Valsblaðið - 01.05.1984, Page 17

Valsblaðið - 01.05.1984, Page 17
VALSBLAÐIÐ 15 Frá Valskonum: Skýrsla Valskvenna 1983 - 1984 Stjórn Valskvenna 1983 - 1984: Formaður: Margrét Kristjánsdóttir V.form.: Björg Jónsdóttir Gjaldkeri: Sigrún Sigvaldadóttir Ritari: Kristín Magnúsdóttir Meðstjórn: Erla Vilhjálmsdótttir, Sigrún Sigurðardóttir og Hildur Guðmundsdóttir. Starf Valskvenna þetta ár hefur ver- ið með hefðbundnum hætti og verður svo áfram í vetur og skal hér stiklað á stóru um starfsemina. í febrúar 1983 tókum við upp þá ný- breytni að halda þorrablót í félags- heimili Vals. Milli 60 og 70 manns mættu og vorum við ánægðar með þá mætingu. Heldur fannst okkur fólk halda illa út, því flestir voru farnir um miðnætti. Má það vera húsakynnum að kenna. En þarna náðum við saman fólki úr flestum deildum félagsins og þá er tilganginum náð. Við fengum Heiðar Jónsson snyrti á fund til okkar í apríl, og fræddi hann okkur um allt hið mögulega og ómögu- lega í sambandi við kvenfólk og endaði hann með því að snyrta eina úr hópn- um. Á Valsdaginn, sem var haldinn 4. sept. 1983, seldum við Valskonur kaffi og er það okkar eina fjáröflun fyrir fé- lagið. Á fyrstu árum Valskvenna keypti félagið ljós og gardínur í gamla félagasheimilið og einnig voru veggir málaðir. Ekki hefur verið talin þörf að endurnýja það frekar, þar sem nýtt heimili er að rísa. Við munum því bíða með frekari fjáraflanir þar til við get- um farið að nýta krafta okkar fyrir nýja félagsheimilið. Ég vil þakka öllum þeim konum sem gáfu kökur fyrir Valsdaginn 4. sept. Án þeirra hefði ekkert kaffi verið selt. Það fer aldrei svo að það safnist ekki eitthvað og við töldum okkur geta séð af 24 þús. krónum, og var Sigurði Guðmundssyni form. Skíðadeildar Vals afhent féð til ráðstöfunar, á fundi sem haldinn var í Skíðaskála Vals 2. júní s.l., en Valskonur gáfu skálanum gestabók við opnun hans í mars 1982. Starf vetrarins átti að byrja i okt. með félagsvist, sem hafði tekist mjög vel árið áður. Send höfðu verið út um 70 bréf þess efnis, en einhverra hluta vegna mættu það fáir, að ekki var hægt að spila. En við létum það ekki á okkur fá, vorum með kynningu á jólaföndri í nóv., sem við unnum svo lítillega við á jólafundi í des. undir jólaglöggi og piparkökum. Jólaball var síðan haldið 7. jan. Tvær Valskonur á vinnufundi Valskonum var falið það stóra verk- efni að sjá um árshátíð Vals 1984. Snemma s.l. haust var pantað hús og árshátíðin ákveðin 14. apríl í Kvosinni, en síðar kom upp mikil óánægja með stað og stund. Var þá strax ákveðið að flýta henni og pantaðir voru salirnir Óðinn & Þór 3. mars. Snemma í febrúar var miðasala sett í gang og fengu formenn allra deilda miða til þess að selja sínu fólki, þannig fengum við meiri breidd í söluna. Tókst þetta bara nokuð vel, um 150 manns mættu á þessa árshátíð, 127 neyttu kvöldverðar. Formenn handbolta, fótbolta og körfubolta afhentu verðlaun og viður- kenningar, síðan var sungið og dansað til kl. 2 og ekki hefur heyrst annað en að fólk hafi bara skemmt sér vel. Veislustjóri var Ágúst Ögmundsson og þökkum við Valskonur honum frá- bæra stjórn svo og öllum öðrum Vals- mönnum sem lögðu hönd á plóginn. Formaður Valskvenna hefur setið fundi hjá aðalstjórn, ásamt for- mönnum annarra deilda hjá Val og er það mikill kostur að geta fylgst með hvað er að ske innan félagsins. Við Valskonur höfum nokkrar áhyggjur yfir því hvað lítil endurnýjun er í okkar félagi. Við viljum hvetja all- ar konur, ungar sem aldnar, sem tengj- ast Val á einhvern hátt, að starfa með okkur. Það er óneitanlega styrkur fyrir félagið að sem besturn kynnum verði komið á milli deilda og besta lausnin til að svo megi verða, er að starfa í Vals- konum. Formaður Valskvenna Margrét Kristjánsdóttir FLENOX FLENOX ál loftstokkarnir eru seldir í 80 cm lengd- um sem má teygja út í 3. m lengd þegar þeir eru settir upp. FLENOX er til í 80 til 160 mm þvermáli, einangraöir eöa án ein- angrunar. mmwsvn siiii éá^ÉiM—i— LátiÖ FLENOX leysa vandann á ótrúlega ein- faldan hátt. Hagstætt verd. 'B BREIÐFJÖRÐS BLIKKSMIÐJA HF Leitió nánari upplýsinga aöSigtúni7 Simis29022

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.