Valsblaðið - 01.05.1984, Page 15
VALSBLAÐIÐ
13
miðjan janúar síðastliðinn virtist sem
fallbarátta blasti við liðinu í íslands-
mótinu, en þá tók meistaraflokkurinn
sig saman í andlitinu, ef svo má að orði
komast, og vann tiu leiki í röð. Eru
þá meðtaldir tveir bikarleikir, en þessi
sigurganga hófst einmitt með frækn-
um sigri á ÍR í bikarkeppninni. Með
þessum mikla fjörkipp komst Valur í
úrslitakeppni úrvalsdeildarinnar. í
fyrri umferð hennar lagði Valur KR af
velli, en beið svo lægri hlut fyrir
UMFN og hafnaði í öðru sæti á mót-
inu. Félagið komst einnig í úrslit í
bikarkeppninni, en tapaði fyrir Kr. Einn
mótssigur og tvö silfurverðlaun er árang-
ur, sem hlýtur að teljast góður, þó óneit-
anlega hafi mörgum þótt sárt að tapa
tveim titlum á síðustu stundu. Enginn af
Tómas Holton einn ei'nilegasti bakvörður landsins
og lykilmaður i Valsliðinu þrátt fyrir lágan aldur.
Kristján Ágústsson, máttarstólpi i mörg ár, cin
beittur undir körfunni.
yngri tlokkum félagsins komst í úr-
slitakeppni í sínum aldursflokki og við
svo búið má ekki lengur una. Sterkustu
yngri tlokkar félagsins eru fjórði og
fimmti flokkur, og þó svo að þeir hafi
ekki náð í úrslitakeppnina, þá var unn-
ið þar gott starf. Við þessa flokka eru
bundnar miklar vonir í framtíðinni og
þá einkum fjórða flokk hvað varðar
næsta ár, en hann verður þá óbreyttur.
Starfið í minniboltanum hófst með
öðrum hætti á síðasta hausti heldur en
í öðrum flokkum. Allir strákarnir sem
verið höfðu í minniboltanum voru
gegnir upp í fimmtaflokk. Var því
gripið til þess ráðs, að senda boðskort
til stráka í Valshverfinu og næsta ná-
grenni þess, um að koma á körfubolta-
kynningu í Valsheimilinu. Þetta skilaði
mjög góðum árangri, og á félagið nú
hóp af mjög áhugasömum strákum í
minniboltanum, og var unnið vel þar á
liðnum vetri.
Undanfarin ár hefur deildin haft
auglýsingasamning við umboðsmenn
Hitatchi hér á landi svo og veitingahús-
ið Hollywood, en á nýliðnum vetri lék
meistaraflokkur með auglýsingu frá
fyrirtækinu Egill Vilhjálmsson hf. Vél-
smiðja Einars Guðbrandssonar gaf
búninga á annan flokk, Veitingahúsið
Potturinn og Pannan gaf búninga á
þriðja flokk og Hilda hf á fjórða
flokk. Þa gaf Ragnars bakarí búninga
á fimmta flokk. Varðandi aðrar fjár-
aflanir til handa deildinni voru farnar
hefðbundnar leiðir, sem enn virðast
du§a hvað sem síðar verður.
A árinu var félagatal deildarinnar
tekið til gagngerrar endurskoðunar, en
það var orðið mjög lélegt. Þeirri
endurskoðun er lokið, og hefur deildin
nú sitt eigið félagatal, sem mikilvægt
er að verði viðhaldið.
Á liðnum vetri var tekin upp sú ný-
breytni að kjósa Körfuknattleiksmann
Vals, og var hann valinn af leikmönn-
um meistaraflokks, þjálfara og liðs-
stjóra. Fyrstur til að hljóta þennan titil
var Tómas Holton, og var viðurkenn-
ingin afhent honum á árshátíð Vals.
Að lokum vill stjórn körfuknatt-
leiksdeildar Vals þakka öllum þeim,
sem veitt hafa deildinni brautargengi
liðnu ári. Aðalstjórn og öðrum deild-
arstjórnum er þakkað gott samstarf,
með ósk um að svo verði áfram og að
saman verði unnið að eflingu Vals.
F.h. stjórnar
Körfuknattleiksdeildar Vals
Sig. Lárus Hólm, formaður