Valsblaðið - 01.05.1984, Blaðsíða 23
VALSBLAÐIÐ
21
Valsmenn oj> Nacional á vellinum i Campos do Jordao.
Þarna var þó sofið fyrstu nóttina við logandi
ljós. Það hafði net'nilega sýnt sig að ef slökkt var
í smá tíma og síðan kveikt aftur fóru veggirnir á
fleygiferð af alls konar kvikindum allt upp í lófa
stór. Þessu var svo kippt í liðinn daginn eftir,
eftir að rætl hafði verið við skipuleggjendur
mótsins og aðra ráðamenn og fengu Valsntenn
kjallara skólans til afnota - eitt stórt herbergi,
frekar loftlaust en þurrt og ólífrænt.
6. lið tóku þátt í þessu móti eins og hinu fyrra.
Sömu liðin þrjú Valsmenn, Frakkarnir og Sví-
arnir en þrjú ný Brasilísk lið bættust í hópinn,
Guarani, Amparo og Írapíra. Keppt var á tveim
völlum frá Ítapíra.
Það sem helst einkenndi þessa keppni voru
þrumur og eldingar ásamt úrhellis rigningu.
Leikirnir fóru fram á kvöldin og áttum við fyrsta
leik mótsins þ. 3. apríl gegn Svíum. Svíar unnu
3-0. 4. april var spilað við ltapíra og unnu þeir
einnig 3-0. 5. apríl lékum við gegn Frökkum og
töpuðum 1-0 i leik sem við áttum.
Þegar hér var komið sögu voru 6 af fasta-
mönnum Valsliðsins komnir á sjúkralista, einn
með lungnabólgu og brákað rif, tveir snúnir um
ökkla, einn búinn i baki, annar í hné o.s.frv. en
alls voru leikmenn 16 að tölu. Nú voru góð ráð
dýr, hvað átti að gera þegar varla náðist i lið,
hvað þá að til væru varamenn. Þjálfari tók þá
ákvörðun að hætta i mótinu þar sem Reykja-
víkurmótið var frantundan þegar heim kæmi,
auk þess sem hann taldi ekki forsvaranlegt að
láta þá yngstu spila á móti brasilísku liðunum
tveim, Amparo og Guarani og þeim hörkutólum
sem þar voru. Sem dæmi má nefna að þessi lið
léku saman strax á eftir leik Vals og Frakkanna
og var harkan svo mikil að það þurfti lögreglu til
að skakka leikinn.
Ekki voru allir á eitt sáttir með þessa
ákvörðun þjálfarans, en eftir að liafa rætt við
leikmenn og fararstjóra var þessi ákvörðun
santþykkt nær einróma.
Dvölin i ítapira var engu að siður ánægjuleg
þrátt fyrir að ekki hefðist að klára keppnina.
Farin var dagsferð á búgarð út i sveit, þar sem
ræktaðar voru allar helstu tegundir ávaxta. Þar
fengunt við að sntakka á sykurreyr og t'leiru
góðgæti sent annað hvort var tint beint af
5-1. Einar Páll skoraði markið með þrumuskoti
utan vítateigs, boltinn small i slánni og inn,
glæsilegt mark og eina rnarkið sem Nacional
fékk á sig í keppninni. Þ. 28. var keppt við
Juventus og töpuðum við 6-0. Þann 29. var frí-
dagur i mótinu. Þá var haldið sent leið liggur til
baðstrandabæjarins Ubatuba. Þar var flat-
magað i sólinni og siglt á skemmtibát út í eyju
eina og unt sundin blá.
Haldið var til baka þegar kvölda tók upp eftir
snarbröttum og krókóttum fjallavegi umluktum
frumskógi á alla vegu. Á miðri leið gafst önnur
rútan upp og urðum við ásamt nokkrum F’rakk-
anna að ganga sem leið lá upp á topp þar sem
rútan beið, en upp komst hún án farþega. Þegar
halda átti af stað aftur birtist þessi líka frýnilegi
snákur í ljósgeislanum frá bilnum, fór þá hrollur
um marga göngumannanna sem einungis voru
klæddir stuttbuxum og táskóm.
30. mars spiluðum við svo við Frakkana og
unnum 1-0 og var þar Einar Páll aftur á ferðinni.
31. spiluðum við við heimaliðið, Campos do
Jordao, og endaði sá leikur 1-1. Það mark skor-
aði Jon Þór Andrésson.
Leikirnir hófust oftast kl. 2 og áttum við alltaf
fyrsta leik nema gegn Frökkunum, þá átturn við
annan leik. Þetta kom sér frekar illa því við vor-
um jú sú þjóðin sem síst þoldi hitana og sólina.
Gegn þessu var aðeins eitt ráð og það var að ausa
leikmenn vatni I hálfleik og vakti það óskipta
athygli og skemmtan heimamanna.
Lokaniðurstöður mótsins urðu þær að Brasil-
isku liðin skipuðu 1.2.og 3. sætið, Svíar 4. sæti
með 4 stig. Valsmenn 5. sæti með 3 stig og
Frakkarnir 6. sæti með ekkerl stig.
Dvölin á þessum stað var einstaklega eftir-
ntinnileg. Okkur var alls staðar mjög vel tekið og
strákarnir sérstaklega vel liðnir og vel þekktir
fyrir prúðmannlega framkomu hvorl heldur var
i keppni eða utan hennar. Hamborgarastaður
einn átti hug og hjörtu leikmanna jafnt og farar-
stjóra þvi hrísgrjón, skósólar (kjötsneiðar) og
olíur höfðu verið á borðum frá fyrsta degi til
þess síðasta. Fæðið breyttist svo við komuna á
næsta keppnisstað en þá höfðum við Valsmenn
farið fram á að fá soðnar kartöflur og grænmeti
í stað hrísgrjónanna. Einnig breyttust kjötmál-
Valshópurinn neðan við Kristsstyttuna i Ríó.
tiðir til hins betra, skósólarnir urðu m.a. að
kjötbollum, buffi og lærissneiðum auk kjúkl-
inga og alltaf var til nóg af ferskum ávöxtum.
Næst var haldið til Ítapíra, 70-80 þúsund
manna bæjar norðan við Sao Paulo. Sömu
vandræði voru i sambandi við húsnæði fyrstu
nóttina i Ítapíra og verið höfðu í Campos do
Jordao nema nú voru það eðlur og önnur kvik-
indi ásamt lekavandamálum en ekki kojur sem
við var að etja.
Úrhellis rigningu gerði fyrsta kvöldið og fór
allt á flot. Svíar fengu 10 bala herbergi og Frakk-
ar 5 bala i aðalhúsi skólans en Valsmenn lentu í
útihúsi sem fór gjörsamlega á flot og þar sem allt
lifrænt lifnaði við eftir langvarandi þurrka.