Valsblaðið - 01.05.1984, Síða 19

Valsblaðið - 01.05.1984, Síða 19
VALSBLAÐIÐ 17 Hver er Valsmaðurinn? Það er ávallt erfitt að velja mann til kynningar í þátt sem þennan. Þeir eru svo margir Valsmennirnir sem unnið hafa ómetanlegt starf í þágu félagsins að ógerlegt er að geta þeirra allra. Sá sem valinn er hlýtur því að teljast eins konar samnefnari eða tákn allra þeirra dugmiklu forystumanna sem ónefndir eru. Þegar nefndur er sá sem fyrir valinu hefur orðið sem fyrirmyndar Valsmað- ur spyr væntanlega enginn: Hver er Valsmaðurinn? Og þó? Elías Hergeirsson er nefni- lega ekki einn þeirra sem mikið ber á, heldur vinnur hann verk sín fyrir Val í kyrrþey og án þess að gera mikið úr þeim. Þannig er mögulegt að yngri fé- lagarnir svo og þeir sem nýir eru þekki ekki þennan mikla Valsmann. Hinir sem starfað hafa innan félagsins undanfarna áratugi vita að fáir menn hafa á þeim tíma unnið Val betur en einmitt Elías. Hann hefur verið virkur félagi i Val síðan 1951, fyrst sem leik- maður, þá þjálfari, dómari og forystu- maður, og á þessum 34 árum hafa ekki fallið úr nema eitt ár eða tvö í starfi fyrir Val. Geri aðrir betur! Ferillinn: Elías Hergeirsson var 13 ára er hann hóf 1951 að æfa knattspyrnu með Val, nánar tiltekið 4. flokki. í yngri flokkunum var hann samferða Björgvin Hermannssyni, markverð- inum snjalla, og markvarðaskelfinum Björgvin ÐaníelssyftL Með þeim léku ýmist Ormar Skeggjason, Páll Aronsson og fl. eða Björn Júlíusson, Matthías Hjartarson, Þorsteinn Friðþjófsson o.fl. Þrívegis varð Elías íslandsmeistari með Val í yngri flokkunum, en þar kom að pilturinn var valinn í meistaraflokkslið Vals. Árið var 1956 og Elías aðeins 18 ára. Fyrsti leikur hans var í Reykjavíkur- mótinu gegn Þrótti, 2-0, en fyrsti leik- urinn í íslandsmótinu var við ÍBA, 1-0. Þessari góðu byrjun var fylgt eftir og Valur varð íslandsmeistari 1956, í fyrsta skipti síðan 1945. Með Elíasi og þeim félögum hans sem nefndir eru hér að framan léku Árni Njáls. (,,með arma stáls“), Bergsteinn Magnússon, Ólafur Ásmundsson o.fl. Elías lék næstu árin með meistaraflokki, alltaf sem framvörður (,,vinstri-half“) og ávallt í peysu nr. 6. 1963 varð Valur Reykjavíkurmeistari og ári síðar hætti Elías keppni, aðeins 26 ára að aldri. Aðspurður um helstu þjálfara sem hann lærði af segir Elías: ,,í yngri flokkunum hafði Guðbrandur Jakobs- son einna mest áhrif á mig. Það var í 3. flokki. Sem dæmi um meistaraflokks- þjálfara á þessum árum má nefna Geir Guðmundsson og Framarann Karl Guðmundsson sem var með mjög sk- emmtilegar æfingar.“ Félagsstörfin: Elías hætti keppni með meistaraflokki Vals aðeins 26 ára að aldri. Hvers vegna? ,,Ég var kominn með fjölskyldu og þar að auki á kaf í stjórnarstörf fyrir Val. Ég hafði bara ekki kraft til að sinna öllu.“ Elías byrjaði ungur að sinna ýmsum störfum fyrir Val. Aðeins 17 ára var hann farinn að þjálfa yngri flokka félagsins, fyrst 5. flokk í þrjú ár með Hermann Gunn- arsson (fyrirliða) og Bergsvein Alfonsson í fararbroddi (síðar varð Elías Reykjavíkurmeistari í m.fl. með þessum mönnum, 1963) 18 ára var Elías kominn í varastjórn Vals og árið 1959 þegar félaginu var skipt upp í deildir var Elli kosinn í fyrstu stjórn knattspyrnudeildar sem var undir forystu Ægis Ferdinandsson- ar. Elías var meira og minna í stjórn knattspyrnudeildarinnar frá 1959 til 1973, þar af formaður deildarinnar 1966-’69, en á þeim árum varð Valur tvívegis Islandsmeistari, lék ógleyman- legan leik við Benfica o.fl. o.fl. Þótt Elías drægi sig í hlé frá stjórnar- störfum hélt hann áfram að vinna fyrir Val. Hann gerðist fulltrúi Vals í KRR og var starfandi þar unz hann tók sæti í aðalstjórn Vals 1981. Þar hefur hann verið síðan, gjaldkeri, en hann á einnig sæti í varastjórn ÍSÍ. Enn er ekki allt upp talið. Elías tók snemma dómarapróf en dæmdi lítið framan af vegna anna við stjórnarstörf. Hann tók þó fram flautuna til að bjarga Val þegar dómarahallæri rikti hjá félaginu og dæmir oft leiki í yngri flokkunum. Þetta lýsir vel Valsmanninum Elíasi Hergeirssyni. Hann hefur alltaf verið boðinn og búinn til að vinna Val gagn og hefur þá ekki skipt máli hvort þyrfti að hlaupa í skarðið fyrir dómara sem mætti ekki eða taka fram málningar- pensil og mála eitt stykki félagsheimili. Elli var einmitt einn þeirra fáu en fúsu Valsmanna sem tóku þátt í endurreisn félagsheimilisins okkar nýverið. Fáir menn eru bónbetri þegar Valur er annars vegar og minnir Elli um margt á gömlu góðu vinnusömu Vals- mennina, sem ekkert töldu eftir sér, menn eins og Sigga Óla, Andreas Berg- mann, Úlfar Þórðar, Frímann Helga, Elías Hergeirsson. Magnús og Jóhannes Bergsteinssyni, Hólmgeir Jónsson, Guðmund Ingi- mundar, Þórð Þorkels o.fl. Elli minnir um margt á síðasta Móhikanann, virkar sem tímaskekkja nú þegar enginn fæst til að gera neitt nema fyrir peninga og sjálfboðastörf eru eitthvað sem flestir reyna að koma sér undan. Hvert er leyndarmál Elíasar? Af hverju er hann enn að starfa fyrir Val? ,,Það er eitthvað sem heldur í mann. Ég er mikil félagsvera og hef gaman af því að umgaogast skemmtilegt fólk. Auðvitað koma tímar þar sem maður er þreyttur, en ítök Vals eru sterk þótt ég sé fæddur Vesturbæingur. Þó ég fái mikið út úr félagsstarfinu hefði þetta ekki verið hægt í öll þessi ár ef frúin hefði sett sig upp á móti þessu.“ Elías er giftur Valgerði Önnu Jónas- dóttur, prýðis konu og eiga þau fjögur börn á aldrinum 9-17 ára. Elstur er Hergeir 17 ára, bráðefnilegur leik- maður í 2. flokki Fram og stelpurnar tvær 12 og 14 ára æfa líka handknatt- leik og knattspyrnu með Fram. Af hverju Fram, Elías? ,,Nú, við fluttum í Framhverfið (í Safamýrina) og þar sem starfið er gott hjá Fram hef ég ekki skipt mér af félagsvali barnanna.“ „Heimaleikir Vals verði allir að Hlíðarenda.“ Að lokum, Elías. Hverju er ábóta- vant í starfi Vals núna og hvaða óskir hefur þú Val til handa?? ,,Félagsstarfið er ekki nógu lifandi

x

Valsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.