Lárus Hólm/HH

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.