Valsblaðið - 01.05.1984, Side 27

Valsblaðið - 01.05.1984, Side 27
VALSBLAÐIÐ 25 stunduð þjóðaríþrótt Islendinga, versl- unarferðir. Þarna í miðlöndum er verðlag mun hagstæðara en í London, og menn gerðu góð kaup í stuttum ferðum í miðbæ Wolverhampton eða alvöruverzlunarleiðangri til Birming- ham. Mikið var um leiki í enska bolt- anum á þessum tíma og fór hópurinn á nokkra leiki. Sá fyrsti var Birming- ham-QPR, 0-0 og menn misstu allt álit á enskri knattspyrnu. Næst sáum við Leicester-Liverpool, 3-3 í leik sem hafði allt upp á að bjóða, góða knatt- spyrnu, hraða, spennu og glæsileg mörk. Síðast sáum við Aston Villa- Watford sem er einkum minnisstæður Kapteinn Grímur Sæmundsen tekur á móti gjöf frá York-hóteiinu ór hendi eigendanna, Denzil og Ann Martin. aðstandendum nokkrum áhyggjum að það þyrfti 37 ára gamlan skozkan leikmann til að koma liðinu í gang. Þennan leik unnum við 2-0 með tveim- ur glæsimörkum gerðum af Jóhanni Holton, en hann kom mjög á óvart í ferðinni. Á nrilli leikja var æfing á hverjum degi,stundum tvær á dag og voru þær öðruvísi en menn áttu að venjast. T.d. var mikið uni langhlaup með sprettum upp brekkur og stuttri ,,hvíld“, sem notuð var fyrir teygjur og staðæfingar. Það sem frábrugðið var við þessi langhlaup var vegalengdin sem hlaupin var, en húnvar oftast 10-15 km. sem er mun lengra en menn sem eru að æfa fyrir knattspyrnu eiga að venjast. Þá var ,,hvíldartíminn“ mikilvægur, en þá notaði Ross tæki- færið og lagði mönnum lífsreglurnar í knattspyrnulegum skilningi, kom skoðunum sínum á framfæri og lagði grunninn að þeirri samkennd, skilningi og liðsanda sem ríkti í sumar. Einn daginn var farið til Lilleshall Sport Center sem er íþróttamiðstöð í eigu enska íþróttasambandsins og mikið notuð af landsliðum Englands. Þetta var hin glæsilegasta aðstaða og æfingarnar voru skemmtilegar á góðum völlum í prýðis veðri. Já, veðrið. Við vorum einstaklega heppnir með veður. Það var 15-18 stiga hiti allan tímann, sem er óvanalegt á þessum árstíma. Annað sem greinilega hefur verið óvanalegt er að sjá hálf- nakinn karlmann í sólbaði á gangstétt við umferðargötu, því Hilmar Sig- hvats. orsakaði nærri því fjölda árekstra er hann lagðist í sólbað á stéttina fyrir utan hótelið í mininær- buxum. Á milli æfinga og leikja var horft á sjónvarp, spilað og að sjálfsögðu fyrir móttökur þær sem Ian Ross þjálf- ari Vals og fyrrum fyrirliði Aston Villa fékk. Það var eins og týndi sonurinn væri að koma heim. Eiginhandarárit- anir, myndatökur, ótal heilsur og kveðjur, en mesta athygli undirritaðs vakti hversu lítillátur og alúðlegur Ross var við alla. Hann heilsaði öllum jafnt, allt frá ,,vatnsberum“ og miða- sölukörlum til frægra leikmanna og framkvæmdastjóra. Greinilega vinsæll og vel liðinn á Villa Park Valsþjálfar- inn. Sanra mátti segja um það er leikið var gegn varaliði A.Villa. Þá tók sjálfur stjórnarformaður félagsins Doug Ellis á móti okkur og fór með hópinn í skoðunarferð um hinn glæsi- lega leikvang. Það er ekki vafi á því, að æfinga- lega, knattspyrnulega og félagslega var þessi ferð vel heppnuð. Þeir reyndari í hópnum töluðu um eina bestu ferð sem þeir höfðu farið, og fararstjórnin (Grétar, Eggert, Ross, Hörður, Róbert) var ánægð enda kom ekkert vandamál upp og piltarnir voru allir sjálfum sér og félaginu til sóma í hvívetna. Margir eftirminnilegir atburðir áttu sér stað í ferðinni og menn kynntust minnisstæðum persónum eins og t.d. bílstjóranum Jeff, sem var hávær í meira lagi, en hress og elskulegur, ógleymanleg manngerð. Minningin um mjög skemmtilega páskaferð til Englands er eftir og undirritaður þakkar samferðarmönn- um eftirminnilega daga. Hörður Hilmarsson Brosmildir landsliAsiiH'iin: GiiAmiindur Þorbjörnsson og Guöni Bcrgsson sýna endajaxlana.

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.