Valsblaðið - 01.05.1984, Qupperneq 44
42
VALSBLAÐIÐ
Ingi Björn Albertson í kunnuglegri stellingu
Markamet, gullskór Adidas
og Ieikmaður Vals 1983
Ekki er hægt að gefa út Valsblað
með úttekt á árunum 1983 og 1984 án
þess að geta Inga Bjarnar Albertsson-
ar. Frammistaða hans með 1. deildar-
liði Vals 1983 verður lengi i minnum
höfð, og hlýtur það keppnistímabil að
teljast bezta ár Inga í boltanum þó oft
hafi kappinn staðið sig vel. Ingi Björn
setti markamet í 1. deildinni er hann
varð fyrstur til að skora 100 mörk, en
hann hélt áfram að gera mörk allt
keppnistímabilið og voru þau hvert
öðru þýðingarmeira því eins og menn
muna var Valur í fallhættu allt fram í
síðasta leik. Á engan er hallað þegar
það er fullyrt að Ingi Björn átti
stærstan þátt í að forða Val frá falli
með mörkunum 14 og stórgóðri
frammistöðu að öðru leyti. — Alls
hefur Ingi gert 112 mörk í 1. deild.
Ingi Björn var markakóngur 1.
deildar og hlaut gullskó Adidas að
launum fyrstur íslenskra leikmanna.
Þá var Ingi valinn leikmaður Vals
1983, (hver annar?) og hefur sjaldan
verið eins auðvelt að velja þann sem þá
vegsemd hlýtur.
Eftir þetta gullár Inga kvaddi hann
Val, um stundarsakir, og gerðist þjálf-
ari og leikmaður með FH. Sem
kunnugt er sigraði FH í 2. deildar-
keppninni og leikur því í 1. deild næsta
sumar, og því miður, segja harðir
Valsmenn, undir stjórn Inga Bjarnar
Albertssonar. Hann kemur þó án efa
fljótlega aftur heim að Hlíðarenda til
leiks eða starfa fyrir Val, en þangað til
eru þakkir og góðar óskir veganesti
Vals til Inga Bjarnar Albertssonar.
Hörður Hilmarsson
Thermor
E&þú
BAKAROG
STEIKIRALL T
IÞESSUM
Thermor bökunarofninn gefur
ótal möguleika við baksturog
matargerð. Thermorofninner
viftuofn sem hefursamtsem áðuryfir-
og undirhita og grill eins og venjulegirofnar.
Ofninn má stilla sérstaklega eftirþví hvað á að baka eða
steikja. Að auki er hægt að baka á mörgum hæðum og
sparast þá tími og orka.
KJOLUR SF.
Hverfisgötu 37 símar 21490 - 21846