Valsblaðið - 01.05.1984, Page 33
VALSBLAÐIÐ
31
Þarna fyrsta kvöldið var hópnum
öllum safnað saman og farið í hóp-
göngu upp á Hásteinsgrasvöll, hver
hópur ásamt fararstjóra og þjálfara í
búningum og með spjöld merkt félög-
unum, sem Týsmenn höfðu útbúið.
Þarna var mótið sett og síðan var
knattspyrnaleikur sem var algjör grín-
leikur og voru það prakkarar þeirra
eyjamanna, Hildibrandar og Hrekkja-
lómafélagið sem áttust við og var
þarna fjöldi áhorfenda enda atburður
þessi auglýstur og von á einhverjum
smellnum uppákomum sem og komu á
daginn. Hildibrandsmenn fækkuðu
klæðum allsnarlega og spiluðu á hlífð-
arbindum einum og voru með númerin
máluð á bakið en hinir voru í pilsum
og með boxhanska. Markmaður lokaði
markinu öðru megin með netadræsu
sem hann smeygði uppá þverslána og
nokkrir leikmanna gerðu misheppn-
aðar tilraunir til að góma knöttinn í
lundaháf, sem sagt ágæt setning og
góð skemmtun. Mótshaldarar voril
mjög heppnir svo og keppendur með
það, að veðrið var alveg skínandi gótt,
allan tímann, sólskin og blíða.
Þarna upplifðu drengir og nokkrar
stúlkur (það voru stúlkur í nokkrum
liðum) mjög spennandi keppni og
fengu í sig þennan minnisstæða móta-
og keppnishroll, hverjir væru nú best-
ir, hin og þessi lið höfðu skorað 10-11
mörk, eigum við að spila við þá? o.s.
frv.
Á kvöldin var farið og borðaðir
hamborgarar og drukkið gos með. Við
fórum í gönguferðir með Valshópinn
niður að höfn, kíktum á bátana,
nokkrir fengu óvænta siglingu á hrað-
bát með eyjapeyja. Síðan var farið
aðeins upp á hraunið. Skoðaður var
hellir, upp við hamarinn þar sem
sprangið er stundað og horfðu dreng-
irnir með aðdáun á nokkra eyjapeyja
leika sér í sprangi. Eitt kvöldið var
boðið í pulsusamkvæmi upp við knatt-
spyrnuvöll og þar var sporðrennt
nokkrum hundruðum kílóa af
S.S.-pulsum og var ávallt mikil þröng
við pulsugrillið. Á einni kvöldvökunni,
var fararstjórum og þjálfurum att
saman í ýmsum þrautum til gamans
fyrir unga fólkið, en þess á milli var
haldið uppi gamni sem unga fólkið
sjálft hafði undirbúið, svo sem leik-
þætti, brandara og breikdans, og var
almenn kátína í kringum þetta.
Valsmenn áttu harðvítugan kepp-
anda í keppni um hver væri fljótastur
samkvæmt skeiðklukku að borða
hamborgara, Hjálmar lenti í 3ja sæti,
gleymdi skeiðklukkunni, ,,það var svo
gaman að borða.“ En hann bætti það
upp með því að vera í 4 manna flokki
Vals, sem sigraði alla í reiptogi. Valur
var kosið sterkasta liðið og risastór
konfektkassi verðlaun. Allir Valsmenn
fengu mola.
Hressir Valsstrákar ásamt umsjónarmönnum.
Guðinunur Hreiðarssnn þjáll'ari sljurnar sínum munnuin í skrúðgöngunni.
Valsmenn og Framarar voru þeir
einu sem voru með húfur merktar fé-
lagi sínu og vakti það mikla eftirtekt
enda falleg sjón að sjá á göngu.
Fyrirliðar' Valsmanna afhentu Vals-
veifur fyrirliðum annarra liða í móti
þessu og ætti það að vera sjálfsagt í
öllum mótum.
Guðmundur Hreiðarsson þjálfari 6.
fl. hafði góð tök á hópnum, en með
þennan fjölda þá veitti ekki af þeim
tveimur fararstjórum sem voru með í
þessari ferð, Hilmir Elísson og Brynj-
ólfur Lárentínusson. Ferð þessi heppn-
aðist mjög vel og vonandi að annað
mót þessu líkt verði haldið aftur. Þetta
var öllum til sóma og ungum þátttak-
endum til þroska. En vel þarf að halda
utan um svona hóp, til að vel sé.
Kyrirliðar skiptaæsl á vcifum. Hilrnir Klísson