Valsblaðið - 01.05.1984, Side 14
I
12
VALSBLAÐIÐ
Skýrsla stjórnar Körfuknatt-
leiksdeildar Vals fyrir tíma-
bilið 9. júní 1983 til 28. júní
1984.
Á aðalfundi deildarinnar 9. júní
1983, sem haldinn var í félagsheimili
Vals að Hlíðarenda, voru eftirtaldir
kosnir í stjórn fyrir starfsárið 1983-
1984.
Sigurður Lárus Hólm, formaður
Guðmundur Hallgrímsson, gjaldkeri
Einar Matthíasson, meðstjórnandi
Gunnar Svavarsson, meðstjórnandi
Marinó Sveinsson, meðstjórnadi
í varastjórn:
Haraldur Haraldsson
Heimir Jónasson
Alls voru haldnir 10 bókaðir fundir
á starfsárinu. Umsjónarmenn með ein-
stökum flokkum voru eftirtaldir:
Hafst. Hafsteinss., meistarafl.
Torfi Magnússon, 2. flokkur
Auðunn Ágústsson, 3. flokkur
Gísli Guðmundsson, 4. flokkur
Gunnar Svavarsson, 5. flokkur
Sig. Lárus Hólm, minnibolti
Á ársþingi Körfuknattleikssam-
bandsins í maí 1983 var samþykkt, að
fella úr gildi þá reglugerð í leikreglum
sambandsins, sem heimilaði notkun er-
lendra leikmanna, en þeir höfðu verið
hér á landi síðan keppnistímabilið
1977-1978. í framhaldi af þessari
breytingu var ákveðið að ráða Torfa
Magnússon, sem þjálfara fyrir
meistaraflokk, og var hann einnig leik-
maður með liðinu. Torfi sá einnig um
þjálfun þriðja flokks. Aðrir þjálfarar
hjá deildinni voru Leifur Gústafsson
og Tómas Holton, sem þjálfuðu fjórða
flokk, Páll Arnar þjálfaði fimmta
flokk og Helgi Gústafsson var þjálfari
minniboltastrákanna.
Eins og undanfarin ár voru æfingar
hjá deildinni á þrem stöðum í borg-
inni, þ.e. í Valsheimilinu, Hlíðaskóla
og í hinu nýja íþróttahúsi Seljaskóla í
Breiðholti. Heimaleikir félagsins í úr-
valsdeildinni voru í Seljaskólahúsinu,
en höfðu undanfarin ár verið í íþrótta-
húsi Hagaskóla. Miðað við keppnis-
tímabilið 1982-1983 þá varð 20%
fjölgun áhorfenda á heimaleikjum
félagsins á-nýliðnu Jfceppnistítaabili, og
er úrslitakeppnin þá ekki meðtalin.
Vafalaust á nýr heimavöllur sinn þátt í
þessari aukningu áhorfenda, enda er
aðstaðan fyrir áhorfendur ekki sú allra
ÞaA er stíll ytir Torl'a Magnússyni þegar hann
gnælir yfir viirn UMFN og sendir knötlinn rétta
boöleiö, í körfuna.
besta í Hagaskólanum. Þá er það einn-
ig athyglisvert að þessi fjölgun á sér
stað árið eftir að erlendir leikmenn
hafa verið bannaðir, en undanfarin ár
hefur áhorfendum fækkað stöðugt,
þrátt fyrir nærveru erlendra lei'k-
manna.
í byrjun september fór meistara-
flokkur félagsins í keppnisferð til Nor-
egs. Farið var utan á miðvikudegi og
komið heim á mánudegi. Fyrsti leikur-
inn var á miðvikudagskvöldinu, og var
hann við norska 1. deildarliðið Asker.
Leikurinn var þáttur í hátíðarhöldum
vegna vígslu nýs íþróttahúss í Asker.
Síðan tók liðið þátt í fjögurra liða móti
í Osló ásamt norska landsliðinu, sænska
1. deildarliðinu Alvik og norska 1. deild-
arliðinu Bærum. Okkar lið hafnaði í
neðsta sæti á mótinu, eftir mjög jafna
og tvísýna leiki við þá norsku.
Valur sendi keppnislið í öllum karla-
flokkum til keppni í þeim mótum, sem
félagið hefur þátttökurétt í. Árangur
meistaratlokks er ílestum væntanlega
kunnur, en hann sigraði í Reykjavíkur-
mótinu. Er þetta fjórði sigur í mótinu
á undanförnum fimm árum. Um
l orfi Magniisson núvcrandi þjállari ValsliAsins í
körfnknaltlcik liampar cinum vcrölaumiin sigur-
ársins 1083.